Fréttablaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
STÓR PIZZA
PÖNNUTILBOÐ
ALLA DAGA
1. 590
PEPPERONI • HAWAII • MARGARITA
EF ÞÚ SÆKIR
pizzahut.is - 515 1617 - Staðarbergi 2–4 Hafnarfirði
18 Lífið 27. maí 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
toti@frettabladid.is
Kvikmyndin The Bob's Burgers
Movie, sem byggir á samnefndum
teiknimyndaþáttum, er frumsýnd
vestanhafs í dag en íslenskir aðdá-
endur þáttanna eru margir hverjir
með böggum hildar eftir að þeir
komust að því að ekki stendur til
að sýna hana í kvikmyndahúsum
hérlendis.
Markús Már Efraím vakti fyrst
athygli á þessu í Facebook-hópnum
Fullorðnir aðdáendur teiknimynda
þegar hann spurði: „Á ég að trúa
því að Bob's Burgers myndin verði
ekki sýnd á Íslandi? Eru ekki nógu
margir aðdáendur í þessum hóp til
að skipuleggja sérsýningu?“
Hann hafði í framhaldinu sam-
band við Samfilm þar sem hann
var upplýstur um að almennar sýn-
ingar hérna strönduðu á því að hjá
Disney og 20th Century Films þyki
ekki taka því að dreifa henni í öllum
löndum Evrópu.
„En Sambíóin eru að vinna í því
að fá leyfi til að sýna hana á nokkr-
um sýningum,“ skrifar Markús Már
í stuttri skýrslu í hópnum. Íslenskir
fastakúnnar Bob´s Burgers lifa því
enn í voninni um að úr rætist og
Markús Már gengur að því sem
gefnu að þau sem bíði spennt eftir
því með honum og sonum hans að
sjá myndina, muni ekki setja það
fyrir sig að hún verði væntanlega
sýnd ótextuð, takist Sambíóunum
að liðka fyrir sérsýningum. n
Borgarafólk í bíóbobba
Enn eru bundnar vonir við að hægt sé að koma Bob og félögum í bíó á Íslandi.
Eyjanótt eftir tónlistarkon-
una Klöru Elias er þjóðhátíð-
arlagið í ár, en í því segist hún
hafa reynt að fanga bæði for-
tíðarþrá og eftirvæntinguna
eftir því að fá loksins að koma
aftur saman í Herjólfsdal.
toti@frettabladid.is
„Þau hjá Þjóðhátíðarnefnd höfðu
bara samband fyrr á árinu og spurðu
hvort ég vildi taka þetta verkefni að
mér,“ segir tónlistarkonan Klara Ósk
Elíasdóttir, Klara Elias, sem semur og
syngur Þjóðhátíðarlagið Eyjanótt.
„Og ég sagði náttúrulega að sjálf-
sögðu bara já, takk.“
Þjóðhátíð í Eyjum á sér tæplega 90
ára sögu og Klara verður með Eyja-
nótt aðeins önnur konan til þess að
semja og syngja lag hátíðarinnar,
en Ragga Gísla var sú fyrsta með
Sjáumst þar, frá 2017.
„Þetta mikill heiður og ég er þakk-
lát fyrir að fá þetta tækifæri,“ segir
Klara sem fékk, eins og svo oft áður,
Ölmu Guðmundsdóttur, til liðs við
sig.
„Ég sem lagið með henni Ölmu en
ég vinn náttúrulega bara langmest
með henni. Við eigum ótrúlega
merkilegt vinnusamband þannig
að ég bara elska að semja með henni
og mér fannst líka frábært að fá aðra
konu með mér í þetta,“ segir Klara,
um stöllu sína úr hinu fornfræga
stúlknabandi Nylon.
Söguleg endurkoma
„Mér fannst bara ekki annað koma
til greina en að gera lagið með sama
fólki og ég gerði lagið Heim,“ segir
Klara um lag þeirra Ölmu, sem hún
gaf út í fyrrasumar og varð einhvers
konar óformlegt Þjóðhátíðarlag.
„Heim var ekki samið sem Þjóð-
hátíðarlag en kom bara þannig frá
okkur að það varð að Þjóðhátíðar-
lagi. En Eyjanótt var samið með Þjóð-
hátíð í huga og varð eiginlega bara
til fljótlega eftir að ég var beðin um
þetta og ég var náttúrlega bara með
ákveðna hugmynd um hvernig ég
vildi að það væri.“ Klara segist hafa
viljað reyna að grípa nostalgíuna og
stemninguna sem einkenna Þjóð-
hátíð inn í lagið. „Og ná þeirri upp-
lifunartilfinningu sem mér finnst
vera einkennandi fyrir hátíðina í ár.
Það hefur náttúrlega ekki verið
Þjóðhátíð í tvö ár og þótt hún hafi
verið söguleg í fyrra þar sem við
vorum í Brekkusöngnum fyrir
tómum dal þá verður þetta svo mikil
endurkoma hjá hátíðinni í ár sem
gerir hana ennþá stærri og merki-
legri. Ég held að mér hafi tekist það
að ná að setja þessa tilfinningu og
þessa gleði í lagið. Þessa Þjóðhátíðar-
stemningu.“
Eyjanótt kemur út 7. júní og
myndband, sem Klara tekur upp úti
í Eyjum í vikunni, fylgir í kjölfarið
þremur dögum síðar.
Síðasta nóttin
Klara talar um „galið tímabil“ þegar
hún lýsir ótrúlegum áhrifum heims-
faraldursins á líf og líðan fólks. „Ég
held að þetta hafi verið svolítið
svona heimsenda móment sem hefur
fengið mann til að endurskoða hlut-
ina rosalega.
Ég held að þessar tilfinningar, sem
við erum búin að fara í gegnum öll
saman síðustu tvö ár, kristallist svo-
lítið í texta lagsins. Þar kemur fram
að ef þetta er síðasta nóttin sem við
eigum hér þá er mér sama svo lengi
sem ég er með þér. Þetta lýsir laginu
svolítið og þessari eftirvæntingu eftir
því að mega koma saman og vera
saman á þessari sögulegu Þjóðhátíð.“
Klara mun að sjálfsögðu fylgja
laginu alla leið og syngja það í Herj-
ólfsdal, á hátíð sem verður ekki síst
söguleg fyrir hana sjálfa. „Ég get sko
ekki beðið eftir því að vera í Dalnum
fullum af fólki,“ segir Klara, sem söng
í fyrsta skipti á mannlausri Þjóðhátíð
í fyrra.
„Ég hafði aldrei komið fram á
Þjóðhátíð. Ekki einu sinni þegar ég
var að koma sem mest fram á Nylon
tímanum. Þá vorum við bara svo
bókaðar annars staðar um landið að
við náðum aldrei til Eyja, þannig að
þegar ég söng í fyrsta skipti í Eyjum
var það fyrir tómum Dalnum þann-
ig að nú hlakka ég til að syngja fyrir
hann fullan.“ n
Eyjanótt nostalgíu og gleði
Klara Elias stökk
á tækifærið sem
hún fékk til að
semja þjóð
hátíðarlagið
fyrir sögulega
endurkomu
hátíðina í ár,
enda aðeins
önnur konan á
tæpum 90 árum
sem fengin er til
verksins.
MYND/STEPHANIE
MOSER
Ef þetta er síðasta
nóttin sem við eigum
hér þá er mér sama svo
lengi sem ég er með þér.
Eyjanótt
eftir Klöru Elias
kemur út 7. júní.