Skessuhorn - 11.08.2021, Blaðsíða 23
mIðVIkudAguR 11. ÁgúST 2021 23
hársnyrtimeistara
Dagur í lífi...
Nafn: Stefanía g. Sigurðardóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Ég er
gift Pétri Svanbergssyni og við
búum saman á Býlu 1 í Hval-
fjarðarsveit ásamt hundinum Leó
og kettinum Búa. Við Pétur eig-
um saman þrjú börn, það eru þau
kristín minney (41 árs), davíð
minnar (38 ára), og karen gréta
(28 ára). Þau eru öll fjölskyldufólk
og löngu flutt að heiman.
Starfsheiti/fyrirtæki: Hársnyrti-
meistari og eigandi mozart hár-
snyrtistofu á Akranesi.
Áhugamál: Númer eitt, tvö og
þrjú eru það barnabörnin. Einn-
ig eldamennska, vinnan mín og
ferðalög.
Dagurinn: Fimmtudagurinn 5.
ágúst.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir?
Ég vaknaði klukkan 6:45 og það
fyrsta sem ég gerði var að fara í
sturtu.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat?
Ég fæ mér alltaf einn banana á
morgnana en þennan morgun-
inn gerði ég undantekningu þar
sem mér áskotnaðist heimabak-
að brauð og heimagerð kæfa frá
Sigurlaugu gísladóttur vinkonu
minni í Hlíðarbæ. Hún er algjör
snillingur í eldhúsinu.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig?
Ég fór að heiman um klukkan átta
en kom við hjá dóttur minni og
yngsta barnabarninu. Ég hopp-
aði aðeins með honum á trampól-
íninu, það finnst okkur rosalega
gaman. Þaðan fór ég til Silju All-
ans vinkonu minnar í einn kaffi-
bolla. upp úr klukkan níu var ég
mætt í vinnu á mozart.
Fyrstu verk í vinnunni?
Nú byrja allir dagar á því að sótt-
hreinsa stofuna hátt og lágt.
Hvað varstu að gera klukkan
10?
klippa.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Það er lítið um hádegishlé í hár-
greiðslunni en í hádeginu vann ég
og fékk mér Caliber skál á milli
viðskiptavina.
Hvað varstu að gera klukkan
14?
klippa og lita.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni?
Ég var að vinna til 19:30. Það síð-
asta sem ég geri er að ganga frá og
sótthreinsa.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Ég keyrði heim.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði?
grillaðir þorskhnakkar og risa-
rækjur, og það var ég sem eldaði.
Hvernig var kvöldið?
Bara mjög afslappað, fór í heita
pottinn og horfði á eina mynd.
Hvenær fórstu að sofa?
um klukkan 23.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta?
Þreif af mér meiköppið og tann-
burstaði mig.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn?
Það eru allir dagar skemmtilegir
hjá mér og þessi var engin undan-
tekning. Þakklát fyrir fólkið mitt
og alla kúnnana mína, þeir eru
yndislegir.
Eitthvað að lokum?
Vertu skipstjóri í þínu lífi, ekki far-
þegi.
Samtímamyndlistarhátíðin Plan-B
var haldin í sjötta skiptið í Borgar-
nesi um liðna helgi. Hátíðin hefur
frá árinu 2016 fest sig í sessi sem
þekkt stærð í íslensku listalífi og vex
ásmegin ár frá ári. „Hátíðin gekk
mjög vel fyrir sig þetta árið og má
líklegast tengja það við þann sveigj-
anleika sem við höfum þurft að til-
einka okkur síðasta ár við skipulag
og undirbúning. Vegna aðstæðna í
samfélaginu þá höfum við velt við
steinum og skoðað margskonar
möguleika varðandi framsetningu
og framkvæmd hátíðarinnar,“ seg-
ir Sigthora Odins, einn af skipu-
leggjendum hátíðarinnar í samtali
við Skessuhorn. „Við erum því orð-
in nokkuð sjóuð í að sleppa tökum á
því sem við stýrum ekki og skoðum
heldur möguleikana sem felast í því
sem við köllum yfirleitt hindranir í
daglegu tali. En það er hægt að líta
á hindranir á tvennskonar hátt, sem
algjör vandræði eða sem dulbúna
gjöf því þar finnum við nýjar leið-
ir ef þær eru til staðar,“ bætir hún
jákvæð við.
„Listin á erindi við alla“
Skipuleggjendur Plan-B áætla að á
annað hundrað manns hafi heim-
sótt Borgarnes síðastliðinn laug-
ardag þegar dagskrá hátíðarinnar
stóð sem hæst og dreifðist fjöldinn
vel á sýningarstaði sem voru átta
talsins þetta árið. Formleg opnun
var í húsnæði Borgarbyggðar, fyrr-
um húsnæði Arion banka, og dró
hún flesta gesti til sín en fólk sem
sótti hátíðina var duglegt að fara á
milli sýningarrýmanna og vildu ná
að upplifa öll eða flest listaverkin á
hátíðinni, að sögn Sigthoru. „Það
er alltaf jafn ánægjulegt að upplifa
áhuga fólks fyrir samtímamynd-
list og sjá svona góðan fjölda sækja
hátíðina heim og um leið skoða sig
um og njóta þess sem bærinn býð-
ur upp á. Listin á erindi við alla
og því er svona vettvangur eins og
Plan-B mikilvægur fyrir samfélagið
því listamennirnir gefa almenn-
ingi innsýn inn í hvernig hægt er
að hugsa út fyrir línur, tileinka sér
dirfsku og svo var mikil leikgleði
og frelsi sem var nokkuð sammerkt
með listaverkum hátíðarinnar. Það
fannst okkur í verkefnastjórn mjög
hressandi tilbreyting frá endalaus-
um áfallafréttum og fréttum af
heimsfaraldrinum og fylgifiskum
hans,“ segir Sigthora jákvæð.
Vilja spennandi listalíf
í Borgarnesi
um 100 tillögur að verkum bárust
hátíðinni til þátttöku þegar opið
kall var sent út í vor og sérstök val-
nefnd valdi inn fimmtán verk að
þessu sinni. Sá fjöldi verka sem val-
inn er inn takmarkast annars veg-
ar við fjármagn en einnig við sýn-
ingarrými hátíðarinnar hverju sinni
og þar sem Plan-B hefur ekki fast
aðsetur getur skapast flækjustig að
lofa fleirum verkum þátttöku en
húsrými bíður upp á. „markmið
okkar sem standa að hátíðinni er að
Plan-B eigi eftir að halda áfram að
stækka og þróast og að í Borgarnesi
eigi eftir að byggjast upp mikið og
spenanndi listalíf og menningarhús
samtímalistar en ýmsar hugmynd-
ir hafa verið bornar á borð sveita-
stjórnar í gegnum tíðina. Við höld-
um enn í þá von að þær hugmynd-
ir verði að veruleika, það er í raun
ekki mikið sem vantar upp, hér er
fólk á svæðinu sem er menntað og
vinnur í menningu á svæðinu og svo
eru húsrými sem hefur endalausa
möguleika. Það sem vantar er eins
og alltaf fjármagn en það þarf allt-
af smá fjármagn til að starta hlutum
sem svo eiga eftir að gefa margfalt
tilbaka,“ segir Sigthora bjartsýn.
Tækifærin eru til staðar
Plan-B hátíðin er orðin vel þekkt,
bæði innan myndlistargeirans og
víðar. „Við í teyminu erum virkilega
stolt af þessu verkefni, við leggjum
metnað okkar og allan þann tíma
sem við getum til að koma þessu
verkefni á laggirnar ár eftir ár og
horfum full innblásturs til framtíðar
því við sjáum svo marga möguleika
sem standa samfélaginu til boða
tengda listum og skapandi geir-
anum. Við viljum að lokum þakka
Borgarbyggð; bæði sveitastjórn og
samfélaginu öllu, fyrir að taka þátt
í þessu með okkur og styðja við há-
tíðina með þeim hætti sem það ger-
ir,“ segir Sigthora ánægð að end-
ingu. glh/ Ljósm. Plan-B.
Listahátíðin Plan-B vel sótt í Borgarnesi um liðna helgi
List á sögulofti Landnámsseturs Íslands.
Gestir Plan-B njóta listar í Grímshúsi í Brákarey.
Alls voru átta sýningarrými á víð og dreif um bæinn, þar á meðal í Blómasetrinu
Kaffi Kyrrð.
„Það er alltaf jafn ánægjulegt að
nema áhuga fólks fyrir samtímamynd-
list,“ segir Sigthora Odins, einn af
skipuleggjendum hátíðarinnar.