Skessuhorn


Skessuhorn - 11.08.2021, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 11.08.2021, Blaðsíða 2
mIðVIkudAguR 11. ÁgúST 20212 Nú þegar sólin hefur loksins ver- ið að láta sjá sig á Vesturlandi síð- ustu daga er ekki úr vegi að minna á það að bera á sig og börnin væna slummu af sólarvörn. Sólin á klak- anum er sterk og margir gleyma sér þegar þeir hlaupa af stað út í sól- ina og ætla að fá sér skyndibrúnku og koma svo til baka skaðbrenndir á sál og á líkama. Því er um að gera að fara varlega í þessum efnum enda er sólbrúnkan fljót að yfirgefa okk- ur þó hún gefi okkur eins og malt- ið, hraustlegt og gott útlit. Því eins og maðurinn sagði: „Betri er bónda- brúnka en engin brúnka.“ Á fimmtudag verður hæg breytileg átt og skýjað með köflum en norð- austan 5-10 m/s og dálítil væta með suðaustur ströndinni. Hiti 11 til 20 stig, hlýjast inn til landsins. Á föstu- dag verður norðlæg átt, 3-10 m/s og skýjað að mestu, lítilsháttar rigning austanlands fram eftir degi en bjart- viðri suðvestan til. Kólnar lítillega fyrir norðan og austan. Á laugardag verður vestlæg eða norðvestlæg átt, 5-10 m/s og skýjað en þurrt að mestu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast syðra. Á sunnudag verður ákveðin suð- vestlæg átt með rigningu í flestum landshlutum en fremur hlýtt veður. Á vef Skessuhorns var spurt í síðustu viku: Syngur þú í baði/sturtu? 72% sögðust aldrei gera það, 20% svör- uðu stundum og 8% sögðust alltaf syngja í sturtu eða baði. Í næstu viku er spurt: Ferðu oft út að borða? Skjaldbakan Marteinn, eða Matti eins og hún er kölluð, er 27 ára með mikla ævintýraþrá og hún ákvað að skreppa út á lífið fyrir nokkrum vik- um. Ferðin gekk hægt eins og oft- ast hjá skjaldbökum og þó, Matti náði að komast alla leið í fjöruna við Kalmansvík þar sem ætlunin var kannski að húkka far með einhverju skemmtiferðaskipinu og kíkja í heimsókn til Galapagoseyja á ættar- mót. Marteinn er verðugur Vestlend- ingur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Líklega óbreytt- ar samkomutak- markanir LANDIÐ: Ríkisstjórnin hélt síðdegis í gær blaðamanna- fund í Reykjanesbæ. Þar voru ýmsar ákvarðanir stjórnarinn- ar kynntar, svo sem um þing- rof og sitthvað fleira. Svan- dís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra sagði þar frá minn- isblaði Þórólfs guðnasonar sóttvarnalæknis. Hann legg- ur til að núverandi sóttvarna- reglugerð verði framlengd um tvær vikur. Að óbreyttu hefðu þær runnið út að kvöldi föstu- dagsins 13. ágúst. Fram kom að hlutfall jákvæðra sýna hef- ur verið tiltölulega mikið og greind smit mörg í landinu. Vísaði Svandís til orða Þórólfs um að verið væri að rannsaka áhrif veikinnar á bólusett fólk. Ekki er komin reynsla á gang veikinda þeirra sem eru sjö- tugir og eldri þar sem helm- ingur þeirra hefur verið veikur í innan við viku. Svandís sagð- ist gera ráð fyrir að skólastarf verði með sama hætti og al- mennt í samfélaginu, með 200 manna fjöldatakmörkunum. Þó verði grímuskylda minni þar sem börn sem fædd eru eftir 2006 geta tekið grímuna niður þegar þau setjast niður í kennslustofum sínum síðar í mánuðinum. -mm 25 smitaðir í gær VESTURLAND: Fjöldi smitaðra af Covid-19 á Vestur- landi var í gær 25 og 42 að auki voru í sóttkví. Langflest smit- anna voru í umdæmi heilsu- gæslu HVE á Akranesi, eða 15. Í grundarfirði eru fimm í einangrun, fjórir í Ólafsvík og einn í Borgarnesi. 27 voru í sóttkví á Akranesi, sex í Borg- arnesi, sex í grundarfirði og þrír í Ólafsvík. Í heilsugæslu- umdæmum HVE í Stykkis- hólmi og Búðardal voru engir hvorki í sóttkví eða einangrun. Þetta kemur fram í yfirliti sem Lögreglan á Vesturlandi gaf út í gær. -mm Leiðrétt SKESSUHORN: Í síðasta tölublaði Skessuhorns, í dálk- inum dagur í lífi, vantaði nafn viðkomandi. Hún heitir guð- rún Vigfúsdóttir. Biðjumst við velvirðingar á þessum mistök- um. - vaks Steypt undir viðbyggingu STYKKISHÓLMUR: Í gær, þriðjudag, var steyptur sökk- ull undir nýja viðbyggingu við leikskólann í Stykkishólmi. Frá þessu var greint á vef Stykkishólmsbæjar en með- fylgjandi mynd er sömuleið- is þaðan. Börnin á leikskól- anum fylgdust áhugasöm með steypuvinnunni. -arg Á fjörunni við Ytri Tungu í Stað- arsveit lá í síðustu viku búrhval- shræ sem þar rak á land 25. júlí síðastliðinn. um er að ræða rúm- lega tólf metra langan tarf sem að líkindum hefur verið löngu dauð- ur áður en hann rak á fjörur Stað- sveitunga. Lyktin af hræinu bend- ir í það minnsta til að skepnan sé ekki nýdauð. Hræið vakti athygli ferðafólks sem voru að mynda það í gríð og erg þegar Tómas Freyr kristjánsson fréttaritari Skessu- horns leit þar við síðastliðinn mið- vikudag. mm/ Ljósm. tfk. Skammt vestan við Sjóminjasafn- ið á Hellissandi er nú tekið að rísa úr jörðu hús Þjóðgarðsins Snæfells- jökuls sem ber nafnið Jökulhöfði. Húsið kemur til með að þjóna hlut- verki þjóðgarðsmiðstöðvar, sem Á fundi í hreppsnefnd Eyja- og miklaholtshrepps síðastliðinn mið- vikudag var tekið fyrir erindi frá Snæfellsbæ dagsett 20. júlí síðast- liðinn þar sem óskað er eftir af- stöðu sveitarstjórnar til þess að hafnar verði formlegar sameining- arviðræður milli sveitarfélaganna. Hreppsnefnd samþykkti með fjór- um atkvæðum að hefja formlegar viðræður við Snæfellsbæ um sam- einingu sveitarfélaganna. gísli guðmundsson greiddi atkvæði á móti og lét bóka að hann teldi sam- einingaviðræður ekki tímabærar að svo stöddu. meirihluti hreppsnefndar lagði til að skipuð verði sameiningar- nefnd sem getur síðan skipað und- irnefndir ef þurfa þykir. Oddvita og varaoddvita var falið að sitja í nefndinni fyrir hönd Eyja- og miklaholtshrepps. Jafnframt var lagt til á fundi hreppsnefndar að sveitarfélögin ráði ráðgjafafyrir- tæki sem haldi utan um verkefnið sem sjái m.a. um að stýra samtalinu við íbúa. Eggerti kjartanssyni odd- vita var veitt heimild til að vinna að ráðningu ráðgjafa í samráði við bæjarstjórn Snæfellsbæjar. mm Ferðamenn flykktust að hræinu og létu lyktina ekki trufla góða mynd. Búrhval rak á land í Staðarsveit Breki Berg Tómasson lýsir ágætlega lyktinni sem lá í loftinu. Ný Þjóðgarðsmiðstöð farin að taka á sig mynd móttökustaður fyrir ferðamenn og starfsmannaaðstaða þjóðgarðsins. Verktakafyrirtækið Húsheild er með framkvæmdirnar á sínum herðum en samkvæmt útboðsgögn- um er stefnt á að þeim ljúki næsta vor. Skipslaga byggingin verður um 700 fermetrar að flatarmáli og er nú búið að reisa húsið og hluta stál- grindarinnar sem ber uppi stefni hússins. mm Framúrstefnuleg hönnun þjóðgarðsmiðstöðvarinnar Jökulhöfða sem Teiknistofan Arkís hannaði. Byrjað er að reisa burðarvirkið fyrir skipslaga totuna sem rísa mun austur úr húsinu. Samþykkt að hefja sameiningarviðræður tveggja sveitarfélaga á Snæfellsnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.