Fréttablaðið - 12.04.2022, Síða 54
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Svala Jóhannsdóttir birtist í
sjónvarpsþáttunum Verbúð-
inni sem nektardansmærin
danska Susan Haslund. Hún
lætur nektardansmeyjar-
drauma sína rætast á skírdag
á Gauknum.
margret@frettabladid.is
Þegar fyrsti þáttur Verbúðar fór
í loftið mátti sjá yngri kynslóð á
samfélagsmiðlum sem ekki upplifði
fettur og brettur nektardansmeyj-
arinnar Susan hvá: „Nei, var þetta
bara svona? Bara nektardansmær á
miðju balli?“ Sú sem lék Susan var
Svala Jóhannsdóttir. „Ég var stress-
aðri fyrir að tala dönskuna en að
vera nakin í mynd.“
Svala segir að sér hafi liðið vel í
tökunum. „Birna Björns danshöf-
undur hjálpaði mér, það var gott að
hafa hana þarna og hún veitti mér
öryggi, enda var ég hjá henni í dansi
sem barn. Þetta var aðeins önnur
stemning!“
Afi man vel eftir Susan
Susan var ein fjölmargra erlendra
nektardansmeyja sem skemmtu
landsmönnum í hljómsveitar-
hléum. Susan baðaði sig, aðrar döns-
uðu með slöngur, sýndu jafnvægis-
listir og spúðu eldi. Þetta var algjör
gullöld burlesque-formsins á Íslandi
– og ef leitað er að orðinu dansmær
á tímarit.is koma upp stórkostlegar
auglýsingar sem sýna fjölbreytnina.
„Nekt hefur aldrei verið feimnis-
mál í minni fjölskyldu. Mér þótti
vænt um að geta spurt mér eldra
fólk um Susan. „Já, hún Susan!“
sagði afi og hann minnist hennar
með hlýhug.“
En talandi um kynslóðabilið:
„Já, ég safnaði hári fyrir hlutverkið.
Undir höndum og að neðan!“ segir
Svala hlæjandi, „svo fíla ég bara
mjög vel að hafa hár undir hönd-
unum og hef haldið því síðan.“
Kópakona í felum
Svala hefur lengi unnið með þokka
kvenlíkamans og er einn af vinsæl-
ustu Íslendingunum á Instagram.
Hún kallar sig þar icelandicselkie,
og vitnar þar í þjóðsögur um konur
í selsham. Hún er með yfir 86.000
fylgjendur. „Ég tengi við þessar
hamskiptasögur, ég fer í gír í tökum,
ég er alltaf í fjörum og við einhver
lón og skítkalt.“
Hún segir f ylgjendahópinn
blandaðan. „Bæði Íslendingar og
útlendingar, fólk sem fylgir mér út
af fegurð minni og fegurð landsins.
Ég vildi samt óska að allir fylgjendur
væru þarna á listrænum forsend-
um!“ Á Instagram-síðunni hennar
er oft eins og hún sé ein í heiminum
á ljósmyndunum. „Þegar raunveru-
leikinn er sá að ég er á bak við stein –
og hinum megin við steininn er full
rúta af japönskum túristum.“
Sló í gegn i hlutverki sviðsmanns
Svala og vinkonur hennar hafa nú
stofnað burlesque-hópinn Earthly
Delights sem lyftir upp skemmti-
forminu sem Susan og fleiri ruddu
brautina fyrir. Í burlesque-inu víkur
selshamurinn fyrir öðru hliðarsjálfi
og Svala kallar sig Mama Satan.
Nú eru dansmeyjarnar með heila
sýningu, ekki bara í hléinu eins og
á tímum Susan. Vinkona Svölu fékk
hana til að vera kettling á sýningu í
fyrra, en það er það sem sviðsmenn
eru kallaðir í þessum heimi. „Og ég
bara sló í gegn! Ég heillaðist, þarna
er verið að nota tvennt sem liggur
vel fyrir mér, dansinn og nektina.“
Þessi sama vinkona, Miss Mimi,
vildi svo gera sína eigin sýningu og
fékk Svölu í lið með sér ásamt dans-
meyjunum Tempest og ['niks]. „Við
erum að vinna með klassískt og
nýmóðins burlesque en andi þriðja
áratugarins svífur yfir vötnum.“
Sýningin verður á Gauknum að
kvöldi skírdags. ■
Úr balanum og upp á svið
Svala segir afa sinn hafa minnst Susan með hlýhug. MYND/EMIL C.P. HOLM
Svala og vin-
konur hennar
hafa stofnað
burlesque-
hópinn Earthly
Delights.
MYND/EMIL C.P.
HOLM
N Ó I SÍ R Í US
Hinir sívinsælu Nóa Hnappar sóma sér
einstaklega vel í páskaeggjum og það er
óhætt að segja að hnappaeggin okkar séu
sannkallaðir hnappafengir! Við bjóðum upp
á tvær ómótstæðilegar tegundir í ár, hið
klassíska perluhnappaegg og frábæra nýjung
sem svíkur engan, saltkaramelluhnappaegg!
Ekki missa af þessum
hnappdrættisvinningum!
ninarichter@frettabladid.is
Jennifer Lopez er trúlofuð leikar-
anum Ben Affleck í annað sinn, en
parið sleit trúlofun í janúar árið
2004 eftir þriggja ára samband.
„Ég var mesti aðdáandi hennar á
þessum tíma sem þau voru saman
fyrst,“ segir Erlingur Óttar Thorodd-
sen kvikmyndagerðarmaður. „Þetta
var þegar aðdáunin stóð sem hæst,“
segir hann
„Ég man eftir því að hann var
í Jenny from the Block-vídeóinu
og þetta virtist allt á góðri leið hjá
þeim. En er þetta ekki bara stað-
festing á því að sönn ást leitar alltaf
í sama horfið þó að eitthvað komi
upp á í millitíðinni?“
Inga Rós Gunnarsdóttir er mikill
aðdáandi Jennifer Lopez og hefur
fylgst með ferli hennar um ára-
bil. „Já, þetta kemur skemmtilega
á óvart. Það er svo rosalega langt
síðan þau slitu trúlofuninni síð-
ast,“ segir hún. Hugsanlega sé Ben
Aff leck „sá sem slapp“, og nú nái
þau saman aftur. „Það er gaman að
ímynda sér það,“ segir hún.
Inga Rós hefur að sögn velt fyrir
sér tr úlof unarhr ing num sem
Affleck gaf Lopez. „Ég rakst á mynd-
band frá sérfræðingi í gimsteinum,
sem sagði að Ben hefði gefið Jenni-
fer frægan bleikan trúlofunarhring
þegar þau trúlofuðu sig fyrst, en
fundið leið til að toppa það með
þessum svakalega sjaldgæfa græna
demanti,“ segir hún. „Og hún virðist
svakalega ánægð með hann.“
Hin 52 ára gamla Jennifer Lopez
er af kastamikil listakona. Hún
hefur sent frá sér átta plötur, selt
f leiri en 75 milljónir eintaka á
heimsvísu og leikið í f leiri en 50
kvikmyndum á ferlinum. ■
Aðdáendur fagna með Bennifer
Gárungar kalla parið Bennifer.
30 Lífið 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ