Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 13
„Það vill enginn fara í Evrópusam-
bandið.“
Þessi tilvitnun er ekki í ræðu for-
manns Miðflokksins.
Kristján Kristjánsson stjórnandi
Sprengisands lét þessi orð falla í
þætti sínum 19. júní, daginn eftir
að greint var frá því að í annað
skiptið á þessu ári sýndi skoðana-
könnun að miklu fleiri kjósendur
styddu aðild að Evrópusamband-
inu en væru henni andvígir.
Pottlok
Hér á hlut að máli annar af tveimur
allra bestu stjórnendum pólitískra
umræðuþátta í landinu. Ummælin
skrifast hugsanlega á fljótfærni
og skipta litlu máli. Þau eru bara
smátt dæmi um hversu þétt pott-
lok hefur verið sett á umræður um
þetta mikilvæga álitaefni.
Það eru fyrst og fremst stjórnar-
flokkarnir þrír og Samtök atvinnu-
lífsins, sem beitt hafa áhrifavaldi
sínu á síðustu árum til þess að
kæfa umræðu um að Ísland stígi
lokaskrefið frá aðild að innri
markaði Evrópusambandsins til
fullrar aðildar.
Frá fólkinu
Þessi markvissa þöggunarstefna
hefur haft áhrif á vettvangi stjórn-
mála, í atvinnulífinu, fjölmiðlum
og jafnvel innan samtaka laun-
þega. En órökstuddar alhæfingar
duga ekki endalaust til að bæla
niður umræður af þessu tagi.
Það áhugaverðasta við þessar
tvær skoðanakannanir er að við-
horfsbreytingin, sem þær sýna,
er sjálfsprottin. Hún kemur ekki
í kjölfar umræðuþrýstings eða
áróðursherferðar.
Fólkið finnur einfaldlega sjálft
að sviptingar í alþjóðamálum kalla
á endurmat á íslenskri hagsmuna-
gæslu meðan leiðtogar atvinnu-
lífsins og stjórnarflokkanna leggja
kollhúfur.
Aðildarumsókn Finna og Svía
að NATO spratt upp úr svipuðum
breytingum í skoðanakönn-
unum. Þar tók pólitíkin forystu í
umræðunni en reyndi ekki að setja
pottlok á hana.
Umskipti
Þó að aðildarspurningin hafi ekki
verið á dagskrá í áratug sýndu
kannanir að allt að þriðjungur
þjóðarinnar var henni að jafnaði
fylgjandi. Nú er það tæpur helm-
ingur, rúmur þriðjungur andvígur
og aðrir óákveðnir. Þetta eru mikil
umskipti.
Allir f lokkar, nema Miðflokkur-
inn, fá rúmlega 20 prósent af fylgi
sínu upp í rúmlega 80 prósent frá
stuðningsfólki aðildar.
Á höfuðborgarsvæðinu er stuðn-
ingur við aðild mjög afgerandi. Á
landsbyggðinni er hlutfallið lægra
en eigi að síður eru fleiri með en á
móti. Þar gætir sennilega áhrifa frá
vaxandi ferðaþjónustu.
Dreifing
Þrátt fyrir formlega andstöðu VG
gegn aðild eru fleiri kjósendur þess
með henni en á móti. Framsókn
var stuðningsflokkur aðildar fyrir
13 árum en er nú á móti. Samt
er rúmlega þriðjungur kjósenda
hennar hlynntur aðild.
Þegar horft er til þess að
stuðningur við aðild er meiri
á höfuðborgarsvæðinu en á
landsbyggðinni er ljóst að þar er
afgerandi meirihluti kjósenda VG
fylgjandi aðild. Eins er líklegt að
hátt í 40 prósent stuðningsfólks
Framsóknar á því svæði séu með
aðild og nokkru hærra hlutfall
þeirra, sem taka afstöðu.
Ætla má að æ erfiðara verði að
virða sjónarmið svo stórs hluta
kjósenda að vettugi.
Hátt eða lágt?
Rúmlega fimmtungur kjósenda
Sjálfstæðisflokksins styður aðild.
Menn geta velt því fyrir sér hvort
það er hátt hlutfall eða lágt.
Hafa má í huga að út á svipað
heildarfylgi í alþingiskosningum
hefur flokkurinn haft helmings
áhrif í ríkisstjórn í áratug.
Í því ljósi er erfitt að segja að
þetta hlutfall sé svo lágt að dæma
eigi það fólk með öllu til áhrifa-
leysis um þetta mál.
Farvegur
Full aðild snýst um einhverja
mestu hagsmuni Íslands bæði í
augum þeirra sem eru með og á
móti. Lýðræðislega klípan er sú að
stærri hluti þjóðarinnar er nú með
en meirihluti þingmanna á móti.
Hvort tveggja þarf að virða.
Þetta gerist vitaskuld með fjöl-
mörg mál. En klípan er alvarleg
fyrir þá sök að svo miklir hags-
munir eru í húfi. Spurningin er
stærri en svo að unnt sé að láta
henni ósvarað.
Lýðræðið býr yfir farvegi til að
leysa stjórnskipulegar þverstæður
af þessu tagi. Það er þjóðaratkvæði.
Það er ekki gallalaus leið. Hitt
er hættulegra lýðræðinu ef hún er
útilokuð eða reynt verður áfram
að kæfa umræðuna með full-
yrðingum um að enginn vilja stíga
lokaskrefið til fullrar aðildar að
Evrópusambandinu. n
Enginn vill í Evrópusambandið!!!
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Það áhugaverðasta við
þessar tvær skoðana
kannanir er að við
horfsbreytingin, sem
þær sýna, er sjálf
sprottin. Hún kemur
ekki í kjölfar umræðu
þrýstings eða áróðurs
herferðar.
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
Öflugur fasteignaleitarvefur
með einföldu og notendavænu
viðmóti sem býður upp á ítarlegar
upplýsingar um fasteignir,
þróun verðlags og fróðleik um
fasteignamarkaðinn.
FIMMTUDAGUR 7. júlí 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ