Fréttablaðið - 22.06.2022, Side 30

Fréttablaðið - 22.06.2022, Side 30
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ósk Bjarnadóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Eir, 3N, Grafarvogi, föstudaginn 10. júní. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 27. júní klukkan 13. Bjarnveig Hjörleifsdóttir Gunnar Ingvi Hrólfsson Hjördís Hjörleifsdóttir Þorsteinn Vilbergs Reynisson ömmubörn og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Magnús Gunnar Pálsson flugvirki, Bjarkavöllum 1A, Hafnarfirði, lést á Spáni laugardaginn 4. júní sl. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 27. júní kl. 13. Karl Óskar Magnússon Guðný Bjarnarsdóttir Þóra Margrét Karlsdóttir Patrekur Örn Gestsson Magnús Gunnar Karlsson Elskulegur bróðir okkar og mágur, Ásmundur Guðmundsson Gautlandi 21, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 16. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. júní klukkan 15. Steinunn Guðmundsdóttir Þengill Oddsson Magnús Guðmundsson Friðrikka Guðmundsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Lára Halla Jóhannesdóttir Látraströnd 24, lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunarheimilinu Seltjörn þann 9. júní. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju þann 23. júní kl. 11. Páll Sigurðarson Sigurður Pálsson Alda Pálsdóttir Jóhannes Pálsson Hyeyoung Kim barnabörn og barnabarnabörn. Jónsmessunæturgangan í Elliða- árdal fer fram næsta fimmtudag. Á þessari kynngimögnuðu töfra- nótt má búast við dularfullum uppákomum jurta og dýra. arnartomas@frettabladid.is Jónsmessunæturgangan í Elliðaár- dalnum er orðin rótgróin hefð fyrir alla þá sem vilja kynna sér dularmögnin sem leysast úr læðingi á þessari töfra- nóttu. Björk Bjarnadóttir umhverfis- og þjóðfræðingur sem hefur leitt gönguna undanfarin ár segist finna fyrir auknum áhuga Íslendinga á Jónsmessunni. „Fólk er almennt komið með mikinn áhuga á göngum sem tengjast þekkingu sem náttúran ber í sér,“ segir hún. „Þetta hefur aðallega verið eldra fólk og ungl- ingar, en fólk hefur líka verið að taka með sér tíu eða ellefu ára börn sem er allt í lagi því allir eru komnir í sumarfrí. Það mættu næstum hundrað manns í fyrra og það var rosa gaman að fræða fólk um fornar sögur og náttúruna á sama tíma.“ Talsmaður jurtanna Björk segir Jónsmessu vera mikla töfra- nótt sem tengist góðum vættum. „Þetta er björt nótt og því geta engar slæmar verur verið á ferli,“ segir hún. „Það er þessi kraftur í náttúrunni sem nær hæstu hæðum þegar birtan er sem mest áður en myrkrið tekur við. Þetta er hápunktur birtunnar og kraftanna sem búa í náttúrunni.“ Áður fyrr var mikil trú á Íslandi á þann lækningamátt í plöntunum sem tína má á Jónsmessu. „Það er lækningamáttur í plöntunum og það er lækningamáttur í dögginni, bæði fyrir andlegan og líkamlegan bata,“ útskýrir Björk, sem segir að plönturnar búi yfir mörgum sögum. „Ég kalla mig sögumann plantnanna. Ég tala fyrir jurtirnar, bæði um hvaða sögur og þjóð- trú býr í þeim og hvort það sé lækninga- máttur tengdur þeim.“ Bál á Jónsmessu eru algeng hefð erlendis en ekki á Íslandi fyrr en í seinni tíð. „Það var bæði vegna þess að nóttin var svo björt en líka vegna þess að það vantaði eldivið.“ Brönugras og töfrasteinar Af jurtunum er brönugrasið í sérstöku uppáhaldi hjá sagnamanni plantnanna. „Það er grasið hennar Brönu, líka kallað elskugras, en rótin á því líkist tveimur eistum,“ segir Björk. „Þú leggur rótina undir kodda þess sem þú vilt að elskir þig og næsta morgun verður við- komandi fullur af ást til þín.“ Þá er Jónsmessan líka tími til að leita að töfrasteinum. „Þeir fljóta upp í tjörnum, þar á meðal í tjörn upp við Tindastól í Skagafirði þar sem steinarnir hoppa og skoppa og eru óskasteinar. Maður þarf að fara upp að tjörninni um miðnætti til að veiða þá.“ Dýrin fá líka útrás um hátíðina og eiga kýr það til að fara að tala, eins og frægt er. Þá synda selirnir líka í land, fella hamina og dansa í fjörunni. „Fiskimenn vildu ekki leggja net um þessa nóttu því þeir voru hræddir við að veiða selmeyjar því fólk taldi að selirnir væru manneskjur í álögum.“ Gangan hefst klukkan 22.30 á fimmtu- dag við Árbæjarsafn. Björk hvetur fólk eindregið til að mæta með, eða nýta nóttina að minnsta kosti til að fara upp í fjall, finna sér mjúka laut og velta sér nakið upp úr dögginni á miðnætti. n Elskugras, töfrasteinar og selmeyjar á Jónsmessunótt Sjómenn vildu ekki leggja út net á Jónsmessu af ótta við að veiða upp selmeyjar. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM Brönugrasið (Dactylorhiza maculata) gæti hæglega sett Tinder á hausinn. Lyfjagras (Pinguicula vulgaris) er ein af þremur plöntum á Íslandi sem nærast á litlum flugum. Björk hefur leitt gönguna undanfarin ár. 168 f.Kr. Rómverjar sigra Makedóníumenn í orrustunni við Pydna. 1633 Kaþólska kirkjan neyðir Galíleó Galílei til að afneita sólmiðjukenningunni. 1815 Napóleon Bónaparte Frakkakeisari segir af sér. Fjögurra ára sonur hans, Napóleon II., er keisari í tvær vikur. 1906 Sænski fáninn er tekinn í notkun. 1911 Georg fimmti er krýndur konungur Bretlands. 1939 Íslenskt hitamet er sett á Teigarhorni í Berufirði. Hitinn mælist 30,5 °C. 1941 Þýskaland ræðst inn í Sovétríkin í seinni heimsstyrj- öldinni. 1970 Led Zeppelin leikur á tónleikum í Laugardalshöll. 1986 Knattspyrnugoðið Diego Maradona skorar mark með hendi („hönd guðs“) og síðan annað með því að rekja boltann fram hjá öllum leik- mönnum enska liðsins í leik gegn Englandi á heims- meistaramóti í knattspyrnu karla. 1990 Norski olíusjóður- inn stofnaður. 1991 Hjón falla niður í alldjúpa sprungu í Snæfellsjökli en er bjargað. 2016 Karlalandslið Íslands í knattspyrnu kemst í 16 liða úrslit í Evrópukeppninni með 2:1 sigri á Austurríki. Sigurmarkið kom á síðustu mínútu uppbótartíma. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.