Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 49
kopavogur.is
Kópavogsbær leitar að öflugum stjórnanda til að leiða launadeild bæjarins. Launadeild tilheyrir
fjármálasviði bæjarins, næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjármálasviðs. Í deildinni vinna níu starfsmenn
sem heyra undir stjórnandann. Launadeild annast launavinnslu um 3.000 starfsmanna mánaðarlega
og á sumrin bætast við u.þ.b. 1.200 starfsmenn.
Leitað er eftir skipulögðum, öflugum og lausnamiðuðum leiðtoga til að stýra deildinni, þjónusta
og leiðbeina stjórnendum og leiða umbætur og breytingar. Yfirmaður launadeildar er í miklum
samskiptum við aðra stjórnendur hjá bænum.
Helstu verkefni og ábyrgðr
· Stýrir starfsemi launadeildar, gæðastarfi deildar og samræmingu verklags.
· Ábyrgð á mánaðarlegri launavinnslu.
· Ráðgjöf til stjórnenda varðandi launavinnslu og launa- og viðverukerfi.
· Ábyrgð á framkvæmd kjarasamninga.
· Þátttaka við undirbúning og gerð launaáætlunar.
· Ábyrgð á gerð leiðbeininga og kennslu á launa- og viðverukerfi.
· Samskipti við stjórnendur, lífeyrissjóði, stéttarfélög, RSK o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólapróf í verkfræði, viðskiptafræði eða sambærilegu námi.
· Reynsla af stjórnun og starfsmannamálum æskileg.
· Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
· Hæfni til að leiða breytingar og umbótaverkefni.
· Mjög góð tölvukunnátta.
· Þekking og reynsla af launavinnslu kostur.
· Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
· Gott vald á íslensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 15.ágúst 2022.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Einungis er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Egilsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs í netfanginu
kristin.egilsdottir@kopavogur.is eða í síma 693-9801.
Yfirmaður launadeildar
Kópavogsbæjar
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Erum við
að leita
að þér?