Fréttablaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Það virðist virka mjög vel að gera hluti sem eru mjöööög skrítnir og ég held að það henti okkur ágætlega. Einstakasta hljómsveit lands- ins, stöllurnar Special-K og Farao í Ultraflex, hefur gefið út nýtt lag og myndband. Heimilisverk í myndbandinu hafa vakið athygli milljóna á TikTok og stefnir sveitin á að gefa út plötu í haust. odduraevar@frettabladid.is Raftvíeykið Ultraf lex hefur fyrir löngu stimplað sig inn sem ein frumlegasta hljómsveit landsins. Sveitin hefur nú gefið frá sér nýtt lag, Mi Vuoi, og leggur tónlistar- konan Kuntessa þeim lið að þessu sinni. Katrín Helga Andrésdóttir, betur þekkt sem Special-K, segir nýja lagið fylgja heimspekinni um að meira sé meira. Tumi Magnússon spilar á saxófón og Kuntessa syngur á ítölsku. Brauðskurðurinn sló í gegn Douglas Dare tók upp tónlistar- myndbandið, þar sem sjá má tvíeyk- ið vinna húsverk á þokkafullan hátt. Svipuð myndbönd sveitarinnar á samfélagsmiðlinum TikTok hafa vakið mikla athygli en myndband af þeim þar sem þær skera saman brauð er með milljónir áhorfa. „Við fengum hugmyndina að því að nýta þetta í tónlistarmyndband- ið eftir vinsældirnar á TikTok,“ segir Katrín Helga spurð að því hvaðan hugmyndin komi. Tæp tvö ár eru síðan myndbandið fór á miðilinn. „Við vorum áður búnar að ákveða að fá okkur ekki TikTok því okkur fannst við vera of gamlar,“ segir Katrín hlæjandi en hún segir að hún og Kari Jahnsen, betur þekkt sem Farao, hafi ákveðið að slá til eina nóttina þegar hún var andvaka. „Svo allt í einu var myndbandið af okkur að skera brauð komið með hundruð þúsunda áhorfa. Þessi miðill er allt öðruvísi en það sem við höfðum verið vanar og miklu ófyrirsjáanlegri,“ segir Katrín, sem viðurkennir aðspurð að það henti Ultraflex vel. Katrín fangi „Það virðist virka mjög vel að gera hluti sem eru mjöööög skrítnir og ég held að það henti okkur ágæt- lega,“ segir Katrín og skellir upp úr. Brauðskurðarmyndbandið varð til af frekar mikilli tilviljun. „Við vorum einhvern tímann búnar að klæða okkur upp fyrir myndatöku og svo var ég bara að skera brauð og maðurinn hennar Kariar tók upp símann og þá kom Kari og vildi vera með í mynd- bandinu,“ útskýrir Katrín. Hún hafi ákveðið að vera alvarleg á svip til að hlæja ekki. „Þannig að allt í einu var þetta farið að líta út eins og ég væri ein- hvers konar fangi Kariar og komnar margar samsæriskenningar um þetta. Fólk lét mig vita í athuga- semdum að ef ég væri fangi ætti ég næst að klæða mig í gult eða blátt,“ segir Katrín og skellir upp úr. Önnur plata í haust Sveitin mun gefa út sína aðra plötu í október og verður Mi Vuoi þar meðal sjö annarra laga. „Við erum einmitt að fara að taka upp mynd- band við annað lag núna um helg- ina,“ segir Katrín, sem segir sveitina stefna á útgáfutónleika hér á landi síðar í vetur. n Milljónir fylgja róandi heimilisverkum Ultraflex Rafdúóið Ultraflex sinnir ýmsum heimilisverkum á sinn einstaka hátt í nýja myndbandinu. MYND/AÐSEND Sumarleikur Heimsferða og Fréttablaðsins Skannaðu kóðann og skráðu þig til leiks frettabladid.is/ kynningar/sumarleikur Viltu vinna sólarlandaferð? Fullt af glæsilegum vinningum í boði frá 22 Lífið 22. júlí 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.