Fréttablaðið - 22.07.2022, Síða 22
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Birna Lárusdóttir
Hveralind 2,
lést á Hjartadeild Landspítalans
mánudaginn 18. júlí, í faðmi
fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá
Lindakirkju í Kópavogi miðvikudaginn 27. júlí klukkan 13.
Athöfninni verður streymt á www.lindakirkja.is/utfarir.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjartadeildar Landspítalans
fyrir einstaka alúð í veikindum hennar.
Bjarni Lárus Harðarson Nína Vilborg Hauksdóttir
Kristján Þór Harðarson Geirlaug B. Geirlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýju við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Steindórssonar
Ljósheimum 16a,
Reykjavík.
Katrín Sigurðardóttir Sonnentag Þorsteinn Jóhannsson
Páll Sigurðsson Wieslawa Paszek
Kristín, Páll og Pétur
Antoni og Tymon
Þorsteinn Örn
Algjör draumur fyrir
ungan tónlistarmann
María Emilía hóf tónlistarnám sitt aðeins þriggja ára gömul. MYND/ATLI ARNARSSON
1227 Valdimar sigursæli bíður ósigur gegn þýsku greif-
unum í orrustunni við Bornhöved.
1245 Kolbeinn ungi Arnórsson, höfðingi af ætt Ásbirn-
inga, andast 37 ára að aldri.
1513 Kristján II. verður konungur Danmerkur og Noregs.
1581 Áttatíu ára stríðið hefst: Norðurhéruð Niðurlanda
sverja afneitunareiðinn og segja sig úr lögum við
Filippus II. Spánarkonung.
1684 Gísli Þorláksson
biskup á Hólum
andast 53 ára.
Hann er þrí-
kvæntur.
1910 Zeppelin-loft-
farið flýgur í
fyrsta skipti.
1929 Landakotskirkja
í Reykjavík er
vígð.
1939 Tveir þýskir
kafbátar koma
til Reykjavíkur.
Þetta eru fyrstu
kafbátarnir sem
koma til Íslands.
1992 Bandaríska leikkonan Selena Gomez fæðist.
2003 Uday og Qusay Hussein, synir Saddams Hussein,
eru felldir eftir umsátur í Írak.
2011 Eden í Hveragerði brennur til kaldra kola í stór-
bruna.
2013 Georg prins af Cambridge fæðist á þessum degi.
Merkisatburðir
Strauss norðursins
María Emilía Garðarsdóttir
fiðluleikari var ein af örfáum
sem fengu aðild að nýstofnaðri
akademíu Fílharmóníusveitar
Kaupmannahafnar.
arnartomas@frettabladid.is
Lumbye-akademían er glæný stofnun á
vegum Fílharmóníusveitar Kaupmanna-
hafnar þar sem lagt er upp með að styðja
við bakið á efnilegu tónlistarfólki víðs
vegar um Evrópu og undirbúa það fyrir
þær síbreytilegu kröfur sem fylgja því að
vera í sinfóníuhljómsveit. María Emilía
Garðarsdóttir fiðluleikari var ein þeirra
sem sóttu um þegar akademían aug-
lýsti eftir umsóknum og tryggði sér eitt
örfárra sæta sem í boði voru.
„Ég veit ekki hversu margir sóttu um,
en það var þrjátíu og einn fiðluleikari
sem fékk að koma í prufu fyrir þau
fjögur pláss sem í boði voru,“ segir María
Emilía, sem lýsir prufuspili sem sér-
stakri reynslu. „Það spila allir það sama
og maður þarf að spila allt fullkomlega
án þess að virðast vera varkár, því maður
verður að skapa tónlistarlega upplifun á
örfáum sekúndum fyrir dómnefndina til
að standa upp úr fjöldanum.“
Draumi líkast
María Emilía segir það algjöran draum
fyrir ungan tónlistarmann að fá inni í
akademíunni.
„Að komast þangað inn þýðir að ég hef
stöðugt starf í hljómsveit næstu tvö árin
þar sem ég mun hafa mikið af forsendum
til þess að verða betri í mínu fagi,“ segir
hún og bendir á að eitt af markmiðum
akademíunnar sé að meðlimir fái sæti í
fremstu sinfóníuhljómsveitum heimsins
þegar tveggja ára samningnum lýkur.
„Mér finnst það ennþá svo óraunveru-
legt að hafa unnið starf í hljómsveitinni
næstu tvö árin, því þetta er alveg týpískt
eitthvað sem mig myndi dreyma um í
svefni og vakna svo ótrúlega vonsvikin
og fúl.“
Blíðviðri og skosk hálandanaut
Aðspurð segist María Emilía í rauninni
alltaf hafa spilað á fiðlu. Hún hóf nám
í Suzuki-deild Tónskóla Sigursveins
þriggja ára og var þar trygg og trú þar til
hún útskrifaðist þaðan með Auði Haf-
steinsdóttur sem aðalkennara.
„Þá var förinni heitið til Kaupmanna-
hafnar í Konunglega danska tónlistar-
konservatoríið þar sem ég kláraði
bakka lárgráðu 2021, en ég er þar enn í
námi og á eitt ár eftir af meistaranáminu
mínu, þar sem ég hef Frederik Øland úr
Danska strengjakvartettinum, og Elisa-
beth Zeuthen Schneider sem leiðbein-
endur.“
Og lífið í Danmörku er ansi gott.
„Veðrið er gott og maður getur hjólað
allt sem maður fer. Ég hef ekki mikið
rúm fyrir önnur áhugamál utan tón-
listarinnar, en þar sem það tekur mikið
á að vera að fara í mikið af keppnum og
prufuspilum reyni ég að vera mikið í
náttúrunni því það hjálpar mér mikið
með streituna sem fylgir þessu. Það er til
dæmis stór villtur garður beint við hlið-
ina á heimilinu mínu í Kaupmannahöfn
þar sem skosk hálandanaut ganga laus,
og það er einmitt uppáhaldsstaðurinn
minn til að vera og svara tölvupóstum
og svoleiðis.“ n
Hans Christian Lumbye fæddist í
Kaupmannahöfn 2. maí 1810. Hann
stundaði tónlist frá unga aldri og
fékk stöðu sem hornleikari í sin-
fóníuhljómsveit aðeins fjórtán ára
gamall.
Þegar Tívolíið í Kaupmannahöfn
var opnað 1843 var Lumbye gerður
að stjórnanda Tívolísveitarinnar,
sem síðar varð að Fílharmóníusveit
Kaupmannahafnar. Hann samdi um
700 verk fyrir sveitina á næstu þrjá-
tíu árum, einna helst polka og valsa.
Lumbye var ástsælt skáld, þekktur
fyrir aðgengileg tónverk sín þar sem
hljóð sem ekki eru framkölluð úr
hljóðfærum voru notuð í mörgum
þeirra, til dæmis hvellur úr kampa-
vínsflösku í einu þekktasta verki
hans, Kampavínsgalloppinu.
Lumbye var undir miklum áhrifum
frá austurríska tónskáldinu Johan
Strauss eldri og fékk því viðurnefnið
„Strauss norðursins“. Lumbye var
hins vegar í svo miklum metum hjá
Dönum að þeir tóku upp á því að
kalla Johan Strauss yngri „Lumbye
suðursins“.
Þetta er alveg týpískt
eitthvað sem mig myndi
dreyma um í svefni og
vakna svo ótrúlega von-
svikin og fúl.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 22. júlí 2022 FÖSTUDAGUR