Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 8
8 Fréttir 7. júlí 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐÁSTAND HEIMSINS FRÉTTABLAÐIÐ 7. júlí 2022 FIMMTUDAGUR Múslimar í Delí á Indlandi eru að setja upp geitamarkaði í tilefni af hátíðinni Eid al-Adha, sem haldin er til að minnast fórnfýsi Abrahams. Hátíðin hefst á laugardagskvöld og siður er að slátra þá dýri og deila þriðjungi kjötsins með fátækum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Breskur maður mótmælir Boris Johnson forsætisráð- herra fyrir utan neðri málstofu breska þingsins. Stjórn Johnsons stendur nú á brauðfótum eftir hrinu af- sagna ráðherra og embættis- manna Íhalds- flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Haluk Bayraktar, framkvæmdastjóri tyrkneska vopnafyrirtækisins Baykar, fundar með Petro Besjta, sendiherra Úkraínu í Litáen, og litáíska varnamálaráðherranum Arvydas Anusauskas. Litáar hyggjast gefa Úkraínumönnum þennan Baykraktar TB2-bardagadróna til að nota í stríðinu gegn Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Spánverjar fá að halda almennilega upp á San Fermín-nautahlaupshátíðina í fyrsta sinn í tvö ár í júlí. Hátíðinni hefur verið aflýst síðustu tvö ár vegna kórónaveirunnar en nú fá menn og dýr að sletta úr klaufunum á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Belgíski hjólreiðakappinn Wout Van Aert sportar gulri treyju á leiðinni frá Lille til Arenberg í Tour de France-keppni ársins 2022. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.