Ægir

Årgang

Ægir - 2021, Side 38

Ægir - 2021, Side 38
38 „Það er orðið ansi langt síðan ég hef veitt loðnu í desember. Það er svo langt síðan að ég man það ekki einu sinni. Vertíðina 2002 fiskuðum við hátt í 30.000 á gamla Bjarna og þá tók ég allt eftir áramót, þó skipið bæri ekki nema 1.200 til 1.300 tonn. Það voru því nokkrar ferðir. Núna er svo sem ekki komin góð mynd á útlitið en loðna virðist vera alveg frá Kolbeins- ey og austur af Langanesi. Hún virð- ist vera mjög víða en mjög dreifð.“ Þetta sagði Þorkell Pétursson, skip- stjóri á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafs- syni AK 70, þegar slegið var á þráðinn til hans úti á loðnumiðunum útaf Langa- nesi nú í desember. Mikil traffík „Það voru 17 bátar hérna í gær og mikil traffík. Allir að berjast um lítinn blett. Það er mjög þröngt á þessu og endaði á því að einn missti pokann í sjóinn. Menn draga sig saman á morgnana ef eitthvað er sjá og reyna að skipuleggja sig en það gengur ekki alltaf vel. Ef þú ert ekki á réttum stað að morgni þá getur þú hreinlega misst veiðina þann daginn. Eins og staðan er í dag er ég nyrstur og það eru bátar á eftir í röð sem nær yfir 30 mílur. Stýrimennirnir leita að loðnunni á nóttunni og staðsetja sig að morgni þar sem veiðivon er. Finna eitt- hvað sem getur þétt sig um morguninn, þegar loðnan gengur niður. Þegar fer að skyggja þá hættir loðnan að ganga inn í belginn. Það kemur bara ekkert þó lóðið sé ágætt. Þetta er mjög sérstakt. Stærsta holið hjá okkur á þessu skipi er 400 tonn en annars allt niður í 100 tonnin. Það er líka mikil áta hérna sem við getum líka lent í. Það er enginn aukafiskur í þessu nema átan,“ segir Þorkell. Stór og falleg loðna Bjarni Ólafsson AK kom með fyrsta loðnufarminn að landi á vertíðinni og var skipið búið að landa þrisvar þegar rætt var við Þorkel. Lest skipsins er 1.967 rúmmetrar og segir Þorkell að mið- að við það geti skipið tekið 1.850-1.900 tonn. „Við kælum hráefnið með vatni en ekki sjó til að minnka seltuna í aflanum. Hann fer allur í bræðslu núna enda eng- in hrogn komin í loðnuna. En þetta er stór og falleg loðna, allt niður í 36 stykki í kílói,“ segir Þorkell sem er bjartsýnn á að ná kvótanum á vertíðinni. „Einhvers staðar hljóta þessi tonn að vera sem búið er að mæla og ég vona að allt gangi upp. Það verður nóg að gera á næstunni, það er alveg ljóst.“ „Langt síðan ég hef veitt loðnu í desember“ segir Þorkell Pétursson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni  Þorkell Pétursson skipstjóri er bjartsýnn á að loðnukvótinn náist. Myndir: Þorgeir Baldursson  Bjarni Ólafsson kom með fyrstu loðnuna til Neskaupstaðar í upphafi vertíðar. Loðnuveiðar

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.