Fréttablaðið - 31.05.2022, Page 8

Fréttablaðið - 31.05.2022, Page 8
adalheidur@frettabladid.is KOSNINGAR Áform um breytingar á kosningalögum eru nú til kynn- ingar í samráðsgátt stjórnvalda. Kosningalöggjöfin er ný og nýaf- staðnar sveitarstjórnarkosningar voru fyrstu kosningarnar sem lög- gjöfin gilti um. Meðal þess sem til endurskoðunar er, eru ákvæði um hæfi kjörstjórna og kjörstjóra, en ákvæðið leiddi til þess að í mörgum, einkum minni, sveitarfélögunum voru kjörstjórnarmenn vanhæfir og þurftu að víkja úr kjörstjórnum og oft og tíðum gekk erfiðlega að manna kjörstjórnir. Þá er áformað að endurskoða ýmis ákvæði varðandi utankjör- f undaratk væðag reiðslu , bæði varðandi upphafsdag hennar og opnunartíma á kjördag. Einnig á að skoða hvort breyta eigi ákvæðum um fjölda atkvæðakassa hjá emb- ættum sýslumanna og um flutning þeirra til yfirkjörstjórna. Ákvæði um sendiumslög utan- kjörfundaratkvæða verða einnig endurskoðuð en þau eru aðeins merkt með kennitölu og kjördeild. Mikillar óánægju gætti með þetta hjá kjörstjórnum. Nauðsynlegt væri að bæði kæmi fram nafn og heim- ilisfang kjósanda, til að unnt væri að forflokka utankjörfundaratkvæði niður á kjördeildir og innan kjör- deilda. Var það mat margra yfirkjör- stjórna að þetta kallaði á mun meiri vinnu og yki villuhættu. Þá er talið nauðsynlegt að skoða samspil kosningalaga við lög um starfsemi stjórnmálasamtaka. Tekið er fram í kynningarskjali að upptalning þess sem taka þurfi til skoðunar sé ekki tæmandi, heldur sé um að ræða þau atriði sem upp komu við undirbúning og fram- kvæmd kosninganna í maí. Fara þurfi yfir lögin í heild, styrkja laga- heimildir og breyta ákvæðum ef til- efni er til. n Víkka hæfisreglur kjörstjórnarfólks Jón Gunnarsson vill breyta kosningalögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Lítið er nú um hinar þekktu mýflugur í Mývatnssveit. Hlauparar í Mývatnsmara- þoni helgarinnar urðu þó varir við mikið af stórum býflugum. Líffræðingur segir að lífríkið sé í sögulegri lægð. benediktboas@frettabladid.is LÍFRÍKI „Ég var nú bara að henda einni út í þessum töluðu orðum,“ segir Árni Einarsson, líffræðingur og forstöðumaður Náttúrurann- sóknastöðvarinnar við Mývatn (RAMÝ), um stórar hunangsflugur sem sjást víða í Mývatnssveitinni þessa dagana. Mývatnsmaraþonið var haldið um helgina í blíðskaparveðri og tóku hlauparar eftir því að afskap- lega lítið var af hinni þekktu mýflugu en býflugurnar voru víða og mjög stórar. Árni segir að býflugurnar komi á vorin þegar víðirinn blómstri en býflugurnar í ár séu margar og stór- ar. „Það er mikið af þessum stóru hunangsflugum eða humlum eins og þær eru kallaðar þessa dagana. Þær voru óvenju snemma að láta á sér kræla í vor og þær eru óvenju margar. Þær koma inn í húsin og skoða sig um mörgum til ama. Við erum að sjá þetta hér hjá okkur hjá RAMÝ á Skútustöðum, þó það séu ekki til neinar mælingar núna um þetta því þær koma eftir á. Við erum með f lugnagildrur þar sem maður sér eftiráskýringuna,“ segir Árni sem segir að ástæðan fyrir þessu sé ekki þekkt. Mývatn er, eins og nafnið gefur til kynna, þekkt fyrir mýflugurnar en Árni segir einfaldlega að það sé ekkert af mýi í sveitinni þessa dag- ana. „Það er ekkert mý í botninum annað árið í röð. Það er reyndar leiðangur úti á vatni núna en það er mjög lítið. Þetta er ein af þessum lægðum í lífríkinu,“ segir hann. Þegar lífríkið í Mývatni er í lág- marki hefur það áhrif á allt annað, hvort sem það er fugl eða fiskur. „Það hefur áhrif á allt. Silunga- seiðin komast ekki upp og fuglinn kemur ekki upp ungum. Botninn var trúlega síðasta sumar en svo fer þetta aftur upp hægt og bítandi ef að líkum lætur,“ segir Árni. Líf r ík ið sveif last og geng- ur í takt segir Árni og gerist það á sjö til níu ára fresti að líf- ríkið dettur niður. Ekki er hægt að kenna veðurfari um, því Árni og hans teymi hafa ekki fundið nein tengsl við hitastig eða sólarstundir eða neitt slíkt. „Það eru kannski einhver tengsl en ekki eitthvað sem við festum hendur á. Þetta gengur í takt á sjö til níu ára fresti og við vitum ekki hvað það er sem orsakar,“ segir Árni. n Mývatn laust við mýfluguna en mikið um stórar býflugur Frá Mývatns- maraþoninu um helgina þar sem hlauparar urðu varir við stórar býflugur en ekkert mý – sem telst til tíðinda í Mývatnssveit. FRÉTTABLAÐIÐ/ BENEDIKT BÓAS Stórar býflugur hafa yfirtekið Mývatn. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Árni Einarsson, forstöðumaður RAMÝ Skeifunni 6 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4450 | everest.is | everest@everest.is Hjóladagar 30% afsláttur af racerum 20% afsláttur af hybrid hjólum *Gildir til 5.júní Evrópuverð HEAD X-Rubi Cross 28” Verð áður: 97.995,- Verð nú: 78.396,- Vökva-diskabremsur 30 gírar Sjálfvirkur opnunarbúnaður og snertilausir rofar frá Þýsk gæðavara. Snertilausir rofar Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is kristinnhaukur@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Biðtíminn eftir ADHD-greiningu er 2,8 ár, sam- kvæmt svari Willums Þór Þórssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ernu Bjarnadóttur, varaþingmanns Miðflokksins. Í dag eru 1.187 ein- staklingar í bið eftir fullu greining- arferli hjá ADHD-geðheilsuteymi fullorðinna, sem staðsett er hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Viðmiðunarmörk Landlæknis um ásættanlegan biðtíma eru 30 dagar eftir skoðun hjá sérfræðingi og 90 dagar eftir aðgerð eða meðferð. Ástand ADHD-greininga er því afar slæmt. Samkvæmt svarinu getur teymið lokið við fullt greiningarferli hjá allt að 30 einstaklingum í mánuði sem þýðir að hægt væri að vinna upp núverandi biðlista á rúmum þremur árum, að því gefnu að enginn nýr myndi bætast á hann. Hafa ber í huga að í september síðastliðnum voru 650 manns á biðlista og hefur hann því lengst um 82 prósent á innan við einu ári. Vandinn er ekki eingöngu bund- inn við fullorðna. Í síðasta mánuði greindi Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna, frá því að um 800 börn væru á biðlista eftir ADHD-greiningu. Margfalda þyrfti fjármögnun til málaflokksins til að vinna á biðlistunum og koma ástandinu í ásættanlegt horf. n ADHD-biðlistinn lengist hratt Samkvæmt svari Willums er bið- tíminn núna 2,8 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Frá september til maí hefur biðlistinn lengst úr 650 í tæplega 1.200. 8 Fréttir 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.