Fréttablaðið - 06.08.2022, Page 76
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Hvað ætlum við eigin-
lega að gera annað en
að henda glimmer
framan í okkur og
mæta með fána á
Arnarhól í dag?
Vinsældir óáfengra bjóra í
kjörbúðum landsins hafa
verið í miklum vexti undan-
farið ár og hefur salan hátt
í tvöfaldast í þessum vöru-
flokki. Þessi alda byrjaði að
rísa þegar fyrsti áfengislausi
íslenski bjórinn, Bríó frá Borg
Brugghúsi, kom á markað
fyrir tveimur árum.
benediktboas@frettabladid.is
Salan á óáfengum bjór sprakk út
í Covid-faraldrinum. Meiri krafa
er sett á gæði og gott vöruúrval í
þessum f lokki í helstu matvöru-
verslunum og sífellt bætist við úrval
áfengislausra bjóra.
Stóru bjórframleiðendurnir úti í
heimi bjóða nú sinn mjöð með núll
prósent áfengi og er bragðið ekkert
síðra. Þannig að nú má drekka alveg
helling, setjast síðan upp í bíl og
keyra heim en fátt er hallærislegra
en að keyra drukkinn.
Borg Brugghús er með fjórar
ólíkar áfengislausar bjórtegundir
í gangi um þessar mundir en Borg
reið á óáfenga vaðið með Bríó og
hefur nú varla undan. „Bríó er þarna
enn þá og veldur okkur talsverðu
veseni vegna vinsælda. Það varla
borgar sig að brugga þetta því hann
klárast alltaf strax,“ segir Halldór
Darri, bruggmeistari hjá Borg.
Í vörulínunni er einnig að finna
IPA-bjórinn Ylfu sem hlaut gull-
verðlaun í European Beer Challenge,
hindberjabombuna Helgu sem
dregur nafn sitt af samnefndum
smjattpatta, auk sérútgáfunnar Bríó
De Janeiro.
Engin vatnsþynnt málamiðlun
Áhuginn hér á landi hefur verið
í takt við það sem hefur verið að
gerast annars staðar í Vesturheimi
þar sem vöxturinn er mikill með
síauknum kröfum um gæði og fjöl-
breytni.
„Þetta er eins og margt annað. Við
höfum lagt áherslu á að þróa áfeng-
islausan bjór sem samanstendur af
hágæða hráefnum með fyrsta flokks
framleiðsluaðferðum. Þeir dagar eru
liðnir þegar áfengislaus bjór var ein-
hver vatnsþynnt málamiðlun. Svo
ber að hafa í huga að þetta er bæði
matvara og ferskvara. Það er ekki
tilviljun að lókal bjórar eru þeir vin-
sælustu í langflestum löndum. Þeir
eru einfaldlega ferskari en það sem
eldra er.
Boltinn rúllar
„En viðhorf ið til áfengislausu
bjóranna hefur gjörbreyst undan-
farið. Hér áður fyrr þótti það jafn-
vel ákveðinn stimpill að drekka
óáfengan bjór. Maður varð fyrir
ýmiss konar aðkasti og ályktunum
jafnvel. Sífellt f leiri eru að kynnast
þeirri gæðabyltingu sem orðin er í
þessum flokki, því hversu vel rétta
ölið passar með ákveðnum mat
og hversu heilsusamlegur kostur
áfengislaus bjór er,“ segir Halldór.
Hann segir að framtíðin í þró-
uninni sé björt og líkt og í enska
boltanum sé alltaf verið að leita að
nýjum leikmönnum til að skipta
inn á. „Við erum að þróa nýja leik-
menn sem lenda síðar á árinu og svo
er von á áfengislausum jólabjórum
frá okkur eins og undanfarin tvenn
jól. Það borgar sig varla að hætta úr
þessu,“ segir Halldór léttur – eins og
bjórinn. n
Ekki lengur tabú að drekka
óáfengan bjór í partíum
Halldór Darri, bruggmeistari hjá Borg, segir óáfengan bjór ekki lengur vera neitt feimnismál. MYND/HARI
Þeir dagar eru liðnir
þegar áfengislaus bjór
var einhver vatns-
þynnt málamiðlun.
toti@frettabladid.is
„Jæja, þá er farið að gjósa. Ég er
strax komin með útundanótta og
skjálftaöfund, því ég missti af öllum
látunum síðast því ég var erlendis,“
segir Ugla Stefanía, formaður Trans
Ísland. „Fjölskyldan meira að segja
bókaði sér þyrluferð og sagði frá
geggjuðum fjölskyldudegi á sam-
félagsmiðlum. Án mín. Smá skellur.
Annars er hápunktur Hinsegin
daga í dag. Aldrei hefur verið mikil-
vægara að minnast sögu Hinsegin
daga, sem eiga auðvitað rætur að
rekja til kröfugöngu, þar sem órétt-
læti, fordómum og útskúfun var
mótmælt. Hinsegin fólk á Íslandi
hefur nefnilega fyrir ótal mörgu að
berjast enn þá ef marka má nýlegan
pistil ritstjóra Morgunblaðsins og
ummæli vararíkissaksóknara sem
ýjaði að því að það væri ofgnótt af
hommum á Íslandi.
Hinsegin fólk upplifir enn for-
dóma á Íslandi, eins og gelt úti á
götu, einelti í skólum eða óréttmæt-
ar handtökur á Hinsegin dögum.
Við höfum það vissulega gott hér,
en það er kominn tími til að gyrða
sig í brók og horfast í augu við bak-
slagið. Hvað ætlum við eiginlega að
gera annað en að henda glimmer
framan í okkur og mæta með fána
á Arnarhól í dag?“ n
Gleðilega Hinsegin daga – og hvað svo?
Ugla Stefanía, formaður Trans Ísland.
MYND/MÓA HJARTARDÓTTIR
n Frétt vikunnar
Ugla Stefanía
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
*Mjúka deildin samanstendur af dýnum, sængum, koddum,
rúmfötum, lökum, sloppum, dýnuhlífum, mottum,
inniskóm og handklæðum.
MJÚKIR
DAGAR
20%
afsláttur
af öllum rúmum
og mjúku
deildinni*
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
40 Lífið 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ