Fréttablaðið - 31.05.2022, Síða 36
Fyrir þá
sem hafa
sótt um að
búa hérna
vil ég segja
að þetta er
erfitt en
virkilega
þess virði.
Ég tók
þennan
erfiða tíma
og ákvað
að búa til
um hann
brandara,
til þess að
hlæja að
þessu öllu
saman.
Uppistandarinn Dan Nava
flutti hingað frá Venesúela
fyrir tæpum sex árum og
hefur farið með gamanmál
undanfarin tvö ár. Hann
tekur nú sviðið með sýningu
sinni Becoming Icelandic
en helsti innblástur hans er
aðlögun að landi og þjóð og
Útlendingastofnun.
ragnarjon@frettabladid.is
Grafíski hönnuðurinn Dan Nava
kemur frá Venesúela og hefur búið
á Íslandi í tæp sex ár. Hingað kom
hann þegar honum bauðst mark-
aðsstjórastarf hjá góðgerðarsam-
tökum en er byrjaður að hasla sér
völl sem uppistandsgrínari.
„Ég gat nýtt menntun mína þegar
ég kom hingað fyrst en þurfti síðan
að skipta um starf og er búinn að
vinna á leikskóla frá 2018 vegna
þess að ég hef lítið fengið að gera í
sérgrein minni,“ segir Dan og bætir
við að hann hafi nú lokið masters-
gráðu og bíði eftir leyfisbréfi.
Á meðan á öllu þessu stóð segist
Dan hafa fundið þörf fyrir að gera
eitthvað skapandi. „Ég er mjög
skapandi manneskja og ég sá að það
var hægt að skrá sig á uppstands-
námskeið. Þar uppgötvaði ég að ég
gæti gert þetta og að ég hefði mjög
gaman af því að fara upp á svið og
semja brandara og svona.“
Fann gríntaugina á Íslandi
„Ég bara uppgötvaði þennan hæfi-
leika þegar ég var á Íslandi og byrj-
aði í uppistandinu af því að fremur
erfitt var að finna starf sem grafísk-
ur hönnuður á Íslandi,“ segir hann.
Dan bendir á að hann hafi í fyrra
tekið þátt í sýningunni Ident ity
Crisis í samstarfi við aðra en sýning-
in Becoming Icelandic sé sú fyrsta
sem hann setur upp einn. „Identity
Crisis verður sýnd einu sinni enn á
þessu ári en einstaklingssýningin
mín verður sýnd tvisvar.“
Útlendingastofnun er brandari
Hver er innblásturinn að þessari
sýningu og um hvað fjallar hún?
„Sýningin er að miklu leyti um
reynslu mína sem innf lytjanda
á Íslandi. Það eru tvö ár síðan ég
byrjaði að sækja um ríkisborgara-
rétt á Íslandi og þess vegna heitir
sýningin „Becoming Icelandic“. En
hún fjallar líka um hvernig það var
að aðlagast í nýrri menningu og
Útlendingastofnun öflugur brandarabanki
Dan Nava sækir
innblástur í
aðlögun sína að
landi og þjóð en
samskipti hans
við Útlendinga-
stofnun eru
honum einnig
yrkisefni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
nýju tungumáli. Þetta fjallar líka
um það hvernig það var að fást við
Útlendingastofnun og hvernig ég
upplifði stjórnmálin og umræðuna
á Íslandi.“
Hvernig myndir þú seg ja að
reynsla þín af ferlinu með Útlend-
ingastofnun hefði verið ?
„Það hefur alla vega gefið mér nóg
af efni til þess að búa til brandara.
Það ætti ekki að vera neitt leyndar-
mál að þetta er mjög erfitt ferli. En
ég tók þennan erfiða tíma og ákvað
að búa til um hann brandara, til
þess að hlæja að þessu öllu saman.“
Finnst þér Íslendingar gestrisnir?
„Já, aðallega, en auðvitað hefur
þetta verið upp og niður, en jú sér-
staklega í nýju vinnunni minni
hérna á leik skólanum. Þegar
ég byrjaði talaði ég ekki mikla
íslensku og mér fannst gott að
fólkið á leikskólanum var ekki að
skipta mikið yfir á ensku. Þau voru
mjög þolinmóð og það hjálpaði mér
mikið. Í raun myndi ég segja að ef
ég væri ekki að vinna á leikskóla þá
myndi ég ekki tala íslensku eins vel
og ég tala hana núna.“
Myndir þú segja að íslenskur
húmor væri svipaður þeim Venesú-
elska?
„Húmor í Venesúela er yf ir-
leitt svolítið dökkur. Vegna þess
að að aðstæður þar eru erfiðar.
Til dæmis ef ég er að tala við ein-
hvern í Venesúela þá getur til
dæmis komið fram að þeim hafi
verið rænt fyrr um daginn þegar
þau voru að labba úti á götu. Þá
segir maður: „Núú, en er ekki allt
í lagi?“ „Jú, að minnsta kosti var ég
ekki skotinn,“ og svo hlæja báðir:
„Hahaha.“
Hefur þú einhverjar ráðleggingar
til þeirra sem langar að f lytja til
Íslands?
„Don’t do it,“ segir hann og hlær.
„Annars er mín reynsla fremur
sérstök. Mikið af fólki sem er að
komast inn til Íslands, til dæmis
frá Venesúela, er að koma hingað
sem f lóttamenn yfirleitt. En mín
reynsla var þannig að ég gat komið
hingað vegna atvinnu. Ég hugsa
stundum að ég hafi sloppið vel í
gegnum kerfið. En fyrir þá sem
hafa sótt um að búa hérna vil ég
segja að þetta er erfitt en er virki-
lega þess virði.“
Dan Nava sýnir Becoming Ice-
land ic í tvígang á Húrra eftir rúman
mánuð, dagana 30. júní og 2. júlí.
Sýningin fer fram á ensku. n
Hvernig finnst þér Obi-Wan
fara af stað?
Hafsteinn
Sæmundsson
hlaðvarpsþátta-
stjórnandi
„Á Star Wars
kannski bara
heima í kvik-
myndahúsum?
Það var það
fyrsta sem ég hugsaði eftir að
ég horfði á fyrstu tvo þættina af
Obi-Wan Kenobi-seríunni. Ég var
hrikalega spenntur fyrir henni en
því miður voru þessir tveir þættir
ekki að hitta í mark hjá mér,“
segir Hafsteinn, sem reynir ekki
að dylja vonbrigði sín með fyrstu
tvo þættina í hinni langþráðu Star
Wars-seríu sem Disney+ streymdi
á föstudaginn.
„Það er eitt atriði í fyrsta
þættinum sem er mögulega asna-
legasta atriði sem ég hef nokkurn
tímann séð í sjónvarpsþætti. Þrír
fullorðnir menn eru að elta litla tíu
ára stelpu og þeir þurfa nauðsyn-
lega að grípa hana. Hún nær samt
einhvern veginn að flýja undan
þeim og úr verður eltingaleikur
sem er svo illa settur saman og
svo ótrúlegur að ég trúði varla
mínum eigin augum.
Þetta er allt eitthvað svo stirt,
illa leikið og kjánalegt. Jafnvel
barnalegt á köflum. Fyrir utan
flottar tölvubrellur þá virkar þetta
eins og einhver ódýr Sci-fi-sería.
Vondu kallarnir eru ekki ógn-
vekjandi. Þau eru bara öll frekar
asnaleg.
Það gerast líka hlutir í seríunni
sem eru vægast sagt furðulegir.
Án þess að fara út í spoilera, þá er
mjög skrítið hvernig handritshöf-
undarnir fá Obi-Wan til að taka
þátt í þessari sögu. Vonandi tekur
sagan góðan kipp þegar Darth
Vader mætir á svæðið og vonandi
nær hann að rífa upp gæðin.“ n
Bíóblaðrari hundóánægður með Obi-Wan Kenobi
n Lykilspurningin
Ewan Mc Gregor snýr aftur sem Obi
Wan Kenobi en nú í sjónvarpi.
24 Lífið 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR