Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 36
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
ninarichter@frettabladid.is
Tjaldútilegur henta ekki öllum og
ýmsar ástæður geta legið fyrir því
að ferðalangar kjósi hótel fram yfir
prímus og pakkasúpu. Aðgengismál
og heilsa geta spilað þar hlutverk á
meðan aðra langar einfaldlega að
leyfa sér smá lúxus.
Fréttablaðið kannaði verð á
hótelgistingu í fjórum landshlutum
um verslunarmannahelgina. Sam-
kvæmt bókunarsíðunni Booking.
com kostar ódýrasta hótelgistingin
á landsbyggðinni, frá föstudegi 29.
júlí til 1. ágúst, miðað við tvo full-
orðna sem deila herbergi, 48.139
krónur á Hótel Eddu á Akureyri, sem
Norðlendingar þekkja sem húsnæði
gömlu heimavistar Menntaskólans á
Akureyri. n
Ódýrari gistinætur um
verslunarmannahelgina
Gisting á tjaldstæði getur kostað skildinginn og það kann að vera kostnaðarsamt að endurnýja útilegubúnaðinn. Ein-
hverjir gætu séð sér hag í því að greiða fyrir hótelgistingu í staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Á Hótel Eddu á Akureyri. Á Hótel Laugum í Sælingsdal. MYNDIR/BOOKING.COM
Á Guesthouse Svartaskógi. Á Hótel Skálholti.
AUSTURLAND
Á Austurlandi er lægsta verðið á gistinóttunum
þremur 62.681 króna á Guesthouse Svartiskógur í 15
fermetra herbergi með sér baðherbergi. Þar má bæta
við morgunverði fyrir 2.229 krónur á mann.
NORÐURLAND
Ódýrasta gistingin á Norðurlandi er á Hótel Eddu á
Akureyri, en þar kosta þrjár nætur í 11 fermetra her-
bergi 48.139 krónur. Gestir deila baðherbergi með
öðrum hótelgestum. Vilji fólk bæta við morgunverði
fer upphæðin í 64.018 krónur.
VESTURLAND
Á Vesturlandi bjóða Hótel Laugar í Sælingsdal þrjár
nætur á 52.608 krónur og þar er morgunverður inni-
falinn. Stærð herbergisins er ekki tekin sérstaklega
fram en þó kemur fram að flatskjár sé í herberginu.
Gestir deila baðherbergi með öðrum hótelgestum og
þá er einnig tekið fram að engin lyfta sé í húsinu fyrir
aðgengi að herbergjum á efri hæðum.
SUÐURLAND
Hótel Skálholt býður ódýrustu hótelnæturnar á
Suðurlandi en þar eru næturnar þrjár á 84.172 krónur
og hægt að bæta við morgunverði fyrir 2.368 krónur
á mann. Um er að ræða 15 fermetra herbergi með
sérbaðherbergi og fullu aðgengi fyrir hjólastóla.
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA
Fréttavaktin býðum landsmönnum upp á
fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni dagskrá.
Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit
dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti að
ræða helstu mál líðandi stundar.
Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga á
Hringbraut og frettabladid.is
28 Lífið 7. júlí 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ