Ægir

Volume

Ægir - 2021, Page 28

Ægir - 2021, Page 28
28 „Mjög stór hluti af aflanum sem við vinnum fer í lýsi og mjöl, sérstaklega ef það er loðnuvertíð. Ég reikna með að við verðum með 50-60.000 tonn af afurðum á næsta ári. Þar er mjöl og lýsi fyrirferðarmest og svo síldar-, makríl- og loðnuafurðir, auk bolfiskaf- urða. Ef við náum loðnukvótanum á næsta ári geri ég ráð fyrir að loðnan skili yfir 30.000 tonnum af afurðum,“ segir Stefán Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Ísfélags Vestmanna- eyja. Félagið fagnaði 120 ára afmæli á fullveldisdaginn fyrsta desember síð- astliðinn. Það á sér því langa og merka sögu en í þessu viðtali höldum við okkur aðallega í nútímanum og reynum að skyggnast inn í nánustu framtíð. Við byrjum á komandi vetr- arvertíð á loðnu. Þeirri stærstu í tvo áratugi. Loðnuvertíðin mikil innspýting „Þegar allt er í gangi á svona stórri ver- tíð erum við að framleiða jafnvel 400 tonn af mjöli og 200 tonn af lýsi og gæt- um að auki verið að frysta 600 tonn af afurðum á sólarhring. Sem er ansi mikið. Þó að þetta séu kannski ekki margir dagar, sem svona gengur, er þetta tals- vert álag, sem þarf að standast. Menn þurfa að ráða við toppana. Við höfum ekki teljandi áhyggjur af því að við get-  Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísféalgs Vestmanneyja. Myndir: Óskar Pétur Friðriksson Tæknin og vísindin lykillinn að framtíðinni rætt við Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóra Ísfélags Vestmannaeyja, í tilefni af nýafstöðnu 120 ára afmæli félagsins

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.