Fréttablaðið - 31.05.2022, Síða 6

Fréttablaðið - 31.05.2022, Síða 6
Trans maður gagnrýnir seina­ gang í heilbrigðiskerfinu, en hann er búinn að bíða í tvö og hálft ár eftir kynleiðréttingar­ aðgerð. Hann segir óboðlegt að trans fólk, sem þegar sé svo jaðarsettur hópur, komist ekki í lífsnauðsynlegar aðgerðir. emd@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL „Ég er búinn að vera á biðlista síðan 2019 og er allt­ af að halda að ég sé að fara í aðgerð bráðum. Ég er alltaf að hugsa að það hljóti að fara að koma að mér. Svo þegar ég hringdi á Landspítalann í síðustu viku var mér sagt að ég væri á biðlista, en ekki væri hægt að gefa mér svar um nákvæmlega hvenær ég fengi að fara í aðgerð. Það yrði þó ekki fyrir sumarið. Mér var bara sagt að tékka aftur á stöðunni í haust. Ég veit í raun ekkert hvar á listanum ég er staddur eða hversu lengi ég þarf að bíða. Það vantar svo skýrar línur í þessu,“ segir Snævar Óðinn Pálsson. Meðalbiðtími eftir kynleiðrétt­ ingaraðgerð hefur lengst mikið síð­ ustu þrjú árin, eða um rúmlega 24 mánuði. Í svari Willums Þórs Þórs­ sonar heilbrigðisráðherra í febrúar síðastliðnum, við fyrirspurn Evu Daggar Davíðsdóttur þingmanns Vinstri grænna, um biðtíma vegna kynleiðréttingaraðgerða, var bið­ tíminn 6,6 mánuðir árið 2019. Árið 2020 hafði biðtíminn lengst í 14,6 mánuði og árið 2021 var biðtíminn orðinn 31,1 mánuður. Snævar segir slíka bið mjög erfiða fyrir fólk í sinni stöðu, þá sérstak­ lega þegar kemur að andlegri heilsu. „Ég er í endurhæfingu eins og er uppi á geðdeild út af kvíða. Ég hætti að vinna í fyrra, af því ég fékk svo mikinn kvíða og þunglyndi og bara réði ekki við lífið. Og svo er þessi bið að bætast ofan á það,“ segir Snævar, og bætir við að þrátt fyrir að endur­ hæfingin reynist honum mjög vel og honum líði almennt betur sé staðan samt sem áður erfið. „Það er bara svo vont að fá engin svör,“ segir Snævar. Kynleiðréttingarferli Snævars hófst árið 2015 og hefur hann farið í fimm aðgerðir. Aðgerð sem hann bíður eftir verður því sú sjötta. „Þetta er svo mikilvægt fyrir mig og mitt sálarlíf að ég klári þessa síðustu aðgerð. Þetta verður loka­ hnykkurinn í áttina að því að verða heill en ekki hálfkláraður. Ég vissi alveg þegar ég byrjaði í þessu að þetta yrðu nokkur ár, en ég bjóst ekki við að þurfa að bíða svona ofsa­ lega lengi eftir einni aðgerð,“ segir Snævar. Þetta sé þó staða margra í hans stöðu. „Við erum svo jaðarsettur hópur að það þarf lítið til þess að við lend­ um undir í samfélaginu. Það að við komumst ekki í aðgerðir sem eru lífsnauðsynlegar er náttúrulega bara hræðileg staða,“ segir Snævar. n Segir biðtíma eftir aðgerð óboðlegan Snævar segir það vont að fá engin svör varðandi stöðu sína á biðlista eftir kynleið- réttingaraðgerð, en hann hefur verið á listanum í tvö og hálft ár. MYND/AÐSEND Þetta verður loka- hnykkurinn í áttina að því að verða heill en ekki hálfkláraður. Snævar Óðinn Pálsson The largest commercial fishing exhibition in the North Íslenska sjávarútvegssýningin nær til allra þátta nútímalegs sjávarútvegs & Awards 13th IN PERSON l ONLINE 20 228 10 TO 2022 Smárinn Kópavogur Iceland Official Logistics Company: Organiser: Official International Magazine: WORLDFISHING SINCE 1952& AQUACULTURE Official Icelandic Publication: #2022Icefish Visit: Icefish.is Tel: +44 1329 825335 Email: info@Icefish.is Official Logistics Company: _Icefish Visitor Information 2022_99x200.indd 1 19/05/2022 13:56 bth@frettabladid.is NEYTENDUR „Við höfum aldrei séð svona tölu í krónum og aurum,“ segir Runólfur Ólafsson, fram­ kvæmdastjóri FÍB. Lítrinn af bensíni stóð í tæpri 321 krónu á þjónustustöð N1 í Reykja­ vík við Hringbraut í gær. Dýrastur var dropinn í Hrauneyjum, 325.80 krónur. Lægsta almenna verð var að jafnaði 312­314 krónur. Heimsmarkaðsverð á jarðefna­ eldsneyti hefur meira en tvöfaldast á einu ári. Verðbólgan er að miklu leyti rakin til innrásar Rússa í Úkra­ ínu. Kostnaðarverð á eldsneytis­ lítra er nú á Evrópumarkaði um 146 krónur. Fyrir ári kostaði lítrinn undir 70 krónum. Fyrir Íslendinga kemur þessi þróun sér mjög illa, þar sem skattar slaga upp í 50 prósent af verði hvers lítra. Runólfur segir að ástandið bitni mest á þeim sem búa í dreif­ býli og eigi um lengstan veg að fara. „Krafan er að fá tímabundna niðurfellingu vörugjalds bensíns og lækkun á olíugjaldi. Þetta upp­ sprengda verð hefur ekki bara áhrif á af komu fólks og vísitölu heldur margfaldast þetta hressilega út í allt vöruverð,“ segir Runólfur. FÍB hefur skorað á stjórnvöld að koma til móts við almenning með skattalækkun. Í fjármálaáætlun er áformuð breyting á sköttum ökutækja, meðal annars vegna orkuskipta. Að sögn Runólfs hefur félagið óskað eftir aðkomu, án árangurs. n Hæsta bensínverð Íslandssögunnar Hún var ekki frýnileg fyrir veskið, krónutalan sem við blasti hjá þeim sem þurftu að taka bensín hjá N1 á Hringbraut í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR birnadrofn@frettabladid.is SAMGÖNGUR Þátttakendur í átak­ inu Hjólað í vinnuna fóru 371.268 kílómetra gangandi, hjólandi og hlaupandi til og frá vinnu í ár, það jafngildir rúmlega 277 hringjum í kringum Ísland. Átakið var haldið í tuttugasta sinn og stóð yfir dagana 4. til 24. maí. Íþrótta­ og Ólympíusam­ bandið stendur fyrir átakinu til að vekja athygli á heilsusamlegum ferðamáta. 5.319 þátttakendur voru í Hjólað í vinnuna í ár. Langf lestir þeirra hjóluðu í vinnuna, eða 88 prósent. n Hjóluðu á þriðja hundrað hringja kringum landið Langflestir, eða 88 prósent allra þátttakenda, hjóluðu í vinnuna. kristinnhaukur@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Í könnun og grein­ ingu gerðri af breska Póstinum kemur í ljós að Ísland er dýrasti ferðamannastaðurinn sem Bretar fara almennt til. Annars vegar voru 2.000 ferðamenn spurðir um hvernig þeir upplifðu kostnað á 26 stöðum. Hins vegar var gerður verð­ samanburður á varningi. Norðurlöndin í heild höfnuðu á botninum hjá ferðamönnum. Aðeins 42 prósent voru sátt við það sem þau fengu fyrir peninginn. Efst á listanum var Spánn þar sem 92 prósent voru sátt við það sem þau borguðu fyrir. Þar á eftir kom Grikkland, Portú­ gal, Tyrkland og Mexíkó en ferða­ mennirnir töldu Frakkland og Ítalíu of dýr, sem og furstadæmið Dúbaí. Þegar gerður var verðsaman­ burður á körfu sem inniheldur meðal annars sólarvörn, flugnafælu, kvöldmat, kaffibolla, bjórflösku og kaffi kom í ljós að Reykjavík var langdýrasti staðurinn. Þar kostuðu vörurnar 186 pund eða tæpar 30 þúsund krónur. Besta verðið var hins vegar að finna á Marmaris í Tyrklandi, aðeins rúmar 30 evrur, eða rúmlega 4 þúsund krónur. n Ísland dýrasta ferðamannalandið Bretar eru misánægðir með verðlagið á Íslandi. MYND/ÓTTAR Þátttakendur fóru samanlagt 371.268 kílómetra. 6 Fréttir 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.