Fréttablaðið - 22.06.2022, Qupperneq 2
hjolhysi.com
Allar nánari upplýsingar og pantanir í síma 863 4449
hjolhysi.com, kriben@simnet.is, www.facebook.com/hjolhysi
Powrtouch Mover
169.000
Powrtouch Freedom
- Fyrir einn öxul
- Handvirkur
13.000
Verð 197.990 kr.
Powrtouch Evolution
- Drægni 2800 kg
169.000
Hágæða hjólhýsadrif
Á frábæru verði
- Sjálfvirkur
169.000
Powrtouch Evolution
- Fyrir einn öxul
- Handvirkur
- 2800 kg
Verð 215.990 kr.
Vinsælasti Mover
framleiðandinn
í Bretlandi
Verð 240.990 kr.
Kvartanir farþega í innan
landsflugi hafa verið tíðar
undanfarið. SMS sent á
rangan viðtakanda. Ice
landair segir í lagi með fjögur
af hverjum fimm flugum.
bth@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Kona á Akureyri, far
þegi sem átti bókað í innanlands
flug til Reykjavíkur fyrir nokkrum
dögum, fékk SMS eldsnemma morg
uns þar sem Icelandair tilkynnti að
flugi hennar hefði verið flýtt. Konan
spratt fram úr og gerði miklar ráð
stafanir til að ná f luginu. Þegar á
Akureyrarvöll var komið var ekki
lífsmark að sjá í innanlandsfluginu.
Við athugun kom á daginn að
konunni hafði vegna mistaka verið
send skilaboð sem áttu að fara á far
þega sem ferðuðust þennan morgun
frá Reykjavík til Akureyrar.
Guðni Sigurðsson, starfsmaður
á samskiptasviði Icelandair, segir
að tilvikið verði rannsakað. Hann
segist telja að svona slys séu mjög
sjaldgæf.
Margar óánægjusögur úr innan
landsf luginu hafa verið sagðar á
Facebooksíðunni Dýrt inannlands
flug – þín upplifun. Þar segir meðal
annars að auk sögulegrar dýrtíðar
fargjalda hafi mörg flug verið felld
niður síðustu vikur og tíðar breyt
ingar, f lugi ýmist flýtt eða seinkað.
Sem dæmi voru 14. júní síðastliðinn
gerðar þrjár breytingar á flugi milli
Egilsstaða og Reykjavíkur.
Guðni staðfestir að óþægindi
tengd breytingum á flugi hafi verið
í óvenjumiklum mæli síðustu vikur
en sjaldgæft sé að f lug séu felld
niður. Félagið hafi þurft að nota
minni vélar en ella sem hafi sett
kerfið ögn úr skorðum. Þá hafi orðið
farþegafjölgun í innanlandsf lug
inu eftir samdrátt áður og sé nú svo
komið að umferð sé að verða eins
mikil og hún var árið 2019.
Guðni segir að tölfræðilegar upp
lýsingar liggi fyrir um flugið, sem
sýni að í apríl til júní hafi 79% flug
ferða verið á réttum tíma. Aðeins
hafi þurft að aflýsa 3% ferða. Með
öðrum orðum hafi um fjögur inn
anlandsflug af hverjum fimm verið
í lagi.
„Veður hefur verið helsta ástæða
raskana,“ segir Guðni.
Einnig segir Guðni að viðhalds
framkvæmdir á flugvöllum eigi sinn
þátt. Tvær af Q400 f lugvélunum,
sem félagið notar í innanlandsflugi,
hafi þurft að fara í reglubundið við
hald á svipuðum tíma.
„Þetta viðhald tók lengri tíma en
búist var við og meðan á því stóð
þurfti því að setja aðrar minni vélar
á þau f lug sem áætluð voru,“ segir
Guðni.
Þá segir Guðni að umfang hafi
aukist vegna aukins fjölda Íslend
inga í fluginu, vegna fjölgunar ferða
manna á Íslandi og síðast en ekki
síst vegna aukinnar atvinnustarf
semi, til dæmis stórra kvikmynda
verkefna á landsbyggðinni.
„Nú er staðan orðin mun betri og
báðar Q400 vélarnar komnar í notk
un á ný. Því gerum við ráð fyrir að
áætlunin innanlands ætti að ganga
vel á næstunni,“ segir Guðni. n
Fékk vitlaust SMS og mætti
alltof snemma út á flugvöll
Miklar kvartanir hafa orðið vegna vandræða í innanlandsflugi Icelandair
síðustu vikur. Ýmsir þættir hafa leitt til raskana en nú er allt á uppleið, að
sögn talsmanns félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Guðni Sigurðs-
son, samskipta-
sviði Icelandair.
Burst á Víkingsvelli
Víkingur sigraði í gær Levadia Tallin í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á Víkingsvelli. Víkingur heldur því áfram til hreins úrslitaleiks gegn Inter Club d‘Es-
caldes frá Andorra um sæti í undankeppni deildarinnar næsta föstudag. Staðan var 6-1 þegar Fréttablaðið fór í prentun og leik enn ólokið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
benediktboas@frettabladid.is
GARÐABÆR „Við viljum búa til heild
stæðan miðbæjarkjarna sem laðar
að íbúa, viðskiptavini, sterk fyrir
tæki og aðila sem eru að veita þjón
ustu. Að þetta verði góður og aðlað
andi staður til að koma og vera á,“
segir Sigríður Hulda Jónsdóttir, nýr
formaður undirbúningsnefndar um
uppbyggingu miðbæjar í Garðabæ,
sem samþykkt var á bæjarráðsfundi
bæjarins í gær.
Markmið nefndarinnar er að
vinna að undirbúningi þess að
fullgera aðlaðandi og heildstæðan
miðbæ á og í kringum Garðatorg.
Nefndin á að huga að heildarsýn
fyrir Garðatorgssvæðið, fram
kvæmdum og tengingum frá Hofs
stöðum auk nærliggjandi svæða,
gatna og stíga, þar sem markmiðið
er aðlaðandi umhverfi og miðbæjar
svæði sem virkar.
Stefnt er að því að nefndin skili af
sér fyrstu niðurstöðum um miðjan
október. n
Undirbúa nýjan
miðbæ í Garðabæ
Miðbær Garðabæjar fær andlitslyft-
ingu fyrr en síðar.FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
lovisa@frettabladid.is
ANDLÁT Alexandra Eldey,20 mán
aða gömul dóttir Birgittu Jeanne
Sigursteinsdóttur og Finnboga Darra
Guðmundssonar, lést úr bráðri heila
himnubólgu Í Madríd á Spáni síðast
liðinn laugardag.
Alexandra veiktist strax í fluginu
á leiðinni út þann 15. júní. Farið var
með hana á sjúkrahús þar sem hún
fór í rannsóknir og henni voru gefin
lyf. Hún fór að hressast og fengu for
eldrarnir leyfi til að fara með hana
heim undir morgun. Að kvöldi næsta
dags veiktist hún aftur og var hún þá
flutt á háskólasjúkrahúsið í Madríd.
Alexandra hafði að sögn Eddu
Sveinsdóttur, móðursystur hennar,
fengið allar ráðlagðar bólusetningar
og læknar og hjúkrunarfræðingar
hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð
til að bjarga henni, en að lítið sé hægt
að gera nái bakterían fótfestu.
Fjölskyldan óskar eftir næði til að
takast á við sorgina, en vinir hennar
og vandamenn hafa sett af stað söfn
un og hægt er að leggja fjölskyldunni
lið með því að leggja inn á eftirfar
andi reikning hjá Íslandsbanka: kt.
0201903029 053714104955. n
Lést úr heilahimnubólgu á Spáni
Alexandra Eldey var 20 mánaða.
2 Fréttir 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ