Skessuhorn - 11.08.2021, Qupperneq 10
mIðVIkudAguR 11. ÁgúST 202110
útilokað er nú að sátt náist í deilu
um Legsteinahús á Húsafelli og
hefur nú verið ákveðið að rífa
bygginguna og að því verki verði
lokið fyrir mánaðamót. Þrátt fyrir
samningaumleitanir undanfarið ár,
meðal annars með atbeina Borgar-
byggðar, milli Sæmundar Ásgeirs-
sonar eiganda gamla bæjar og Páls
guðmundssonar listamanns, hefur
hvorki gengið né rekið.
mál þetta á sér langan aðdrag-
anda sem ítarlega hefur verið fjallað
um á síðum Skessuhorns undan-
farin ár. Langt mál væri að gera
því ítarleg skil. Í stuttu máli snýst
það um að deiliskipulag sem fram-
kvæmdin byggði tilurð sína á hafði
aldrei öðlast gildi þar sem sveitarfé-
laginu Borgarbyggð láðist að aug-
lýsa það í B deild Stjórnartíðinda.
Byggingarleyfið var af þeim sökum
dæmt marklaust. Eigandi gamla
bæjar, á næstliggjandi lóð, höfðaði
mál vegna byggingarinnar og Hér-
aðsdómur Vesturlands kvað í fyrra-
sumar upp þann dóm að byggingar-
leyfið væri ógilt. Var Páli gefinn 30
daga frestur til að rífa bygginguna
en ella að greiða Sæmundi í gamla
bæ 40 þúsund krónur í dagsektir
umfram það sem niðurrifið drægist
á langinn. Samkomulag náðist milli
málsaðilanna 31. ágúst í fyrra að
fresta áhrifum dagsektanna til 15.
október 2020 en sú sátt var fram-
lengd í þrígang með viðaukum og
sá síðasti gilti til 15. desember sama
ár. Þá var einnig rammað í samning
að málsaðilar slíðruðu sverðin með-
an vinna við breytingu á aðalskipu-
lagi færi fram sem og undirbúning-
ur að deiliskipulagi fyrir Húsafells-
svæðið þar sem m.a. yrði skilgreind
landnotkun landeigenda, en svæð-
ið í heild er skilgreint sem land-
búnaðarland þrátt fyrir að enginn
landbúnaður hafi verið stundaður
þar í meira en hálfa öld. Vinna við
gerð skipulags fór í gang en máls-
aðilar hafa hins vegar ekki náð sam-
an í einstökum efnisatriðum. Hafa
meðal annars deilt um atriði eins
og aðgengi að bílastæði, kostnaðar-
skiptingu við vegagerð og fleira.
Valdheimildir þrotnar
„Sú niðurstaða að hafið sé niðurrif
á legsteinaskálanum, er vegna þess
að ekki náðist sátt á milli aðila, en
Borgarbyggð hefur ekki valdheim-
ildir til þess að beita sér frekar í
málinu en gert hefur verið. Sveit-
arfélagið hefur gert allt sem því er
mögulegt til að leysa málið í sam-
ráði við aðila þess,“ segir Þórdís Sif
Sigurðardóttir sveitarstjóri Borgar-
byggðar í yfirlýsingu sem hún birti
á heimasíðu sveitarfélagsins síðast-
liðinn mánudag.
Yfirlýsing Páls
Páll guðmundsson á Húsafelli gaf
á sunnudaginn út yfirlýsingu vegna
væntanlegs niðurrifs Legsteina-
hússins sem byggt var í nágrenni
listasafns hans fyrir nokkrum árum.
Yfirlýsinguna nefnir hann „Leiðar-
lok“:
„Líf mitt og starf er að skapa list
í sátt við náttúruna á Húsafelli. Það
er skylda mín og okkar Húsfell-
inga að varðveita náttúru, menn-
ingu og sögu forfeðra okkar og
skila til komandi kynslóða. Þetta
vissi langafi minn kristleifur Þor-
steinsson á Stóra- kroppi, en hann
ásamt Jakobi vinnumanni á Húsa-
felli sóttu um styrk til Alþingis árið
1929 til að varðveita legsteinana
sem unnir voru úr námu í Bæjar-
gilinu sem forfeður mínir unnu af
miklu listfengi.
Ég tók á sínum tíma fagnandi
þeirri hugmynd að byggt yrði safn
til varðveislu þeirrar þjóðarger-
semar sem legsteinarnir eru. Í sam-
vinnu við Biskupsstofu voru feng-
ir einir færustu arkitektar þjóðar-
innar til hönnunar safnsins, þeir
Stefán Örn Stefánsson og grétar
markússon. Húsið fellur afar vel í
landinu og er að mínu mati lista-
verk í sjálfu sér.
Því miður er húsið mikill þyrnir
í augum nágranna míns, Sæmund-
ar Ásgeirssonar, en hann höfðaði
einkamál gegn mér og krafðist nið-
urrifs hússins og reyndar líka stein-
hörpuskálans, þar sem ég geymi
mörg af mínum dýrmætustu lista-
verkum. dómur féll Sæmundi í vil
og mér var gert að fjarlægja húsið
nánast fullbyggt. Ég ætla ekki að
tíunda niðurstöðu dómarans en ef
menn vilja þá er hægt að fletta upp
dómnum, mál nr. E-6/2019.
Í öllu skipulags- og byggingar-
ferlinu var ég í góðri trú og treysti
að þau leyfi sem Borgarbyggð
veitti mér fyrir byggingunni væru
í fullu gildi. Því olli þessi niður-
staða, sem ég vil kalla refsidóm,
mér mikilli sorg og vanlíðan. Frá
uppkvaðningu dómsins voru mér
gefnir 30 dagar til að rífa og fjar-
lægja öll ummerki um legsteina-
húsið, sem í mínum huga er ekki
einungis hús heldur stórkostlegt
listaverk sem sómi er að og mikil
staðarprýði. Sæmundur gaf mér þá
von um að hægt væri að leysa mál-
ið með samkomulagi. Því miður er
nú ljóst að kröfur Sæmundar, til
að felldar verði niður dagsektir að
upphæð kr. 40.000 á dag, eru með
öllu óaðgengilegar fyrir mig og er
mér því nauðugur einn kostur að
rífa húsið. Niðurrif hófst þann 6.
ágúst og verður að fullu lokið 31.
ágúst 2021.
Ég vil þakka öllum vinum mín-
um sem hafa dyggilega stutt mig í
þeirri trú um að legsteinunum verði
bjargað undan veðrum og náttúru-
legri eyðingu. Páll á Húsafelli.“
Málinu ekki lokið
Í framhaldi þessa máls verður
væntanlega látið reyna á greiðslu-
skyldu Páls á Húsafelli á dagsekt-
um til Sæmundar, eins og Hér-
aðsdómur Vesturlands kvað upp
um síðasta sumar. uppsafnaðar
eru þessar sektir yfir tíu milljónir
króna frá 15. desember að telja og
þar til niðurrifi verður lokið síðar
í þessum mánuði. Óljóst er hverj-
ir eftirmálar þessa áralanga deilu-
máls verða. meðal annars hefur
verið rætt um hvort Borgarbyggð
gæti reynst skaðabótaskyld vegna
þess að formgalli var við auglýs-
ingu deiliskipulags og byggingar-
leyfi sem gefið var út því marklaust
af þeim sökum. Loks er skipulags-
vinnu á svæðinu ekki lokið og lík-
legt verður að teljast að sátt um
þau sé ekki í sjónmáli. málinu er
því hvergi lokið þótt legsteinahús-
ið hverfi af yfirborði jarðar. mm
Á opnum aukafundi hjá bæjar-
ráði Akraneskaupstaðar á fimmtu-
dag í síðustu viku var mikil spenna
í loftinu því þar fór fram útdrátt-
ur varðandi umsóknir ellefu ein-
býlishúsalóða og sex raðhúsalóða
í Skógarhverfi. Hægt var að fylgj-
ast með fundinum í beinni á vef-
streymi. Formaður bæjarráðs, Elsa
Lára Arnardóttir, áréttaði á fund-
inum að sá aðili sem fengi lóð út-
hlutað, hefði í samræmi við reglur
Akraneskaupstaðar, átta mánuði til
að hefja uppbyggingu en að þeim
tíma liðnum færi viðkomandi lóð
á lista yfir lausar lóðir hjá Akranes-
kaupstað.
mikil eftirspurn var eftir nokkr-
um lóðum, en heildarfjöldi gildra
umsókna var 262. Til að mynda
bárust alls 20 umsóknir um ein-
býlishúsalóðina Skógarlund nr. 6,
alls 40 umsóknir um Skógarlund
nr. 8 og alls 50 umsóknir um Skóg-
arlund nr. 10. Það vekur einnig at-
hygli að það barst aðeins ein um-
sókn um Skógarlund nr. 1 og 4,
engar um Skógarlund nr. 2 og 3 og
tvær um Skógarlund nr. 5 og 7. Þá
barst alls 21 umsókn um raðhúsa-
lóðirnar Akralund nr. 33-41, alls 45
umsóknir um Álfalund nr. 28-32 og
alls 38 umsóknir um Álfalund nr.
34-42. Fulltrúi sýslumanns á Vest-
urlandi, Ásta Valdimarsdóttir, var
viðstödd dráttinn. vaks
Mikil eftirspurn eftir
lóðum á Akranesi
Loftmynd af Skógarhverfi.
Ljósm. af vef Akraneskaupstaðar.
Komið var með stórvirkar vinnuvélar á svæðið í síðustu viku. Ljósm. ge.
Kaflaskil í málaferlum þegar Legsteinahús verður rifið
Legsteinahúsið verður nú rifið. Ljósm. mm.