Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 76
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@ frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Hvað ætlum við eigin- lega að gera annað en að henda glimmer framan í okkur og mæta með fána á Arnarhól í dag? Vinsældir óáfengra bjóra í kjörbúðum landsins hafa verið í miklum vexti undan- farið ár og hefur salan hátt í tvöfaldast í þessum vöru- flokki. Þessi alda byrjaði að rísa þegar fyrsti áfengislausi íslenski bjórinn, Bríó frá Borg Brugghúsi, kom á markað fyrir tveimur árum. benediktboas@frettabladid.is Salan á óáfengum bjór sprakk út í Covid-faraldrinum. Meiri krafa er sett á gæði og gott vöruúrval í þessum f lokki í helstu matvöru- verslunum og sífellt bætist við úrval áfengislausra bjóra. Stóru bjórframleiðendurnir úti í heimi bjóða nú sinn mjöð með núll prósent áfengi og er bragðið ekkert síðra. Þannig að nú má drekka alveg helling, setjast síðan upp í bíl og keyra heim en fátt er hallærislegra en að keyra drukkinn. Borg Brugghús er með fjórar ólíkar áfengislausar bjórtegundir í gangi um þessar mundir en Borg reið á óáfenga vaðið með Bríó og hefur nú varla undan. „Bríó er þarna enn þá og veldur okkur talsverðu veseni vegna vinsælda. Það varla borgar sig að brugga þetta því hann klárast alltaf strax,“ segir Halldór Darri, bruggmeistari hjá Borg. Í vörulínunni er einnig að finna IPA-bjórinn Ylfu sem hlaut gull- verðlaun í European Beer Challenge, hindberjabombuna Helgu sem dregur nafn sitt af samnefndum smjattpatta, auk sérútgáfunnar Bríó De Janeiro. Engin vatnsþynnt málamiðlun Áhuginn hér á landi hefur verið í takt við það sem hefur verið að gerast annars staðar í Vesturheimi þar sem vöxturinn er mikill með síauknum kröfum um gæði og fjöl- breytni. „Þetta er eins og margt annað. Við höfum lagt áherslu á að þróa áfeng- islausan bjór sem samanstendur af hágæða hráefnum með fyrsta flokks framleiðsluaðferðum. Þeir dagar eru liðnir þegar áfengislaus bjór var ein- hver vatnsþynnt málamiðlun. Svo ber að hafa í huga að þetta er bæði matvara og ferskvara. Það er ekki tilviljun að lókal bjórar eru þeir vin- sælustu í langflestum löndum. Þeir eru einfaldlega ferskari en það sem eldra er. Boltinn rúllar „En viðhorf ið til áfengislausu bjóranna hefur gjörbreyst undan- farið. Hér áður fyrr þótti það jafn- vel ákveðinn stimpill að drekka óáfengan bjór. Maður varð fyrir ýmiss konar aðkasti og ályktunum jafnvel. Sífellt f leiri eru að kynnast þeirri gæðabyltingu sem orðin er í þessum flokki, því hversu vel rétta ölið passar með ákveðnum mat og hversu heilsusamlegur kostur áfengislaus bjór er,“ segir Halldór. Hann segir að framtíðin í þró- uninni sé björt og líkt og í enska boltanum sé alltaf verið að leita að nýjum leikmönnum til að skipta inn á. „Við erum að þróa nýja leik- menn sem lenda síðar á árinu og svo er von á áfengislausum jólabjórum frá okkur eins og undanfarin tvenn jól. Það borgar sig varla að hætta úr þessu,“ segir Halldór léttur – eins og bjórinn. n Ekki lengur tabú að drekka óáfengan bjór í partíum Halldór Darri, bruggmeistari hjá Borg, segir óáfengan bjór ekki lengur vera neitt feimnismál. MYND/HARI Þeir dagar eru liðnir þegar áfengislaus bjór var einhver vatns- þynnt málamiðlun. toti@frettabladid.is „Jæja, þá er farið að gjósa. Ég er strax komin með útundanótta og skjálftaöfund, því ég missti af öllum látunum síðast því ég var erlendis,“ segir Ugla Stefanía, formaður Trans Ísland. „Fjölskyldan meira að segja bókaði sér þyrluferð og sagði frá geggjuðum fjölskyldudegi á sam- félagsmiðlum. Án mín. Smá skellur. Annars er hápunktur Hinsegin daga í dag. Aldrei hefur verið mikil- vægara að minnast sögu Hinsegin daga, sem eiga auðvitað rætur að rekja til kröfugöngu, þar sem órétt- læti, fordómum og útskúfun var mótmælt. Hinsegin fólk á Íslandi hefur nefnilega fyrir ótal mörgu að berjast enn þá ef marka má nýlegan pistil ritstjóra Morgunblaðsins og ummæli vararíkissaksóknara sem ýjaði að því að það væri ofgnótt af hommum á Íslandi. Hinsegin fólk upplifir enn for- dóma á Íslandi, eins og gelt úti á götu, einelti í skólum eða óréttmæt- ar handtökur á Hinsegin dögum. Við höfum það vissulega gott hér, en það er kominn tími til að gyrða sig í brók og horfast í augu við bak- slagið. Hvað ætlum við eiginlega að gera annað en að henda glimmer framan í okkur og mæta með fána á Arnarhól í dag?“ n Gleðilega Hinsegin daga – og hvað svo? Ugla Stefanía, formaður Trans Ísland. MYND/MÓA HJARTARDÓTTIR n Frétt vikunnar Ugla Stefanía Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða eða aðgang að útsölum á undan öðrum með því að skrá þig á póstlista Dorma. *Mjúka deildin samanstendur af dýnum, sængum, koddum, rúmfötum, lökum, sloppum, dýnuhlífum, mottum, inniskóm og handklæðum. MJÚKIR DAGAR 20% afsláttur af öllum rúmum og mjúku deildinni* Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Ve rð o g vö ru up pl ýs in ga r í a ug lý si ng un ni e ru b ir ta r m eð f yr ir va ra u m p re nt vi llu r. 40 Lífið 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.