Fréttablaðið - 22.07.2022, Qupperneq 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767
| Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón
Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Hlutir sem verða sérkennilegir og einhverjum finnast gallaðir búa oft yfir miklum sjarma. Matar-
stellið okkar samanstendur af mismunandi stórum diskum og skálum af ýmsum gerðum, segir
Margrét.
Útsýnið er stórfenglegt úr stofunni.
Leirlistaverkin eru fjölmörg og í margs konar útfærslum.
Afskorin blóm setja mikinn svip á heimilið.
jafnfram að þegar þau fluttu í
húsið hafi þau farið í ýmsar endur-
bætur en skipulagið og hönnunin
hafi verið þannig að það þurfti
ekki stórar breytingar.
Listmunir, bækur og tónlist
Þegar Margrét er beðin um að lýsa
heimilisstílnum stendur ekki á
svari. „Heimilið okkar er afslappað
og skapandi. Eðli málsins sam-
kvæmt er heimilið fullt af list-
munum eftir mig sjálfa og aðra
listamenn en svo er líka mikið af
hljóðfærum þar sem maðurinn
minn og dóttir eru bæði í músík.
Bækur og tónlist skipa stóran sess
í okkar heimilislífi. Það sem mér
finnst gera heimili að heimili er
auðvitað fólkið sem býr þar og að
áhugamál heimilisfólksins og yndi
endurspeglist í húsinu.“
Hjarta heimilisins slær í stofunni.
„Við erum með arin í stofunni og
þar finnst okkur ósköp gott að sitja,
bæði á köldum vetrardögum og
regnvotum sumarkvöldum.“
Jarðlitir og ljósir tónar
Jarðlitir eru ríkjandi á heimilinu
með mildum og ljósum tónum.
„Við notumst nær eingöngu við
jarðliti og ljósa, milda tóna. Áferð
hlutanna skiptir mig miklu máli,
kannski vegna þess að ég vinn
mikið með áferð í minni listsköp-
un. Ég vil hafa náttúrulega áferð á
hlutunum og efnisvalið er eftir því,
olíuborið timburgólf, ull, bómull
og hör eru áberandi hér heima.
Mér finnst náttúruleg efni verða
fallegri við notkun með árunum.
Allir útveggir inni í húsinu eru
málaðir með kalkmálningu frá
Kalklitum. Áferðin er lifandi og
hlýleg og hefur enst alveg ótrúlega
vel. Innveggir hússins eru allir mál-
aðir með hvítri, mattri málningu.“
Saga og minningar skipta máli
Margir hlutir og munir á heimilinu
eiga sér sögu og hafa tilfinninga-
legt gildi fyrir hjónin. „Heimilið
okkar Guðmundar hefur þróast
með okkur þessi rúmu 30 ár sem
við höfum verið saman. Okkur
þykir vænt um húsgögnin okkar
og erum ekki mikið að skipta þeim
út. Mér þykir fallegt þegar það sést
á hlutum að þeir eru notaðir og
eru jafnvel orðnir svolítið slitnir
og lífsreyndir. Þá fylgir þeim saga
og minningar sem eru svo mikils
virði.
Hins vegar skipti ég gjarnan um
ábreiður og púðaver eftir árstíðum.
Þegar daginn fer að lengja er
gaman að taka inn bjartari og glað-
legri liti en þegar vetrar rúllum
við út mottum og drögum fram
dekkri púðaver og setjum kerti í öll
skúmaskot.
Ég hef svo mikið dálæti á
borðum af öllum stærðum og
gerðum og á aldrei nóg af þeim.
Borðstofuborðið hefur fylgt mér
lengi. Ég hannaði það og bjó til
fæturna úr leir. Innskotsborðin eru
orðin mjög gömul, þau eru eftir afa
minn og ég held mikið upp á þau.“
Allt leirtau á heimilinu er eftir
Margréti og fær að njóta sín. „Ég
tek gjarnan með mér heim af verk-
stæðinu hluti sem verða aðeins
öðruvísi en þeir áttu að verða.
Hlutir sem verða sérkennilegir og
einhverjum finnast gallaðir búa oft
yfir miklum sjarma. Matarstellið
okkar samanstendur af mismun-
andi stórum diskum og skálum
af ýmsum gerðum en þegar þetta
raðast saman myndar það sterka
heild.“
Körfustóllinn ómissandi
Eldhúsið er stílhreint, stórt og bjart
með stórum gluggum þar sem
útsýnið er stórfenglegt og má segja
að þar sé lifandi málverk á ferð
sem breytist frá degi til dags. Mar-
grét hefur gaman af því að sýsla í
eldhúsinu og segir að það sé einn
hlutur þar sem henni finnst ómiss-
andi af hafa.
„Í eldhúsinu er gamall notalegur
körfustóll sem gott er að setjast í.
Þegar verið er að sýsla í eldhúsinu
finnst fólki gott að setjast í hann,
þá er hægt að spjalla á meðan
er verið að stússast. Eldhúsið er
þannig ekki bara vinnusvæði
heldur einnig rými þar sem hægt
er að slaka á,“ segir Margrét, sem
kann svo sannarlega að njóta, enda
mikill lífskúnstner.
Blóm skipa líka ákveðinn sess
á heimilinu og í eldhúsinu er ein
risastór planta sem setur sterkan
svip á eldhúsið.
„Ég er mikil blómakona og þarf
að skrafa aðeins við blómin á
hverjum degi. Pelargóníur eru í
sérstöku uppáhaldi hjá mér en þær
eru viljugar að blómstra. Á veturna
er ég mikið með afskorin blóm og
mér finnst það alltaf gefa heimil-
inu fallegan svip.“
Villt náttúran fær að njóta sín
Lóðin í kringum húsið er ekki
hefðbundin. „Það eru klappir á
lóðinni, mosi, stórar breiður af
roðafífli og margar blómategundir
sem vaxa villtar í náttúrunni. Við
viljum hafa sem minnst af grasi
sem þarf að slá og reynum að haga
garðinum þannig að hann þurfi
ekki mikla umhirðu.
Ég hef ekki viljað hafa mikið af
blómabeðum en bóndarósir get ég
ekki staðist svo þær eru nokkrar í
beði sunnan undir vegg. Þegar ég
huga að garðinum finnst mér gott
að gera það seint á kvöldin og njóta
um leið kvöldsólarinnar, kyrrðar-
innar og þessa dásamlega útsýnis
sem hér er.“
Heimili Margrétar er hennar
griðastaður og veitir henni vel-
líðan. „Mér finnst alltaf gott að
koma heim til mín og það er
ómetanlegt að eiga heimili þar sem
manni líður vel og finnur frið, ró
og skjól með sínu góða fólki. Fyrir
það er ég þakklát,“ segir Margrét að
lokum. n
Okkur
þykir vænt
um hús-
gögnin
okkar og
erum ekki
mikið að
skipta
þeim út.
2 kynningarblað A L LT 22. júlí 2022 FÖSTUDAGUR