Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 60
Kynhneigð segir til um það hverjum fólk getur orðið skotið í, ástfangið af og laðast að. Kynsegin er hugtak sem nær yfir fólk sem skil- greinir kyn sitt utan tvíhyggju kynjakerfisins og á því einnig við um trans. Sumt kynsegin fólk er til dæmis karlkyns og kvenkyns, hvorki karlkyns né kvenkyns eða skilgreinir ekki kyn sitt. Sískynja, eða sís, er lýsingarorð og forskeyti sem er notað um fólk sem upplifir sig á þann hátt að það til- heyri því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Pankynhneigð manneskja hrífst af fólki af öllum kynjum, konum, körlum og fólki af öðrum kynj- um. Það þýðir þó ekki endilega að pankynhneigðir hrífist jafn mikið af öllu fólki. Fyrsta Pride-gangan var gengin á Íslandi árið 2000, þá mættu um tólf þúsund manns í gönguna. Síðan hefur gangan verið gengin á hverju ári og mæta að meðaltali um 100 þúsund manns í miðbæ Reykjavíkur til að sýna sam- stöðu með hinseginleikanum. birnadrofn@frettabladid.is Þann 28. júní árið 1969 réð- ust lögreglumenn inn á Stonewall-krána í Green- wich Village í New York. Stonewall var hinsegin bar og var þetta ekki í fyrsta sinn sem lögreglan réðst inn á slíka bari í borginni. Á þessum degi voru þó viðbrögð gesta og eigenda staðarins ólík því sem vant var. Fólkið á staðnum reis upp gegn lögreglunni og grýtti lög- reglumennina með smápeningum, f löskum og steinum. Á endanum neyddist lögreglan til þess að loka sig inni á staðnum á meðan hópur hinsegin fólks stækkaði og stækk- aði fyrir utan og reyndi að brjóta sér leið inn. Óeirðalögregla mætti á staðinn og tókst henni að lokum að bjarga lögreglumönnunum og stöðva uppþotið. Síðar um kvöldið komu þúsundir mótmælenda aftur saman við Stonewall-krána svo aftur kom til uppþota. Mótmælin héldu svo áfram út vikuna. Stonewall markaði upphaf réttindabaráttunnarKynvitund segir til um hvernig fólk vill lifa og vera í sínu kyni. Kynvitund vísar ekki til kynfæra, líffræði eða útlits heldur upplif- unar fólks af eigin kyni. Eikynhneigð manneskja laðast aldrei eða nær aldrei kynferðislega að öðru fólki. Fyrsta Pride-gangan var haldin í New York þann 28. júní árið 1970, til að minnast þess að ár var liðið frá uppþotinu á Stonewall. Réttinda- barátta hinsegin fólks tók kipp eftir uppþotið á Stonewall og er atburðurinn talinn marka upphaf réttindabaráttu hinsegin fólks á Vesturlöndum eins og við þekkjum hana. Í fyrstu Pride-göngunni var geng- ið frá Christopher Street í Central Park og tóku þúsundir manna þátt í göngunni. Allt frá árinu 1970 hafa Pride- göngur verið haldnar á hverju ári í New York og fljótlega tóku þær að breiðast út víðs vegar um heiminn. Fyrsta hinsegin hátíðin, Hinsegin dagar, var haldin hér á Íslandi árið 1999 með hátíðardagskrá á Ing- ólfstorgi. Samtökin ‘78 stóðu fyrir hátíðinni og á hana mættu um 1.500 manns. Árið síðar var fyrsta Pride- gangan haldin á Íslandi. Árin 1993 og 1994 höfðu þó verið farnar göng- ur í Reykjavík þar sem krafist var jafnréttis, þær voru kallaðar frelsis- göngur homma og lesbía. Talið er að um tólf þúsund manns hafi mætt á fyrstu Pride-gönguna árið 2000. Frá því að fyrsta Pride-gangan var haldin hér á landi hafa Hin- segin dagar verið haldnir árlega nema síðustu tvö ár þar sem þá voru í gildi samkomutakmarkanir vegna Covid-19. Hinsegin dagar eru orðin ein stærsta hátíð landsins og fram að faraldrinum mættu að meðaltali um 100 þúsund manns í miðbæinn til að fylgjast með göngunni og styðja við hinseginleikann. Hátíðin í ár hefur verið með afar fjölbreyttri dagskrá en hún hófst 2. ágúst. Í dag fer gangan sjálf fram og leggur hún af stað frá Hallgríms- kirkju klukkan 14. n 24 Helgin 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.