Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 2
Bandaríkjamenn köll- uðu kínverska sendi- herrann á teppið. Glóðheitar sýnaveiðar Eldgosið í Meradölum er einstakt tækifæri til rannsókna. Í gær voru vísindamenn að safna kvikusýnum sem er ekki hættulaust verk. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Jökulsárhlaupið fer fram í dag í fyrsta sinn síðan Covid- faraldurinn flautaði það af. Hilmar Gunnarsson, verk- efnastjóri hlaupsins, getur ekki beðið eftir að fólk fari eina fallegustu hlaupaleið landsins, frá Dettifossi niður í Ásbyrgi. Sjálfboðaliðar bera drykki yfir einn kílómetra. benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG „Það er gríðarleg til- hlökkun. Mikil eftirvænting og maður hefur auðvitað verið með í maganum síðustu daga og vikur yfir veðrinu því þetta sumar er búið að vera nánast eins og Skálmöld söng í gamla daga, myrkur, kuldi, ís og snjór,“ segir Hilmar Gunnarsson, verkefnastjóri Jökulsárhlaupsins, sem hófst í dag í 19. sinn. Hlaupinu hefur verið af lýst síð- ustu tvö ár vegna Covid en í fyrra var það f lautað af nánast korteri fyrir ræsingu. Margir hlauparar færðu skrán- ingu yfir á þetta ár en síðan fyrst var hlaupið hefur yfirleitt selst upp í það á fjórum til sex mínútum. „Við höfum ekkert verið að gera í markaðssetningu. Þetta selst alltaf upp og þetta er kannski ekki mjög sýnilegt hlaup. Við erum með gamla heimasíðu og Facebook-síðu sem er virk tvisvar á ári nánast. En við erum pínu viljandi að gera það því eftir- spurnin er allt of mikil nú þegar,“ segir Hilmar. Sólin skein skært á Norðurlandi í gær þegar Fréttablaðið sló á þráð- inn til Hilmars. Hann var þá sæll og glaður enda hefur veðrið verið hálf- ömurlegt þetta sumarið. „Það er pínu léttir að sjá hvernig veðrið er að spilast. Maður er nánast að fara á límingunum að sjá tveggja stafa hitatölur,“ segir hann léttur. Um 40-50 sjálf boðaliðar standa að hlaupinu og fjögurra manna stjórn ber hitann og þungann af því. „Allir þessir sjálf boðaliðar eru heimamenn úr Kelduhverfi og Öxar- firði. Þessu er haldið uppi af þeim. Þetta er stór viðburður og væri ekki möguleiki án allra sjálfboðaliðanna. Margir hverjir hafa verið að vinna við hlaupið frá upphafi.“ Í Jökulsárhlaupinu er hægt að hlaupa þrjár vegalengdir: 32,7 kíló- metra, 21,2 kílómetra og 13 kíló- metra. Öll hlaupin enda í Ásbyrgi. Lengsta leiðin byrjar við Dettifoss. Millivegalengdin leggur af stað frá Hólmatungum og stysti leggurinn byrjar við Hljóðakletta. Hilmar bendir á að fimm drykkj- arstöðvar séu á leiðinni og klöngrast sjálf boðaliðar með vatn og annað allt að einn og hálfan kílómetra frá vegi. „Það er bras að koma öllu þangað. Það er hægt að keyra langleiðina en það þarf að bera allt á stöðvarnar yfir móa og mela.“ n Sjálfboðaliðar leggja margt á sig í erfiðu Jökulsárhlaupi Í Jökulsárhlaupinu er þrjár vegalengdir: 32,7 kílómetrar, 21,2 kílómetrar og 13 kílómetrar. Allir endar í Ásbyrgi. Ræst er við Dettifoss. MYND/JÖKULSÁRHLAUP Maður er nánast að fara á límingunum að sjá tveggja stafa hita- tölur. Hilmar Gunnars- son, verkefna- stjóri Jökulsárs- hlaupsins ARCTIC HEALTH AHI.IS KALK HREIN ÍSLENSK FÆÐUBÓT VÖÐVAR TENNUR BEIN Í POKUM FYRIR LÁGMARKS KOLEFNISSPOR kristinnhaukur@frettabladid.is SAMFÉLAG Kiwanismenn og Eim- skip gáfu börnum í bænum Gimli í Manitoba-fylki í Kanada hjóla- hjálma í byrjun mánaðarins. Um áraraðir hafa íslensk börn fengið hjólahjálma að gjöf en þetta er í fyrsta sinn sem Vestur-Íslendingar fá slíkar gjafir. Gimli er stærsti bær- inn í Vestur-Íslandi og þar búa rúm- lega tvö þúsund manns. Hjálmarnir, sem voru tæplega 100 talsins, bárust á sama tíma og Íslendingahátíð var haldin í bænum. Meðal þeirra sem fengu hjálma voru börn úkraínskra flóttamanna. Það voru hjónin Terry og Sam Sekhon sem höfðu frumkvæði og milligöngu um gjafirnar. Hugmynd- ina fengu þau í heimsókn til Íslands árið 2019. n Gáfu hjólahjálma í Vesturheimi Hjálmarnir vöktu mikla lukku barna í bænum Gimli. MYND/SEKHORN-HJÓNIN gar@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL „Ég hef aldrei upp- lifað jafn mikinn sársauka,“ segir hinn 32 ára Olivier Ishimwe frá Kaupmannahöfn við Danmarks Radio um reynslu sína af apabólu. Að sögn DR hefur 101 smitast í Danmörku. Olivier greindist í júní. Lýsir hann fyrstu vikunum þar á eftir eins og „löngu sársaukahelvíti“ sem hann gæti ekki óskað sínum versta óvini að ganga í gegnum. „Ég tók allar mögulegar tegundir af verkja- töf lum en þær slógu ekki á sárs- aukann. Ég hélt ég myndi deyja.“ n Leið óbærilegar kvalir af apabólu Maður með apabólu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. kristinnhaukur@frettabladid.is TAÍVAN Kínverjar hafa slitið sam- starfi við Bandaríkjamenn í ýmsum málaf lokkum, þar á meðal lofts- lagsmálum. Er ástæðan heimsókn Nancy Pelosi þingforseta til Taívan. Auk loftslagsmála hafa Kínverjar slitið samstarfi við Bandaríkjamenn í málefnum ólöglegra innflytjenda, fíkniefnamálum og nokkrum fleiri málaflokkum. Bandaríkjamenn svöruðu þessu með því að kalla kínverska sendi- herrann í Washington á teppið og fordæma ábyrgðarleysi Kínverja. n Kínverjar hætta loftslagssamstarfi 2 Fréttir 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.