Fréttablaðið - 03.05.2022, Qupperneq 8
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Þessum
svoköll-
uðu „bestu
vinum
aðal“ hafa
verið færð
margs
konar auð-
æfi á silfur-
fati.
Leikskól-
arnir Furu-
skógur og
Kvistaborg
eru nýleg
dæmi um
óljósa upp-
lýsingagjöf
til foreldra
og starfs-
fólks.
Elín
Hirst
elinhirst
@frettabladid.is
Þegar Styrmir heitinn Gunnarsson,
fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðs-
ins, kom fyrir rannsóknarnefnd
Alþingis eftir hrun sagði hann:
„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta
er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það
eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er
bara tækifærismennska, valdabarátta.“
Þetta voru sláandi orð og eftirminnileg og
koma því miður sterkt upp í hugann núna
þegar við stöndum frammi fyrir einu mesta
klúðri í íslensku samfélagi frá því fyrir
hrun.
Því miður ber Íslandsbankaútboðið öll
merki þeirra orða sem Styrmir lét falla eftir
hrun. „Þar eru engin prinsipp, engar hug-
sjónir, ekki neitt.“ Nær allir falla á prófinu.
Og „bestu vinir aðal“, eins og þeir hafa verið
kallaðir á slangurmáli, eru mættir aftur.
Þessum svokölluðu „bestu vinum aðal“
hafa verið færð margs konar auðæfi á silfur-
fati. Þeir fengu líka aðvörun sem hvíslað var
innan úr stjórn- og fjármálakerfinu fáeinum
sólarhringum eða klukkutímum fyrir hrun
svo að þeir gátu forðað háum fjárhæðum.
Rétt áður en Geir Haarde kom fram í sjón-
varpi og tilkynnti þjóðinni að bankarnir
væru fallnir og bað Guð að blessa Ísland.
Á sama tíma stóðu venjulegir Íslendingar
sem áttu fé í bönkunum frammi fyrir því
að hafa tapað miklum peningum á meðan
að ,,bestu vinir aðal“ gátu forðað sínu fé, að
minnsta kosti góðum hluta.
Íslendingar eru upp til hópa heiðarlegt og
sómakært fólk sem hefur engan áhuga á að
hagnast á kostnað samfélagsins eða ann-
arra. Enda leið hinum venjulega Íslendingi
virkilega illa á sál og líkama lengi eftir hrun.
Ekki bara höfðu menn tapað sparifé sínu,
arfi eftir foreldra eða sparifé barna- og
barnabarna, heldur upplifðu menn líka
sára skömm yfir því að vera Íslendingur og
að þetta skyldi gerast í nafni okkar þjóðar.
Þessi tilfinning var lengi að hverfa. Nú fjór-
tán árum eftir hrun gerir þessi skömm aftur
vart við sig af fullum krafti.
Við felum kjörnum fulltrúum okkar
mikla ábyrgð. Við gerum miklar kröfur til
þessa sama fólks um að það beri fyrst og
síðast almannahag fyrir brjósti. Þegar selja
á eigur almennings verður það að gerast
í gegnsæju og opnu söluferli. Það verður
líka að vera hægt að grípa inn í og stöðva
ferlið ef eitthvað fer úrskeiðis. Þetta virðist
hafa mistekist algerlega í þessu máli og því
verður ekki sópað undir teppi. ■
Bestu vinir aðal
Mygla hefur alltaf fylgt manninum en aukin fag-
þekking hefur dregið úr fjölda atvika þar sem alvarleg
mygla fær að grassera. Því er það ámælisvert að skóla-
húsnæði borgarinnar sé myglandi í sífellu og alltaf
heyri maður sömu söguna af viðbrögðum borgarinnar
gagnvart foreldrum og starfsfólki.
Í kjölfar fráleitra vinnubragða borgarinnar í sam-
skiptum og upplýsingagjöf til foreldra og starfsfólks
í Fossvogsskólamálinu fylgdi hinn klassíski loforða-
flaumur borgarstjórnarmeirihluta Samfylkingar,
Pírata, Vinstri grænna og Viðreisnar um betrum-
bætur. Nú hafa samtals 15 tilfelli hættulegrar myglu
í grunn- og leikskólum borgarinnar komið upp á
kjörtímabilinu og lítið bólar á umbótum.
Skólarnir eiga það f lestir sameiginlegt að ákall
skóla- og leikskólastjórnenda um bætt viðhald mætti
daufum eyrum í áraraðir og síðar meir óskir þeirra
um víðtækari sýnatökur í kjölfar gruns um myglu.
Sé grunur um eða staðfesting á myglu hef ég heyrt að
stjórnendum sé sagt að smætta málið þar til borginni
hentar að taka ákvörðun þó veikindi meðal starfs-
fólks og barna geti versnað á meðan, ellegar falli þeir
úr náð hjá borginni. Leikskólarnir Furuskógur og
Kvistaborg eru nýleg dæmi um óljósa upplýsingagjöf
til foreldra og starfsfólks og að svartar skýrslur liggi
hjá borginni í marga mánuði áður en fólki er gert við-
vart. Enn er starfsfólk borgarinnar bendandi hvert
á annað eða aðkeypta sérfræðinga, berandi fyrir sig
þekkingarleysi eða skorti á alþjóðlegum og innlend-
um upplýsingum um viðmið eða áhrif myglu sem
einföld netleit afsannar þegar starfsfólk skólanna og
foreldrar leita svara. Hér ber meirihlutinn í borgar-
stjórn ábyrgð, því vegna óstjórnar þeirra skortir
starfsfólk borgarinnar réttu stefnuna og verkfærin til
að bregðast almennilega við. Það tekur ekki langan
tíma að gera heildstæðan verkferil um viðbrögð og
upplýsingamiðlun í kjölfar gruns og staðfestingar
á myglu. Það að slíkt liggi ekki fyrir kemur upp um
viðhorf Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna og
Viðreisnar gagnvart þessum vanda, því þau ákveða
línuna sem starfsfólk borgarinnar fylgir gagnvart
skólunum og foreldrum. ■
Déjà vu, myglar þú?
Ragnhildur Alda
Vilhjálmsdóttir
skipar 2. sæti á
lista Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík
benediktboas@frettabladid.is
1. maí úti á landi
Fréttatími RÚV á sunnudag
vakti athygli en hann var stút-
fullur af uppfyllingarefni utan
af landi. Bræður smíðuðu bíl
í Grímsey og Akurnesingar
settu upp leikrit svo fátt eitt sé
nefnt. Landsbyggðin fyllir upp
í fréttatíma helgarinnar. Verka-
lýðsdaginn bar upp á sunnudag
og það voru alveg ræður og
göngur og alls konar úti á landi.
En fréttamenn RÚV úti á landi
vinna ekki um helgar. Það var
því ekkert sýnt frá ræðum eða
göngum eða alls konar í frétta-
tíma allra landsmanna utan
af landi. Verkalýðsdagurinn
gerðist nefnilega bara í Reykja-
vík samkvæmt fréttum RÚV.
Milljarðarnir tveir
Kjarninn greindi frá því í gær
að RÚV sala, sem væri dóttur-
félag RÚV og ber ábyrgð á
allri sölu, af l aði tæp lega 2,4
millj arða króna í tekjur í fyrra.
Þar af voru 2.206 millj ónir
tekjur af aug lýs inga sölu. Alls
eru 17 sölumenn að vinna hjá
RÚV sölu og er hver og einn
með 1,2 milljónir króna í laun
samkvæmt frétt Kjarnans. Þar
kemur einnig fram að íþróttir
og peningar ganga hönd í hönd
því nánast allir íþróttavið-
burðir RÚV eru styrktir. Aðeins
Eurovision og Verbúðin komast
á lista efnis sem er styrkt sem er
ekki íþrótt. ■
GEFÐU GJÖF TIL HEILLA
HEILLAGJAFIR.IS
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 3. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR