Fréttablaðið - 27.05.2022, Page 8
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hlutverk
Viðreisnar
í íslenskum
stjórnmál-
um er hins
vegar orðið
óljóst.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Eðlilegt er að litlir stjórnmálaflokkar
reyni að skapa sér sérstöðu þannig
að kjósendur taki ekki upp á því að
villast á þeim og öðrum flokkum.
Einn af litlu f lokkunum er Viðreisn,
sem í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum
rétt slapp inn í borgarstjórn, en meirihlutinn
féll þó. Fyrstu viðbrögð forystu Viðreisnar við
úrslitunum voru í ætt við ákafan aðskilnaðar-
kvíða og hún tilkynnti að f lokkurinn væri
í staðföstu bandalagi með öðrum flokkum
í hinum fallna meirihluta. Síðan var eins
og forystan áttaði sig á því að kannski gæti
f lokkurinn átt tilverurétt í borginni án Dags
B. Eggertssonar og þá var sagt að þetta banda-
lag ætti að vara í einhverja daga en þá yrði
hugsanlega farið að horfa í aðrar áttir. Þau orð
voru fljótlega tekin aftur. Svo virtist Viðreisn
skyndilega fá þá hugdettu að f lokkurinn hefði
unnið kosningasigur og þá var talað eins og
það væri hlutverk Viðreisnar að bjóða Fram-
sóknarflokknum til viðræðna um meiri-
hlutasamstarf. Skiljanlega klóruðu ýmsir sér í
kollinum yfir þeirri kokhraustu hugmynd.
Nú er Viðreisn föst þar sem hún kann best
við sig – í námunda við Samfylkinguna. Það
er ekki skrýtið því enginn sérstakur munur
er á þessum flokkum. Hollusta Viðreisnar í
garð Dags B. Eggertssonar minnir meira að
segja á aðdáun Samfylkingarfólks á borgar-
stjóranum. Dagur hefur vissulega margt sér
til ágætis. Hann var farsæll borgarstjóri og
verður vonandi í allra nánustu framtíð for-
maður Samfylkingarinnar. Enginn yrði betri
í því hlutverki. Ætli Samfylkingin sér stóra
hluti í framtíðinni þarf hún mann eins og Dag
til forystu. Sjálfskipaðar vonarstjörnur innan
þingflokks Samfylkingar verða að kyngja
þeirri staðreynd.
Samfylkingin gæti átt bjarta tíma fram
undan haldi hún rétt á spilunum. Hlutverk
Viðreisnar í íslenskum stjórnmálum er hins
vegar orðið óljóst. Helstu stefnumál þessa
litla f lokks eru stefnumál Samfylkingarinnar,
samanber Evrópumál og sjávarútvegsmál.
Það er því ekki skrýtið að Viðreisn skuli nú
leita í faðm Samfylkingarinnar. Kannski ætti
Viðreisn að sýna djörfung og dug, ganga hug-
hraust alla leið og sameinast Samfylkingunni.
Viðreisn kæmi inn í Samfylkinguna með
nokkurn veginn sömu áherslur og þar eru
fyrir, en viðbótin væri vottur af nettri og ljúfri
hægristefnu, sem þarf líka að finnast í stórum
jafnaðarmannaflokki.
Verri sameiningar en þessi hafa vissulega átt
sér stað í íslenskum stjórnmálum. n
Í sama flokki
Steinhella 17a / 221 Hafnarfjörður / s. 577 5050 / www.gluggasmidjan.is
gæða veka PLaSTgLuggar
• Útlit eins og timburgluggar
• Henta mjög vel í gluggaskipti!
• Þarf ekki að skrapa og mála
eins og timburglugga!
Gott verð og stuttur
afhendingartími!
Það er löngu tímabært að löggjafinn tryggi fjöl-
skyldum leyfi frá störfum og svigrúm til úrvinnslu á
sorg sinni í kjölfar barnsmissis. Í apríl mælti ég fyrir
frumvarpi á Alþingi um sorgarleyfi foreldra sem
missa barn.
Rétturinn til sorgarleyfis verður sex mánuðir og
greiðslur nema 80% af meðaltali heildarlauna, þó
að hámarki 600.000 kr. á mánuði. Fólk utan vinnu-
markaðar eða sem er í minna en 25% starfi fær
sorgarstyrk, þar á meðal námsmenn. Einnig er gert
ráð fyrir að foreldrar geti nýtt rétt sinn til sorgar-
leyfis samhliða minnkuðu starfshlutfalli yfir lengra
tímabil. Sorgarleyfi nær einnig til andvana fæðinga
eftir 22. viku meðgöngu og er þá þrír mánuðir og
til fósturláts eftir 18. viku og er þá tveir mánuðir. Í
frumvarpinu er hugtakið foreldri skilgreint rýmra
en í gildandi löggjöf hér á landi og geta því f leiri en
tveir einstaklingar átt rétt á sorgarleyfi og um er að
ræða sjálfstæðan rétt hvers foreldris.
Mikilvægi þess að huga vel að stuðningi við börn
og barnafjölskyldur í kjölfar andláts barns verður
seint ofmetið, en hér er líka um mikið framfara-
skref á vinnumarkaði að ræða. Mestu máli skiptir
auðvitað að foreldrar fái svigrúm til að vinna úr
sorg sinni og styðja við eftirlifandi systkini, en með
sorgarleyfi og greiðslum því tengdum má auka líkur
á að viðkomandi eigi farsæla endurkomu á vinnu-
markað og taki virkari þátt í samfélaginu að nýju
eftir barnsmissi.
Sorgarleyfi þekkjast ekki víða, en þó til dæmis í
Danmörku og Bretlandi. Verði frumvarpið sam-
þykkt mun Ísland skipa sér fremst á meðal jafningja
hvað varðar réttindi tengd sorgarleyfi, en foreldra-
hugtakið er víðtækara og sveigjanleiki til atvinnu-
þátttöku samhliða leyfi rýmri en annars staðar þar
sem sorgarleyfi eru í löggjöf.
Ég vona svo sannarlega að við alþingismenn
gerum frumvarpið að lögum fyrir sumarið. n
Sorgarleyfi
vegna barnsmissis
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
félags- og vinnu-
markaðsráðherra
arnartomas@frettabladid.is
Bless, bless
Það var tregablandin stemning
á Facebook-síðu Eyþórs Arnalds
í vikunni þar sem hann kvaddi
borgarstjórn Reykjavíkur með
örljóði. Þar hafði fyrrverandi
rokkstirnið og oddvitinn orð á
því að sum væru södd og sum
hungruð en að borgin væri
fögur og nóttin ung. Ljóðstúfur-
inn um misrétti heimsins var
svo myndskreyttur af Eyþóri
og fyrrum starfsbróður hans í
Samfylkingunni á trúnó í ein-
hverju kokteilboði. Þótt færslan
hafi verið með eindæmum
furðuleg var hún merkilega
mennsk, sem er eitthvað sem
var sárlega ábótavant í nýyfir-
staðinni kosningabaráttu Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík.
Rífast bæði og djamma
Blásið var til þingveislu fyrir
ráðherra og alþingismenn í
vikunni, þeirrar fyrstu síðan
heimsfaraldurinn skall á.
Dæmi eru um að slíkar veislur
hafi endað með ósköpum.
Áður fyrr hefur kynferðisleg
áreitni grasserað og kjörnir
fulltrúar sagt af sér í kjölfarið
en nú skyggði ekkert á gleðina.
Þá skiptir engu þótt menn hafi
rifist opinberlega svo gott sem
sama dag og veislan fór fram.
Stéttin er ólík öðrum að því
leyti að hún getur hæglega
rifist á daginn og djammað
saman á kvöldin. n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 27. maí 2022 FÖSTUDAGUR