Skessuhorn - 11.08.2021, Blaðsíða 22
mIðVIkudAguR 11. ÁgúST 202122
Við Esjurætur í litlu og notalegu
húsi hitti blaðamaður Skessuhorns
Carolin giese, eða Linu eins og
hún er jafnan kölluð. Lina starf-
ar sem ljósmyndari en hún hefur
sérhæft sig í ljósmyndum af hest-
um og hundum en einstaka kettir
rata einnig í myndatökur til henn-
ar. Lina er þýsk en hún kom fyrst
til Íslands veturinn 2012 og vann í
fjóra mánuði á hestabúi skammt hjá
Egilsstöðum. Hún féll fyrir landinu
og var ákveðin í að koma aftur. Hún
lét verða af því fyrir tæpum tveimur
árum og hefur verið hér síðan. Að-
spurð segist hún ekkert vera á leið-
inni aftur til Þýskalands á næstunni.
„Ég elska Ísland, náttúruna hér,
hestana og veðrið,“ segir hún og
hlær. Blaðamaður kaupir ekki alveg
þetta með veðrið og horfir á hana
með mikilli vantrú. Lina hlær og
fullyrðir að hún sé ekki að grínast.
„Ég elska skýin, vindinn, myrkrið
og kuldann. Ég er minna fyrir hita
og bláan himinn marga daga í röð,
eins og það hefur verið í Þýskalandi
síðustu ár,“ segir hún sannfærandi.
Persónuleiki íslenska
hestsins heillaði
Lina hefur haft áhuga á hest-
um frá því hún var barn en um
13 ára gömul hitti hún fyrst ís-
lenskan hest. „Ég var í fríi á hes-
tabúi í Þýskalandi sem er með ís-
lenska hesta. Ég varð strax heill-
uð af þeim. Ég held það sé fyrst og
fremst persónuleikinn þeirra, and-
inn þeirra og karakter. Þeir eru líka
svo fallegir og í allskonar skemmti-
legum litum,“ segir Lina og bros-
ir. Lina lauk námi í hestafræðum
(equine science) í Þýskalandi og
samhliða ljósmyndun er hún að
vinna á hestabúinu í Steinsholti í
Hvalfjarðarsveit. „Ég er þar tvo til
þrjá daga í viku að þjálfa og huga
að öllum þeim verkum sem til falla
á svona búi,“ segir Lina og bætir
við að nú sé þó sumarfrí hjá hest-
unum. Áhuginn á ljósmyndun hef-
ur líka verið til staðar frá því Lina
var barn en hún átti gamla filmu-
vél þegar hún var lítil en missti svo
áhugann á ljósmyndun þegar hún
var unglingur. Áhuginn kviknaði
aftur um 17 ára aldurinn og fljót-
lega fór Lina að sökkva sér alveg
í ljósmyndun. „Þegar ég fæ svona
ástríðu fer ég oftast á kaf,“ segir
hún og hlær. En árið 2017 ákvað
hún að stofna fyrirtæki utan um
ljósmyndunina og hefur unnið við
hana síðan.
Drungalegur stíll
„Ísland er paradís fyrir ljósmynd-
ara, allavega mig,“ segir Lina og
hlær. „Ég hef alltaf verið mjög
tengd náttúrunni og nýt þess að
vera úti, sérstaklega í íslensku
veðri,“ segir hún en ljósmynda-
stíll Linu er nokkuð drungalegur
og dimmur og segir hún gott að
ná slíkum myndum á Íslandi. Að-
spurð segist hún bæði taka að sér
að mynda ákveðna hesta eða hunda
fyrir fólk en einnig fær hún að fara
inn í hestahópa og taka mynd-
ir fyrir sig sem hún svo selur. „Ég
fæ oft að heimsækja hestahópa og
þá er ég oftast ekki með neitt plan.
Ég bara fer með myndavélina og sé
hvað ég get fengið. Stundum fæ ég
margar skemmtilegar myndir en
stundum enga. Þetta er áskorun og
ég elska það,“ segir hún. myndirn-
ar notar hún svo til að gera dagatöl
en einnig er hægt að kaupa prent
hjá henni. „Ég tek líka mynd-
ir fyrir fólk af ákveðnum hestum,
bæði þar sem hesturinn er einn og
í hópi. Stundum fer ég í hóp þar
sem ég þarf að finna ákveðinn hest
og ná myndum af honum. Það get-
ur verið erfitt og tekst ekki alltaf
en þá þarf ég að koma aftur,“ seg-
ir Lina. Hún tekur einnig mynd-
ir af hestamannamótum, ræktun-
armyndir eða sölumyndir og seg-
ist tilbúin að skoða allskonar verk-
efni.
Eftirminnilegasta
myndatakan
Spurð um skemmtilegustu mynda-
tökuna segir Lina ólíklegt að eitt-
hvað komi til með að toppa það að
mynda hesta við eldgosið á Reykja-
nesinu. „Ég fór að gosinu svona
tveimur dögum eftir að það byrjaði
og sá að ég bara varð að koma með
hest þangað,“ segir Lina og brosir.
Hún fann hesta sem pössuðu vel í
þetta verkefni og segir þennan dag
hafa verið einn þann besta. „Þetta
var erfitt en vel þess virði. Við fór-
um á hestunum leið sem notuð er
við smölun á haustin svo við vorum
ekki að fara innan um allt fólkið.
Við þurftum að passa að velja dag
þar sem veðrið hentaði, vindátt-
in þurfti að vera rétt og það þurfti
að finna hesta sem eru rólegir og
góðir. Við gættum þess líka að vera
nokkuð langt frá gosinu sjálfu.
Þetta er sú myndataka sem stendur
upp úr hjá mér og mun líklega allt-
af gera,“ segir Lina.
Hægt er að skoða myndir eftir
Linu og hafa samband við hana á
heimasíðunni hennar; linaimages.
com eða í gegnum Instagram un-
dir nafninu Linaimages. Þá verður
hægt að skoða myndir eftir hana á
sýningu sem hún ætlar að opna í
útgerðinni í Ólafsvík í september.
arg/ Ljósm Giese
Myndir sem
Lina hefur
tekið bæði
af hestum og
hundum á
Íslandi.
Flutti til Íslands til að taka myndir af íslenska hestinum
Carolin Giese flutti frá Þýskalandi til Íslands fyrir tæpum tveimur árum og starfar
sem ljósmyndari. Lina með myndavélina í hópi hesta.