Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 26
Öðlingurinn, ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Örn Steinsen
KR-ingur,
lést í faðmi fjölskyldunnar
föstudaginn 1. júlí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 13. júlí klukkan 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Framtíðarsjóð KR.
Erna G. Franklín
Arna K. Steinsen Magnús Pálsson
Stefán Þ. Steinsen Edda B. Guðmundsdóttir
Anna G. Steinsen Jón Halldórsson
Brynja D. Steinsen Arnar Þ. Friðgeirsson
Saga, Örn Rúnar, Sjöfn, Andri, Agnar Smári, Erna Guðrún,
Sara, Stefán Jr., Emma, Andrea, Bjarki, Aron, Eva, Arnór,
Aníta og langafabörnin fimm.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Halldórs Jónatanssonar
fv. forstjóra Landsvirkjunar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hrafnistu Sléttuvegi fyrir góða umönnun.
Dagný Halldórsdóttir Finnur Sveinbjörnsson
Rósa Halldórsdóttir Vilhjálmur S. Þorvaldsson
Jórunn Halldórsdóttir
Steinunn Halldórsdóttir Raj K. Bonifacius
afa- og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, amma
og tengdamóðir,
Anna Kristjánsdóttir
lést á hjartadeild Landspítalans
þann 5. júlí.
Minning hennar lifir í hjörtum okkar.
Katla Steinsson Ársæll Þorsteinsson
Hanna Lára Steinsson
Kristján Jóhann Steinsson
Andri Snær Ársælsson
Anna Sjöfn Ársælsdóttir
Haukur Þorsteinsson
Kristmann Þorsteinsson
Elsku hjartans bróðir okkar,
mágur og frændi,
Reynir Ríkarðsson
Viðarrima 42, 112 Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
þann 2. júlí.
Heimir Ríkarðsson
Hildur Ríkarðsdóttir Ellert Már Jónsson
Steinberg Ríkarðsson
Ingimundur Bergmann Þórunn Kristjánsdóttir
systkinabörn og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar,
amma og langamma,
Ásdís Aðalsteinsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
þann 12. júní. Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey.
Börn og barnabörn.
Elsku hjartans móðir okkar,
amma og langamma,
Ingveldur Magnea Knaran
Karlsdóttir (Stella)
Lindarholti 1, Ólafsvík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
29. júní. Hún verður jarðsungin frá
Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 9. júlí kl. 14.
Maggý Hrönn Hermannsdóttir
Hermann M. Maggýjarson Regína V. Reynisdóttir
Ingvaldur M. Hafsteinsson María Káradóttir
Kristrún Hafsteinsdóttir Fannar Hilmarsson
Tómas Hermannsson
Stella Tómasdóttir
og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Inga G. Guðmannsdóttir
áður til heimilis að
Vesturbergi 21, Reykjavík,
lést á Hrafnistu Ísafold, miðvikudaginn
29. júní. Útförin fer fram frá Fella- og
Hólakirkju, þriðjudaginn 12. júlí, kl. 15.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast
hennar láti líknarfélög njóta þess.
Guðmann Elísson Anne Katrine Hame
Valborg Huld Elísdóttir Björn Geir Ingvarsson
Úlfhildur Elísdóttir Snæbjörn Tr. Guðnason
Elsa Kristín Elísdóttir Gunnar Viggósson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigrún Stefánsdóttir
Hlíf 2,
verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 9. júlí klukkan 14.00.
Bjarni Jóhannsson Guðrún Guðmannsdóttir
Sigrún María Bjarnadóttir Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir
Jóhann T. Guðmundsson Tryggvi Snær Guðmundsson
og langömmubörn.
1211 Suðurlandsskjálfti, margir bæir hrynja og 18 manns
farast.
1307 Játvarður II. verður konungur Englands.
1637 Hornsteinn er lagður að Sívalaturni í Kaupmanna-
höfn.
1874 Á Akureyri er vígður Gudmannsspítali, sem er til
húsa í Aðalstræti 14, en það er elsta tvílyfta íbúðar-
hús á Íslandi, reist 1836.
1915 Konur fagna nýfengnum kosningarétti sínum með
hátíðarfundi á Austurvelli. Sama dag stofna þær
Landspítalasjóð Íslands.
1922 Lúðrasveit Reykjavíkur er stofnuð upp úr lúðra-
félögunum Hörpu og Gígju og er hún elsta starfandi
lúðrasveit á Íslandi.
1941 Bandaríkjaher kemur til landsins og tekur við
vörnum þess af Bretum. Síðustu hermennirnir fara
héðan í apríl 1947.
1966 U Thant, aðalritari Sameinuðu þjóðanna kemur í
tveggja daga heimsókn til Íslands.
1974 Kútter Sigurfari er settur á byggðasafnið í Görðum
á Akranesi.
1974 Vestur-Þýskaland vinnur heimsmeistarakeppnina
í knattspyrnu þegar lið landsins sigrar Hollendinga
2-1.
1983 Ray Charles skemmtir á Broadway ásamt 25 manna
hljómsveit.
Merkisatburðir
Þjóðleg tónlist frá Íslandi,
Mexíkó, Gíneu og Grikklandi er
meðal þess sem má heyra á Þjóð-
lagahátíðinni á Siglufirði.
arnartomas@frettabladid.is
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði hófst í gær
og stendur yfir fram á sunnudag. Hátíðin
er haldin ár hvert með það að markmiði
að kynna þjóðlagaarf ólíkra þjóða og
þjóðarbrota.
„Það hefur verið óvenjumikið um
fyrirspurnir í ár, sérstaklega að utan,
svo hátíðin virðist vera að ná út fyrir
landsteinana hvað áhuga snertir,“ segir
Gunnsteinn Ólafsson listrænn stjórn-
andi hátíðarinnar. „Það kemur þægi-
lega á óvart hvað við fáum margar fyrir-
spurnir um hátíðina miklu fyrr en við
erum vön. Það er eins og fólk sé þyrst í
að koma á þjóðlagahátíð!“
Alþjóðlegir straumar
Hátíðin var fyrst haldin árið 2000 og
er skipulögð í nafni Félags um Þjóð-
lagasetur séra Bjarna Þorsteinssonar
í samstarfi við Síldarminjasafnið og
Siglufjarðarkirkju. Tónlistin á hátíðinni
kemur úr ólíkum áttum og er mikill
alþjóðabragur yfir dagskránni í ár.
Gunnsteinn segir að lagt sé upp úr því
að hafa tónlistina sem fjölbreyttasta og
ólíka á milli ára.
Okkur til mikillar ánægju kemur
Svanlaug Jóhannsdóttir að syngja
söngva frá Mexíkó um lífið og dauð-
ann og það verður vafalaust á meðal
hápunkta hátíðarinnar,“ segir hann
um tónleika sem fara fram í Bátahús-
inu á föstudagskvöld. „Hljómsveitin er
í f lottum búningum og f lutningurinn
allur með mexíkóskum hætti.“
Á hátíðinni verður boðið upp á kelt-
neska tónlist en þar er á ferð skoski
hörpuleikarinn Ruth Wall. Miðjarðar-
hafið verður líka með fulltrúa á hátíð-
inni þar sem Rasoulis-systkinin frá Krít
munu spila gríska þjóðlagatónlist. Einn-
ig má vænta strauma frá Gíneu þegar
hópurinn Dance Africa Iceland stígur
villtan dans við dynjandi trommuslátt.
„Mamady og Sandra Sano hafa áður
komið á hátíðina og kennt dansa en nú
fannst okkur við hæfi að þau væru með
eigin sýningu,“ segir Gunnsteinn.
Þá verður íslenska þjóðararfinum
einnig gert hátt undir höfði, meðal ann-
ars með rímnanámskeiði Ragnheiðar
Ólafsdóttur auk þess sem kveðskapar-
hópurinn Rímþursar og frenjur kveða
rímu Skúla Pálssonar um stígvélaða
köttinn.
Standa vörð um þjóðararfinn
Þjóðlagasetrið á Siglufirði var sett á lagg-
irnar 2006 og er í Madömmuhúsi þar
sem Bjarni Þorsteinsson þjóðlagasafnari
bjó fyrstu ár sín á Siglufirði. Setrið hefur
staðið fyrir söfnun þjóðlaga í góðum
mynd- og hljóðgæðum hvaðanæva af
landinu.
„Þarna er hægt að hlusta á og horfa
á myndbönd af fólki alls staðar að af
landinu dansa, kveða og syngja íslensk
þjóðlög,“ segir Gunnsteinn, sem ferðað-
ist ásamt kvikmyndagerðarmanninum
Dúa Landmark um landið til að safna
efni fyrir setrið. „Hingað getur fólk
komið og séð efnið, ýmist á skjám eða í
tölvum eða leikið á langspil og íslenska
fiðlu að vild.“
Dagskrána í heild má finna á heima-
síðu Þjóðlagahátíðarinnar. n
Þjóðlög heimsins mætast á Sigló
Rasoulis-systkinin frá Krít flytja gríska þjóðlagatónlist. MYND/AÐSEND
Hörpuleikarinn Ruth Wall flytur kelt-
neska tónlist frá Skosku hálöndunum.
Mexíkóskir söngvar í flutningi Svan-
laugar Jóhannsdóttur verða einn af
hápunktum hátíðarinnar.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 7. júlí 2022 FIMMTUDAGUR