Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.06.2022, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 22.06.2022, Qupperneq 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Ég er svo spennt að ég er bara að bilast. Söngkonan Guðrún Árný mun leiða fjöldapartísöng á Þjóðhátíð í Eyjum um versl­ unarmannahelgina. Þá munu Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör verða meðal þeirra sem munu skemmta í Dalnum. toti@frettabladid.is „Þetta er geggjað. Ég er mjög spennt fyrir þessu og mér líður eins og ég sé komin á þann stað sem ég vil vera á. Mig er búið að langa svo að geta gert þetta,“ segir söngkonan Guðrún Árný, sem ætlar að leiða fjöldasöng, eins og henni einni er lagið, af stóra sviðinu á Þjóðhátíð í Eyjum. „Þetta er ekki Brekkusöngurinn,“ heldur Guðrún Árný áfram og bætir við að hún hafi fengið sérstakt pláss í hátíðardagskránni. „Ég verð á föstudagskvöldinu á besta tíma, frá hálf ellefu til ellefu, þegar allir eru í stuði. Ég er svo spennt að ég er bara að bilast. Ég er ekki búin að mega segja frá þessu svo lengi að loksins get ég farið að tjá mig um þetta.“ Í fyrra skapaðist mikil og almenn stemning fyrir því að Guðrún Árný yrði fengin til þess að leiða hinn margrómaða Brekkusöng, en hún var með aðeins aðrar hugmyndir og ætlar að mæta með eitthvað alveg nýtt í Dalinn um verslunarmanna­ helgina. Best í partísöngnum „Það var náttúrlega alveg dásam­ legt,“ segir Guðrún Árný, um allar þær áskoranir sem þjóðhátíðar­ nefnd fékk í fyrra. „En eftir að hafa verið þarna síðasta sumar, náttúr­ lega fyrir tómri Brekku, og sjá hann Magnús Kjartans standa sig óað­ finnanlega, þá fór ég að hugsa og benti þjóðhátíðarnefndinni á að ég væri bara langbest ef ég gæti bara mætt með partísamsöng. Ég sagði bara við þau í fyrra að þetta væri það sem mig langar að gera og ég veit að það virkar og þau bara treystu á mig og voru sammála,“ segir Guðrún Árný og Guðrún Árný ætlar að fylla Herjólfsdal með partísöng Söngkonan Guðrún Árný svarar háværu ákalli frá því í fyrra um að henni yrði falinn Brekkusöngurinn á Þjóðhátíð með því að taka stóra sviðið á föstudagskvöldinu þar sem hún hefur mun meira svigrúm í lagavali. MYND/AÐSEND færir sterk rök fyrir þessari pælingu sinni. „Vegna þess að í Brekkusöngn­ um er maður náttúrlega svolítið með íslenskt efni og mig langaði að vera bara með öskursöng. Bara allt mögulegt. Ég er búin að vera að gera þetta í allan vetur í partíum.“ Hún segist því vera komin með mjög góða tilfinningu fyrir því hvað er vinsælast í samfélaginu og líklegast til að slá í gegn í jafn stóru partíi og Þjóðhátíð vissulega er. „Þannig að ég ætla bara að láta vaða og vera búin að raða þessu svo rosalega þétt saman að fólk verður bara upptekið að syngja þarna með mér í góðar 30­40 mínútur. Það verður bara meiri háttar.“ Í takti við samtímann G u ð r ú n Á r n ý segir að líklega sé óhætt að tala um að hún sé að fara að stjórna stærsta fjölda­ söngskór landsins. „Jú, þetta er bara þannig og þetta verður bara allt milli himins og jarðar. Bara samansafn af þeim lögum sem ég er beðin mest um í partíunum,“ segir söngkonan og telur upp lög á borð við Shallow, Ég lifi í voninni og 80´s klassíkina Total Eclipse of the Heart. „Þetta eru bara lög sem allir þekkja og svo eru líka lög sem allir aldurshópar kunna. Eins og Bohemian Rhapsody, Gordjöss, með Palla, og auðvitað Mamma Mia. Þannig að þetta er bara það sem ég er beðin um alls staðar sem verður tekið þarna.“ Guðrún Árný leggur áherslu á að lögin sem hún syngur séu þann­ ig val fólksins og hún láti fjöldann ráða frekar en eigin hugmyndir. „Það er svo gefandi að mæta til þess að gleðja,“ segir söngkonan, sem er í góðum takti við sam­ tímann og umhverfið eftir að hafa verið fastur, vikulegur gestur hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni þar sem hún hefur sungið óskalög hlustenda viðstöðulaust. Þá reynslu og söng í partíum í allan vetur ætlar hún síðan að nýta til hins ítrasta í Herjólfsdal þegar blásið verður til langþráðrar mannaðrar Þjóð­ hátíðar sem byrjað er að selja miða á á dalurinn.is. n Nöfn tónlistarfólks sem verður á Þjóðhátíð eru að detta inn og Birgitta Haukdal og Herra Hnetu- smjör verða þar á meðal. FRÉTTAVAKTIN KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA Fréttavaktin býðum landsmönnum upp á fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni dagskrá. Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti að ræða helstu mál líðandi stundar. Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga á Hringbraut og frettabladid.is 26 Lífið 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.