Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar Það hefur frést að veiðar á villtum pöndum séu hafnar á ný í Kína, þar sem þær eru ekki lengur í útrýmingarhættu. Veiðarnar hafa skapað nokkra reiði og úlfúð, ekki hvað síst fyrir þær sakir að þær eru aðeins stundaðar af auð- manninum Kang Liu. En Liu hafði látið af veiðum eftir að stofninum var nánast útrýmt og veiðarnar bannaðar. Þrátt fyrir að eftirspurn eftir pöndukjöti sé sama og engin er engan bilbug á Liu að finna. Til veiða skal haldið þó að borga þurfi með veiðunum auk þess sem hann hafði varðveitt veiðarfæri með miklum tilkostnaði frá veiðibanni. Fjölmargir í Kína hafa bent á að veiðar sem þessar skili nánast engu til þjóðfélagsins og þær skaði aðra hagsmuni verulega. Þó að stofnar pöndunnar séu ekki lengur í útrýmingarhættu séu þær í huga heimsins orðnar að tákni fyrir nátt- úruvernd. Aðeins sé tímaspursmál hvenær grimmilegar og kvalafullar veiðiaðferðir veki heimsathygli. Talsmenn nýrra vaxandi atvinnu- greina sem gert hafa út á verndun risapöndunnar um allt Kína hafa mótmælt veiðunum harðlega. Ímynd er ein dýrmætasta eign hverrar þjóðar. Ímynd Íslands er sterk, við erum friðsöm þjóð, herlaus, við höfum aldrei ráðist á annað ríki, búum yfir hreinni orku, virðing fyrir náttúru er vaxandi og við látum aldrei skilgreina okkur sem smáríki. Að við skulum heimila einum manni að veiða hvali er jafn galið fyrir heiminum og þetta skáldaða dæmi um kínverska auðmanninn hér að ofan og það mun valda okkur verulegum skaða í framtíð. Stjórnvöld eiga því að sinna hlut- verki sínu við verndun hagsmuna okkar sem hér búa og banna hval- veiðar í eitt skipti fyrir öll. Með friðun hvala græðum við öll. n Pöndudráp í Kína Sigraðu innkaupin fyrir útileguna LUNAWOOD THERMOWOOD 26x140 cm, burstað greni. Vnr. 0053424 10.914 kr./m2 Thermowood frá Lunawood er hitameðhöndlað finnskt greni með aukinni endinguna án nokkurra íblöndunarefna. Til að auka fágað yfirborð pallsins eru faldar smellu- lausnir í festingum. Svansvottað timbur. VILT ÞÚ UMHVERFISVÆNT TIMBUR Á PALLINN ÞINN? Hjá okkur færðu mikið úrval af ólíku pallaefni, verkfærum, festingum og öðru til að klára pallinn. VIÐ ERUM HANDHAFI KUÐUNGSINS Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Allt fyrir veisluna Skreytingar Borðbúnaður Búningar Tækjaleiga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.