Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 1
1 3 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 7 . J Ú L Í 2 0 2 2 Veðrið spilar þátt á plötunni Portrettmyndir Kjarvals til sýnis Lífið ➤ 26 Menning ➤ 24 Sigraðu innkaupin fyrir útileguna Gómsæt opnunar- tilboð!NÝJA OG GLÆSILEGA VERSLUN Í SKEIFUNNI 19! Opnum í dag kl. 9 Afstaða til gjaldtöku af erlendum ferðamönnum fyrir aðgang að íslenskum náttúruperlum Afstaða til gjaldtöku af Íslendingum fyrir aðgang að íslenskum náttúruperlum 72% 54% 16% 30% 16% 12% n Sammála n Hvorki né n Ósammála Mikill meirihluti vill að tekið verði gjald af erlendum ferðamönnum fyrir aðgang að íslenskum náttúruperlum samkvæmt nýrri könnun. Afstaðan snýst við þegar spurt er um gjaldtöku af Íslendingum. adalheidur@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Yfir sjötíu prósent eru sammála því að tekið verði gjald af erlendum ferðamönnum fyrir aðgang að íslenskum náttúruperl- um. Aðeins þrjátíu prósent eru hins vegar fylgjandi slíkri gjaldtöku af Íslendingum. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem Prósent fram- kvæmdi fyrir Fréttablaðið. Samkvæmt niðurstöðunum er rúmur helmingur svarenda ósam- mála því að Íslendingar verði rukk- aðir um aðgang að íslenskum nátt- úruperlum en aðeins tólf prósent eru ósammála sambærilegri gjald- töku af erlendum ferðamönnum. Þegar svörin eru skoðuð nánar kemur í ljós að sextíu prósentum þeirra sem eru ósammála gjald- töku af Íslendingum finnst rétt að taka sambærilegt gjald af erlendum ferðamönnum. Ekki er mikill munur á afstöðu til gjaldtöku milli kynja og enginn munur er á afstöðu íbúa höfuðborg- arsvæðisins og landsbyggðarinnar. Þá breyta tekjur fólks ekki miklu um afstöðu til gjaldtökunnar, þótt ívið f leiri séu sammála gjaldtöku meðal þeirra tekjuhæstu en þeirra sem hafa lægri tekjur. Stuðningur við gjaldtöku er minnstur í yngsta aldurshópnum, bæði hvað varðar erlenda ferðamenn og Íslendinga, en hækkar jafnt og þétt með hækk- andi aldri. Um netkönnun var að ræða sem framkvæmd var dagana 22. júní til 4. júlí. Úrtakið var 2.000 einstakl- ingar 18 ára og eldri. Svarhlutfallið var 50,8 prósent. Í svari frá Lilju Alfreðsdóttur ferðamálaráðherra segir að gjald- taka í greininni sé til skoðunar. Fyrirhugað sé að ráðast í tekjuöflun af ferðamönnum frá og með 2024. „Unnið verður að breytingum á fyrirkomulagi gistináttagjalds í samvinnu við greinina og sveitar- félögin með það að markmiði að sveitarfélögin njóti góðs af gjald- tökunni,“ segir í svari ráðherra. n Útlendingar greiði gjald en ekki Íslendingar ,,Þetta hefur gengið ótrúlega vel,” segir Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri verkfræðideildar hjá Isavia, um framkvæmdir við nýja 22 þúsund fermetra viðbyggingu við flugstöðina á Keflavíkur- flugvelli, sem að hluta á að vera að komin í notkun á næsta ári og að fullu 2024. Jón segir um 85 til 90 prósent af uppsteypunni nú lokið. Efni í burðarvirki stálgrindarhússins komi frá Úkraínu og Finn- landi og sé unnið í Póllandi og Finnlandi. ,,Við vorum heppin að tryggja stóran hluta efnisins áður en átökin brutust út í Úkraínu.” FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.