Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 65
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir, mágur og frændi, Ásmundur Einarsson varð bráðkvaddur 24. júlí síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 12. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð barna hans: 0370-13-011901, kt. 180282-4839. Rósa Björk , Einar, Katrín Anna Hjálmfríður Björg Jóhannsdóttir Kristín Helga Einarsdóttir Gunnar Auðunn Jóhannsson og fjölskylda. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Aðalheiður Dröfn Gísladóttir Víðigrund 16, Akranesi, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, sunnudaginn 31. júlí. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða, fyrir góða og hlýja umönnun. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is Þráinn Sigurðsson Gísli Þráinsson Sævar Freyr Þráinsson Hafdís Hannesdóttir Þröstur Heiðar Þráinsson Kaori Ohtomo Heiðrún Þráinsdóttir Kelly Martin Stuart Kelly barnabörnin. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Jóna Gunnlaugsdóttir lést á Sunnuhlíð 27. júlí. Útför hennar fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 24. ágúst kl. 15.00. Karl Jóhann Jóhannsson Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir Guðrún Jóhannsdóttir Ásgerður Diljá Karlsdóttir, Karlotta Kara Karlsdóttir Ingibjörg Æsa Karlsdóttir Baldur Þór Sigurðarson, Kristján Þórarinsson Árný Jónasdóttir, Óli Hrafn Jónasson Andri Jónasson, Brynjar Jónasson Jónas Bjarki Brynjarsson Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Kristinn Fjeldsted frá Raknadal við Patreksfjörð, sem lést í Perth í Ástralíu, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 11. ágúst klukkan 15. Frances Taylor Ragnar Fjeldsted Hrafnhildur Hjálmarsdóttir Kristín Fjeldsted Styrgerður Fjeldsted Jóhannes Héðinsson Helga Fjeldsted Kjartan Björnsson Egill Steinar Fjeldsted Caren E. Capangpangan Júlía Veronica Fjeldsted Aaron Kristinn Fjeldsted Sigursteinn Steinþórsson Þóra Guðrún Grímsdóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðmunda Þórhildur Einarsdóttir Lyngbergi 19, Þorlákshöfn, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 31. ágúst. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Einar Óli Sigurbjörnsson Hafdís Gerður Guðmundsdóttir Svanur Þór Sigurbjörnsson Reynir Sigurbjörnsson Helga Ögmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, sonur, afi, bróðir, unnusti og vinur, Valgarð Heiðar Kjartansson lést á gjörgæsludeild Landspítalans þann 1. ágúst. Útför auglýst síðar. Elís Aron Valgarðsson Ævar Annel Valgarðsson Emil Stormur Valgarðsson Vigdís Ninja Rut Valgarðsdóttir Valey Tindra Valgarðsdóttir Atlas Eldur Flóki Valgarðsson Elvis Aron Elísson Hulda Ósk Ólafsdóttir Kristinn Ragnarsson Kjartan Heiðar Margeirsson Elísa Auður Liljudóttir Valgerður Inga Kjartansdóttir Hafsteinn P. Vattnes Guðrún Margrét Kjartansdóttir Berglind Ósk Kjartansdóttir Pétur S. Pétursson og ættingjar og vinir. Reynir Jónsson frá Fjósatungu í Fnjóskadal, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð laugardaginn 30. júlí. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Alúðarþakkir til starfsfólks Árgerðis fyrir frábæra umönnun. Kristbjörg Jónsdóttir Sigríður Jónsdóttir og aðrir aðstandendur. Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðný Hannesdóttir Efstalandi 10, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 26. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 10. ágúst, klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Rósa S. Jónsdóttir Guðmundur I. Guðmundsson Oddfríður R. Jónsdóttir Hannes A. Jónsson Yukie Moriyama barnabörn og barnabarnabörn. Keflavíkurgöngurnar voru mótmælaaðgerðir sem Samtök hernámsand- stæðinga og síðar Samtök herstöðvaandstæðinga stóðu fyrir í baráttu sinni gegn veru bandaríska setuliðsins á Íslandi á árabilinu 1951 til 2006. Margar þeirra voru með mestu fjöldaaðgerðum 20. aldar á Íslandi. Fyrsta Keflavíkurgangan var gengin 19. júní 1960. Sú níunda var gengin þennan dag fyrir 39 árum. Keflavíkurgöngur fóru þannig fram að þátttakendur héldu snemma að morgni að hliðum herstöðvarinnar á Miðnesheiði. Þar var haldinn stuttur upphafsfundur en síðan var gengið undir fánum og kröfu- spjöldum til Reykjavíkur, hátt í 50 km leið. Jafnt og þétt fjölgaði í göngunni eftir því sem nær dró Reykjavík. Stuttir fundir voru haldnir á hvíldarstöðum á leiðinni, oft í Kúagerði og Straumsvík. Aðgerðirnar enduðu svo með fjöldafundi í miðborginni, oftast á Lækjartorgi. Ýmis félagasamtök hernáms- og herstöðvaand- stæðinga (þar á meðal Samtök herstöðvaandstæðinga) stóðu fyrir samanlagt ellefu Keflavíkurgöngum. n Þetta gerðist: 6. ágúst 1983 Keflavíkurganga gengin í níunda skiptið Vilhjálmur Einarsson bætti eigið Íslandsmet í þrístökki frá því í Melbo- urne 1956 er hann stökk 16,70 metra á frjálsíþróttamóti í Reykjavík og var það þá næstlengsta stökk í heimi. Þetta Íslandsmet stendur enn. „Stórkostlegt afrek sem allar milljóna- þjóðir yrðu stoltar af,“ var skrifað á forsíðu Morgunblaðsins um afrek Vil- hjálms undir mynd sem sýnir hann fara fram hjá öllum merkjum vallarins. „Það afrek er annað bezta þrístökksafrek sem íþróttasagan getur um. Þar til á föstudaginn hefði þessi árangur Vil- hjálms verið jafn staðfestu heimsmeti í greininni, sem Rússinn Fedosojev átti. En á föstudaginn stökk Pólverjinn Josef Schmidt 17,03 m, og er ekki vitað annað um það afrek en það verði stað- fest sem heimsmet,“ stóð á forsíðu blaðsins. Stökksería Vilhjálms var með ein- dæmum jöfn og góð, svo góð að hún hlýtur að skjóta beztu þrístökkvurum heims skelk í bringu,“ stóð enn fremur. Í umfjöllun um mótið kemur fram að Vilhjálmur hafi verið heppinn hreinlega að ná mótinu. Það hafi byrjað klukkan 16 á laugardeginum en 14 á sunnu- deginum þegar þrístökkskeppnin var. Vilhjálmur hélt að mótið byrjaði aftur klukkan fjögur og mætti hann rétt áður, eða fimm mínútur fyrir tvö, og sleppti fyrstu tilraun. En stökkserían var glæsileg: 16,23 í fyrsta stökki, 16,30 í öðru og aftur 16,23 í því þriðja. Svo komu 16,46 metrar áður en risastökkið leit dagsins ljós. Fyrsta stökkið var 6,05 metrar, miðstökkið hljóðaði upp á 5,02 og lokastökkið var 5,63 metrar, eða sam- tals 16,70 metrar. n Þetta gerðist: 7. ágúst 1960 Vilhjálmur jafnaði heimsmet Margar Keflavíkurgöngurnar voru með mestu fjöldaaðgerðum 20. aldar á Íslandi. Vilhjálmur Einarsson frjálsíþróttamaður var einn fremsti íþróttamaður landsins. FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 6. ágúst 2022 Tímamót 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.