Fréttablaðið - 27.05.2022, Page 26

Fréttablaðið - 27.05.2022, Page 26
Taylor Mac er magnaður listamaður. elin@frettabladid.is Listahátíð í Reykjavík verður haldin dagana 1. - 19. júní en þar munu jafnt innlendir sem erlendir listamenn koma fram. Listahátíðin hefur verið leiðandi afl í menn- ingarlífi þjóðarinnar frá árinu 1970. Venjulega er mikil listræn fjölbreytni á Listahátíð og flutt hafa verið verk eftir mikinn fjölda listamanna í gegnum árin. Á því verður engin undantekning nú. Meðal þeirra sem koma fram er Taylor Mac sem nýtir drag, tónlist og húmor til að halda uppi kraft- mikilli samfélagslegri gagnrýni. Taylor Mac kemur fram á stóra sviði Þjóðleikhússins með magn- aði hljómsveit, en auk þess koma fram óvæntir gestir úr íslensku menningarlífi. Taylor Mac sló ræki- lega í gegn fyrir fáeinum árum, en hann hefur sýnt listgjörninga víða um heim og hlotið mikið lof fyrir. Taylor Mac kemur fram 1. og 2. júní í Þjóðleikhúsinu. Hægt er að kynna sér alla þá frábæru lista- menn sem koma fram á hátíðinni á síðunni listahatid.is. n Listahátíð nálgast Svavar KnútUR Fór á WOMEX tón- listarráðstefnuna með ÚTÓN í fyrra. starri@frettabladid.is Markmið Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) er að auka möguleika íslenskra fyrir- tækja og einstaklinga í tónlistar- útrás til að ná árangri í alþjóð- legum viðskiptum. Starfsfólk ÚTÓN tók meðal ann- ars þátt í sjö tónlistarráðstefnum eða „showcase hátíðum“ nú í vor. Ólíkt hefðbundnum tónlistar- hátíðum er stór hluti gesta aðilar úr tónlistarbransanum, til dæmis bókarar, umboðsmenn, fólk frá útflutningsskrifstofum, plötu- útgáfum og PR fyrirtækjum. Þeim er gjarnan boðið á hátíð- ina af skipuleggjendum eða koma þangað á eigin vegum til að kynn- ast öðrum fagaðilum í tónlist, en tengsl eru einstaklega mikilvæg í tónlistariðnaðinum. Þegar ÚTÓN er með viðveru á hátíðum af þessu tagi er markmiðið að kynna Ísland og íslenska tónlist í víðtækum skilningi, og svo er hver hátíð með ákveðinn fókus. Í ár er starfsfólk ÚTÓN sérstak- lega að kynna lagalista Iceland Music og Record in Iceland verk- efnið. n HEIMILD: UTON.IS.  Aðstoða við útrás íslenskrar tónlistar Icelandic Tattoo Convention fer fram 3.-5. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR oddurfreyr@frettabladid.is Icelandic Tattoo Convention fer fram helgina 3.-5. júní næstkom- andi í Gamla Bíó, Ingólfsstræti 2a. Þetta verður í fimmtánda sinn sem ráðstefnan fer fram. Hún var fyrst haldin árið 2006 en féll niður árin 2020 og 2021 vegna heimsfarald- ursins. Tilgangur ráðstefnunnar er að fá fleiri húðflúrslistamenn til landsins. Miðar á ráðstefnuna verða seldir við innganginn og þeir sem vilja panta tíma hjá listamönnunum sem koma í heimsókn verða að hafa samband við listamennina sjálfa, annað hvort með því að senda þeim skilaboð á Instagram eða mæta á ráðstefnuna og tala beint við þá. Gestir eru beðnir um að koma með reiðufé. n Nánari upplýsingar um ráð- stefnuna og þá listamenn sem eru að koma í heimsókn má finna á Facebook-síðunni The Icelandic Tattoo Convention, undir við- burðaheitinu Icelandic tattoo convention 2022 á Facebook og á Instagram undir notendanafninu icelandictattooconvention. Icelandic Tattoo Convention í júní Harpa bíður þín með fjölbreytt rými, fullkominn tæknibúnað og þjónustulipurt fagfólk. Hvort sem þú ætlar að halda ráðstefnu, málþing, menningarviðburð, árshátíð, fund eða annars konar samkomu mun fara vel um þig og viðburðinn hjá okkur. Fjölbreytt aðstaða með margvíslegum möguleikum og tækniþekking á heimsmælikvarða. Í Hörpu færðu persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf til að tryggja velheppnaðan viðburð. Velkomin í Hörpu! harpa.is Stendur eitthvað til? 12 kynningarblað 27. maí 2022 FÖSTUDAGURR ÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐASTJÓRNUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.