Skessuhorn - 28.07.2021, Side 12
miðvikudagur 28. júlí 202112
myndavél hefur verið komið fyr-
ir undir vatnsyfirborðinu í veiði-
fossi í grímsá. Fossinn er framan
við veitingahúsið í Fossatúni og er
fyrrum helsti maðkveiðistaður ár-
innar, en ekki er veitt í honum eft-
ir að grímsá varð eingöngu flugu-
veiðiá. allur lax í ánni þarf að fara
upp veiðifoss og því hafa gestir á
útipalli veitingahússins í Fossatúni
löngum getað séð fiskinn stökkva
þar. myndavél eykur á þessa upplif-
un gesta þar sem möguleiki er á að
sjá laxinn athafna sig undir vatns-
yfirborðinu og í beinni útsendingu
á skjá í sal veitingahússins. að sögn
Steinars Berg í Fossatúni stendur
til að þróa hugmyndina enn frek-
ar ef vel tekst til, jafnvel bæta við
myndavélum og hafa útsendinguna
aðgengilega í rauntíma á netinu.
mm
mæðrastyrksnefnd akraness er
að fá margar beiðnir um matar-
aðstoð þessa dagana. Það er víða
þröngt í búi. „Ef einhverjir eru af-
lögufærir með að styrkja félagið,
þannig að hægt sé að veita öðrum
lið, þá er reikningsnúmerið okkar:
0552-14-402048 kt: 411276-0829,“
segir í tilkynningu til íbúa á akra-
nesi og í nágrenni. „við gefum út
reikning fyrir bókhaldið hjá fyrir-
tækjum,“ bæta konurnar í mæðra-
styrksnefnd akraness við.
mm
vegagerðin og landeigendur graf-
ar í Þorskafirði náðu á föstudag-
inn samkomulagi um vegalagn-
ingu í gufudalssveit. Þar með er
langþráðum áfanga náð í deilu sem
nær fjölmörg ár aftur í tímann, en
nú hefur framgangur nauðsynlegra
samgöngubóta á sunnanverðum
vestfjörðum loks verið tryggður.
Eigendur grafar voru þeir einu
sem ósamið var við. deilur hafa
staðið um framkvæmdina vegna
áhrifa á umhverfið. við endurupp-
töku málsins nú síðustu ár hefur
í allri hönnun verið lögð höfuð-
áhersla á að leita leiða til þess að
lágmarka þau áhrif eins og nokk-
ur kostur er.
„vegagerðin og eigendur graf-
ar eru á einu máli að standa vel
að verki og vanda frágang eins
og kostur er. landeigendur graf-
ar hafa staðið gegn framkvæmd-
inni með hagsmuni náttúrunnar
að leiðarljósi og verið í forgrunni í
þeirri baráttu. í kjölfar niðurstöðu
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála varðandi fram-
kvæmdaleyfi hafa þeir hins vegar
unnið að því með vegagerðinni
að laga framkvæmdina sem best
að landi innan landamerkja graf-
ar þannig að hún hafi sem minnst
inngrip í náttúruna,“ segir í til-
kynningu.
Framkvæmdir hófust sumarið
2020 með endurbyggingu vest-
fjarðavegar frá Skálanesi í gufu-
dal sem gert er ráð fyrir að ljúki nú
á næstu vikum og verður þá rúm-
lega fimm km kafli vestfjarðaveg-
ar lagður bundnu slitlagi. Nú í vor
hófust svo framkvæmdir við þver-
un Þorskafjarðar frá kinnarstöð-
um að Þórisstöðum og er bygging
260 m langrar brúar að hefjast og
er gert ráð fyrir verklokum 2024.
Næsti áfangi verksins er bygging
djúpadalsvegar, rúmlega fimm
km langs vegar sem mun tengja
djúpadal við nýjan vestfjarðaveg.
útboð var auglýst 21. júlí síðast-
liðinn og gert er ráð fyrir að þeim
framkvæmdum verði lokið sumar-
ið 2022. Frekari útboð verða svo
auglýst í haust. mm
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norð-
vesturkjördæmi var samþykktur á fundi
kjördæmisráðs flokksins síðastliðinn sunnu-
dag. Efstu sæti eru skipuð í samræmi við
niðurstöðu prófkjörs sem fram fór í júní.
Þórdís kolbrún reykfjörð gylfadóttir,
varaformaður og ráðherra, leiðir listann.
í öðru sæti er Haraldur Benediktsson, al-
þingismaður og bóndi. í þriðja sæti er Teit-
ur Björn Einarsson, lögfræðingur og vara-
þingmaður, í fjórða sæti Sigríður Elín Sig-
urðardóttir sjúkraflutningakona og í fimmta
sæti er guðrún Sigríður Ágústsdóttir ráð-
gjafi.
Listann í heild sinni er þannig:
Nr. 1. Þórdís kolbrún reykfjörð gylfa-
dóttir, varaformaður og ráðherra
Nr. 2. Haraldur Benediktsson, alþingis-
maður og bóndi
Nr. 3. Teitur Björn Einarsson, lögfræðing-
ur og varaþingmaður
Nr. 4. Sigríður Elín Sigurðardóttir sjúkra-
flutningakona
Nr. 5. guðrún Sigríður Ágústsdóttir ráð-
gjafi
Nr. 6. Örvar már marteinsson skipstjóri
Nr. 7. magnús magnússon sóknarprestur
Nr. 8. lilja Björg Ágústsdóttir, lögmaður
og forseti sveitarstjórnar
Nr. 9. Bjarni Pétur marel jónasson, starfar
við aðhlynningu
Nr. 10. Bergþóra ingþórsdóttir, nemi í
félagsráðgjöf
Nr. 11. Friðbjörg matthíasdóttir, oddviti
og viðskiptafræðingur
Nr. 12. Sigrún Hanna Sigurðardóttir, bú-
fræðingur og bóndi
Nr. 13. anna lind Særúnardóttir, meist-
aranemi í félagsráðgjöf
Nr. 14. gísli Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Tengils og formaður byggðarráðs
Nr. 15. guðmundur Haukur jakobsson,
pípulagningameistari og forseti sveitar-
stjórnar
Nr. 16. Eyrún ingibjörg Sigþórsdóttir, við-
skiptafræðingur.
mm
Hefð er fyrir því í reykhólahreppi
að útnefna íbúa ársins á reykhóla-
dögum. að þessu sinni var það Sól-
ey vilhjálmsdóttir í króksfjarðar-
nesi sem varð fyrir valinu.. „Sóley
hefur alla tíð verið dugleg og dríf-
andi í ýmis konar félagsstarfi. Hún
vann um árabil í útibúi landsbank-
ans í króksfjarðarnesi, síðast sem
útibússtjóri, allt þar til útibúið var
lagt niður. Þjónusta hennar við við-
skiptavini útibúsins var einstaklega
góð og ævinlega hugsað í lausnum
þegar úrlausnarefni bar að hönd-
um,“ segir í umsögn sem birt var á
vef reykhólahrepps.
mm
Margar beiðnir að berast
um mataraðstoð
Skjáskot af myndbandi úr Veiðifossi. Myndarlegur lax stormar upp hylinn.
Gestir á veitingastaðnum
geta fylgst með
laxinum í hylnum
Sóley Vilhjálmsdóttir
og Arnór Grímsson.
Sóley kosin íbúi ársins
í Reykhólahreppi
Tölvumynd af framtíðarvegi yfir Þorskafjörð og út Teigsskóg að vestanverðu.
Samkomulag landeigenda
Grafar og Vegagerðarinnar
Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti framboðslista sinn
Þórdís Kolbrún og Haraldur skipa efstu sæti listans.