Fréttablaðið - 03.05.2022, Qupperneq 1
Samkvæmt upp-
lýsingum frá fjármála-
ráðuneytinu greiddi
íslenska ríkið 22,4
milljónir króna fyrir
ráðgjöf Bretans Mic-
haels Ridley.
8 5 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 3 . M A Í 2 0 2 2
Fjallar um
allt og sumt
Þungu fargi létt
af Rolf Løvland
Menning ➤ 14 Fréttir ➤ 2
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is
Er bíllinn klár
í ferðalagið?
Ferðabox, kajakfestingar, hjólafestingar og margt fleira Menabo farangursbox
320 ltr, Mania, svart
Verð 44.990 kr.
Skíðafesting á topp
4 skíði eða 2 snjóbretti
Verð 24.890 kr
Þriggja hjóla festing á krók
Burðargeta 60 kg, hallanleg
Verð 89.900 kr.
Reiðhjólafesting á topp
Burðargeta 15 kg
Verð 18.900 kr.
„Ég hef aldrei séð þetta svona slæmt þó að þetta sé oft slæmt. Þetta er mest þegar er gott veður, þá eru allir að taka til hjá sér en þetta er viðvarandi plága,“ segir Ingibjörg Erla Björnsdóttir, íbúi í Laugar-
neshverfi. Þar voru pokar með fötum skildir eftir við troðfullan gám Rauða krossins. Ekki leið á löngu þar til flíkurnar flæddu upp úr pokunum. NÁNAR Á FRETTABLADID.IS. MYND/INGIBJÖRG ERLA BJÖRNSDÓTTIR
Bankasýslan fylgdi reglum
fjármálaráðuneytisins um
opinber innkaup í tengslum
við sölu ríkisins á Íslands-
banka en ráðuneytið sjálft
gerði það ekki heldur réði til
sín ráðgjafa án útboðs.
ggunnars@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Bankasýsla ríkisins og
fjármálaráðuneytið greiddu tveim-
ur erlendum ráðgjöfum samtals 62
milljónir króna í tengslum við sölu
ríkisins á hlut í Íslandsbanka.
Samkvæmt reglum fjármála-
ráðuneytisins um opinber innkaup
skulu öll kaup ríkis og sveitarfélaga
á vöru og þjónustu yfir 18,5 milljón-
um króna fara í útboð. Reglunum er
ætlað að tryggja jafnræði, gegnsæi
og hagkvæmni við meðferð á fjár-
munum ríkisins.
Í skýrslu fjármála- og efnahags-
ráðherra um söluna kemur fram
að ráðuneytið hafi fengið fyrir-
tæki Bretans Michaels Ridley til
að annast ráðgjöf varðandi banka-
söluna. Ridley þessi hefur þrívegis
áður verið íslenskum stjórnvöldum
til ráðgjafar í stórum málum sem
varða efnahagsmál hérlendis.
Samkvæmt upplýsingum frá
f já r má la ráðu ney t inu g reidd i
íslenska ríkið 22,4 milljónir króna
fyrir þjónustu Bretans. Ráðuneytið
leitaði ekki tilboða í verkefnið þótt
reglur, sem ráðuneytið sjálft gefur
út, kveði á um að öll kaup á vöru og
þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæð
skulu boðin út.
Bankasýsla ríkisins hafði annan
hátt á en ráðuneytið við kaup á ráð-
gjafaþjónustu í tengslum við söluna
í Íslandsbanka. Við framkvæmd
sölunnar fylgdi Bankasýslan reglum
fjármálaráðuneytisins í þaula og
bauð verkefnið út á evrópska efna-
hagssvæðinu í samráði við Ríkis-
kaup.
Bankasýslan greiddi alls um 40
milljónir fyrir ráðgjöf fyrirtækisins
STJ Advisors Group Limited.
Fréttablaðið leitaði í gær skýringa
frá fjármálaráðuneytinu á því af
hverju reglum var ekki fylgt í öllum
kaupum ríkisins á fjármálaþjónustu
í tengslum við útboðið í Íslands-
banka. Engin svör fengust áður en
blaðið fór í prentun í gærkvöld. n
Fjármálaráðuneytið fylgdi ekki eigin reglum