Fréttablaðið - 22.06.2022, Side 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
„Nei, þessi er ekki nógu góð.
Kaupum betri, helst einhverja
með steinefnunum sinkoxíði og
títaníum díoxíði. Þessi efni fara
ekki í blóðrásina og eitra því ekki
kroppinn. Hey, svo er hér brúnku-
krems-sólarvörn, sem lætur þig
verða brúna en ekki brenna."
Svona voru nokkurn veginn
samræður okkar vinkvennanna
í snyrtivörubúð á Spáni þar sem
við erum staddar í hitabylgju með
hálf-fullorðin börnin okkar.
Elsku börnin mín hafa mátt þola
sólarvarnarpredikanir bróður-
partinn af ævinni. Berðu sólarvörn
á húðina á tveggja tíma fresti,
oftar ef þú ert í vatni. Ekki liggja í
sólbaði því þá skemmir þú húðina,
færð hrukkur og húðkrabbamein.
Notaðu sólgleraugu með UV-vörn
og hatt ef þú vilt halda húðinni
fallegri. Borðaðu ávexti til að fá
andoxunarefni sem verja húðina.
Við ætluðum að fara varlega í
sólinni þetta skiptið, komandi
undan vetri föl sem franskbrauð.
Það fór á annan veg. Eftir fyrsta
daginn flúðum við með börnin í
verslunarmiðstöð – sólarvarnirnar
annaðhvort gleymdust eða voru
ekki notaðar nógu vel. Á þriðja
degi voru krakkarnir komnir með
fótasár eftir ódýra sandala úr kína-
búð. Á fimmta degi bættust við
blöðrur og marblettir eftir gókart.
Og enginn borðar ávexti því ham-
borgarakóngurinn hefur meira
aðdráttarafl. Svo gerir brúnku-
kremið mig hvítari eftir því sem
líður á fríið – ég þykist hafa lært
mína lexíu. Nóg hefur þjáningin
verið og kostnaður við að laga
syndir sólbaða æskuáranna.
Á Spáni fer lífið í hægagang.
Fæstir stressa sig á bruna eða
blöðrum. Ég flýt með, treysti því að
predikunin verði til þess að með
tímanum læri söfnuðurinn að vara
sig á sólinni. n
Spánarsólin
islenskt.is
Borðaðu hann í heilu lagi; skorinn í tvennt, í báta eða þunnar sneiðar
eða maukaðu hann í djúsí sósu með pastanu.
Tómatur
Í þínu besta formi.
Vatnsmælirinn: Tómatur 94% íslenskt vatn
Rafhjólatrygging TM
er hugsuð fyrir þig
Hugsum í framtíð
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN