Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 4
Ég er búin að hugsa
þetta vandlega síðustu
vikur og fara yfir mína
stöðu.
Aldís Hafsteinsdóttir,
sveitarstjóri Hrunamannahrepps
Deilt var um hvort
Elkem mætti færa vexti
af 1,8 milljarða króna
láni frá móðurfélagi
sínu í Noregi sem gjöld.
JEEP.IS • ISBAND.IS
PLUG-IN HYBRID
FÆRÐIN ER
ALLTAF GÓÐ
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Leyfðu Jeep® Wrangler Rubicon
Plug-In Hybrid að spreyta sig á krefjandi
slóðum. Leiðin verður rafmögnuð.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA
Aldís Hafsteinsdóttir, sveitar-
stjóri Hrunamannahrepps,
verður ekki kjörgeng til
stjórnarsetu í Sambandi
íslenskra sveitarfélaga og mun
því ekki bjóða sig fram til
áframhaldandi formennsku í
haust. Þetta varð ljóst eftir að
Aldís ákvað að flytja lögheim-
ili sitt fyrr í vikunni.
ggunnars@frettabladid.is
SVEITARSTJÓRNIR Formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga er
kjörinn til fjögurra ára í senn að
afloknum sveitarstjórnarkosning-
um.
Til að gegna formennsku eða sitja
í stjórn sambandsins þurfa fram-
bjóðendur að vera aðal- eða vara-
menn í sveitarstjórn.
Aldís Hafsteinsdóttir er varamaður
í bæjarstjórn Hveragerðis en hefur
jafnframt gegnt formennsku Sam-
bandsins síðustu fjögur ár.
En þar sem hún hefur verið ráðin
sveitarstjóri Hrunamannahrepps
og hyggst f lytjast búferlum frá
Hveragerði verður hún ekki lengur
kjörgeng til formanns Sambands-
ins .
Aldís hafði hug á að búa áfram í
Hveragerði um sinn og gegna for-
mennsku Sambandsins áfram, en
eftir að hafa lagst yfir stöðuna ákvað
hún að réttast væri að einbeita sér
alfarið að Hrunamannahreppi.
„Ég er búin að hugsa þetta vand-
lega síðustu vikur og fara yfir mína
stöðu. Þetta er niðurstaðan og mér
finnst einfaldlega rétt og heiðarleg-
ast að færa mig um set yfir í sveitar-
félagið sem mun eiga hug minn
allan næstu fjögur árin.“
Aldís segist eiga eftir að sjá eftir
formannsstarfinu sem hafi vissu-
lega verið krefjandi. „Það hefur
ekki verið nein lognmolla á sveitar-
stjórnarstiginu síðustu fjögur árin.
Það er alveg ljóst. En þetta hefur líka
verið ákaflega skemmtilegur tími.”
„Ég hefði svo gjarnan viljað halda
áfram en framboð til formennsku
hjá Sambandinu er háð því að við-
komandi sé kjörinn fulltrúi og því
er þetta niðurstaðan.“
Aldís sat lengi í stjórn Sambands
íslenskra sveitarfélaga áður en hún
varð formaður. Hún hefur jafnframt
gegnt stöðu bæjarstöðu í Hveragerði
um árabil.
„Ég er búin að vera lengi í þessu
og veit þess vegna hvað það skiptir
miklu máli fyrir sveitarstjóra að
geta helgað sig brýnum verkefnum
heima fyrir.”
„Þau lúta fyrst og fremst að því að
gæta hagsmuna íbúanna og það er á
þeim grunni sem þessi ákvörðun er
í raun tekin,“ segir Aldís.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að nokkrir bæjar- og borgarfull-
trúar hafi hug á að bjóða sig fram til
formennsku nú þegar ljóst er að
Aldís stígur til hliðar.
Rósa Guðbjartsdóttir er talin lík-
leg, enda hefð fyrir því að formaður
Sambandsins komi úr röðum Sjálf-
stæðisflokks. Rósa hættir sem bæj-
arstjóri Hafnarfjarðar eftir tvö ár.
Jón Björn Hákonarson, sveitar-
stjóra Fjarðabyggðar og ritari Fram-
sóknarflokksins, hefur einnig verið
nefndur sem mögulegur formaður,
enda með langa reynslu af stjórnar-
setu hjá Sambandinu.
Þá hafa bæði Dagur B. Eggerts-
son, borgarstjóri, og Heiða Björg
Hilmarsdóttir, borgarfulltrúi Sam-
fylkingar, verið nefnd í tengslum
við formannsstólinn. Hermt er að
mörgum þyki tímabært að fulltrúi
fjölmennasta sveitarfélags landsins
fái formannsstólinn.
Framboðsfrestur rennur út 15.
júlí næstkomandi en kjörið sjálft fer
fram með rafrænum hætti í næsta
mánuði. Nýr formaður mun svo taka
við af Aldísi á Landsþingi Sambands
íslenskra sveitarfélaga sem haldið
verður á Akureyri í september. n
Aldís verður að hætta sem formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga
Aldís segist vilja helga sig alfarið nýjum verkefnum í Hrunamannahreppi
næstu fjögur árin. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
gar@fretttabladid.is
BANDARÍKIN John Hinckley Jr. sem
skaut á Ronald Reagan, forseta
Bandaríkjanna, og þrjá aðra menn
árið 1981, biður um fyrirgefningu á
gjörðum sínum.
Hinckley varð endanlega frjáls
fyrir tveimur vikum að lokinni
reynslulausn. Í þættinum Nightline
á ABC sjónvarpsstöðinni kvaðst
hann sjá eftir tilræðinu. Forsetinn
náði sér eftir tólf daga sjúkrahús-
dvöl en tveir hlutu varanleg mein
„Ég held að þeir geti ekki fyrirgef-
ið mér og ég álasa þeim ekki,“ sagði
Hinckley, sem kvaðst hafa þjáðst af
miklu þunglyndi er hann framdi
ódæðið og viljað ganga í augun á
leikkonunni Jodie Foster. n
Hinckley segist
sjá eftir tilræðinu
John Hinckley Jr. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
gar@frettabladid.is
SKIPULAGSMÁL Nýju deiliskipulagi
fyrir miðbæ Kópavogs verður ekki
haggað, segir meirihluti úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlinda-
mála. Átta kærur bárust nefndinni
frá 37 Kópavogsbúum og samtök-
unum Vinum Kópavogs.
Nýja skipulagið gerir ráð fyrir
mikilli uppbyggingu við Fannborg
og Hamraborg.
Tveir meðlimir nefndarinnar
skiluðu séráliti og vildu fella skipu-
lagið úr gildi eins og krafist var.
„Við erum ósammála þeirri
niðurstöðu meirihluta úrskurðar-
nefndarinnar að ekki hafi verið
slíkir ágallar á umhverfismati hins
kærða deiliskipulags sem ráðið geti
úrslitum um gildi þess.“ n
Skipulag í miðbæ
stendur áfram
benediktarnar@frettabladid.is
DÓMSTÓLAR Héraðsdómur Reykja-
víkur felldi í gær úr gildi úrskurð
ríkisskattstjóra í máli Elkem á
Íslandi ehf. gegn íslenska ríkinu, auk
þess sem ríkið þarf að greiða fjórar
milljónir í málskostnað.
Forsaga málsins er sú að Elkem
gaf út skuldabréf að fjárhæð tæplega
1,8 milljarð króna í nóvember 2012
sem selt var til móðurfélags Elkem í
Noregi, í tengslum við fjárfestingar-
leið Seðlabanka Íslands.
Ríkisskattstjóri tilkynnti félag-
inu að gjaldfærslu vaxta af skulda-
bréfinu væri hafnað vegna skorts á
Elkem hafði betur gegn ríkinu í skattadómsmáli
Álfheiður
Ágústsdóttir,
forstjóri
Elkem á Íslandi
nauðsynlegri og eðlilegri tengingu
við tekjuöf lun félagsins. Þá taldi
ríkisskattstjóri fullt tilefni til að
leggja 25 prósenta álag á vanfram-
talinn stofn.
Í niðurstöðu héraðsdóms kom
fram að ekki yrði fallist á þá túlkun
skattsins að lánsfjárhæð skulda-
bréfsins og þar með þau vaxtagjöld
sem voru greidd af henni hafi verið
ótengd rekstri félagsins.
Í því tilviki sem hér um ræðir var
lánið þáttur af fjármagnsskipan
félagsins og rekstrarfjármunirnir
á því ári sem skuldabréfið var gefið
út nýttir til fjárfestinga og niður-
greiðslna á skuldum.
Héraðsdómur felldi því úr gildi
úrskurð ríkisskattstjóra og er
íslenska ríkinu gert að greiða fjórar
milljónir í málskostnað.
Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri
Elkem á Íslandi vill ekki tjá sig um
niðurstöðu héraðsdóms að svo
stöddu. n
4 Fréttir 7. júlí 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ