Skessuhorn - 11.08.2021, Qupperneq 25
mIðVIkudAguR 11. ÁgúST 2021 25
rúnar var Tryggvi magnússon
(1896-1943). Hann starfaði alla tíð
hjá versluninni Edinborg, síðustu
árin sem verslunarstjóri. Tryggvi
var með eindæmum fjölhæfur
íþróttamaður. Þegar knattspyrnu-
félagið Fram var stofnað 1908 var
Tryggvi einn af stofnendum og sá
allra yngsti. Hann vann auk þess til
verðlauna m.a. í frjálsum íþróttum
og í sundi og varð Íslandsmeistari
í fimleikum á fertugsaldri. Þá var
hann góður á skautum og skíð-
um. Eins og bræður hans karl og
Pétur var hann fastamaður í bolt-
anum hjá Fram. Tryggvi var stofn-
andi félags sem var forveri Ferða-
félagsins, sem stóð fyrir ferðum um
landið og einnig jöklaferðum sem
voru óþekktar á þessum tíma. Þá
eru ótalin störf hans í leikhúsi og
revíum Reykvíkinga, en hann þótti
góður gamanleikari og lék mörg
fræg hlutverk, m.a. grasa-guddu
í vinsælli uppsetningu Leikfélags
Reykjavíkur á Skugga-Sveini árið
1935. Tryggvi lést fyrir aldur fram
árið 1943.
Sæmundur í Georgshúsi
Eftir að magnús Ólafsson flytur
með fjölskyldu sinni til Reykjavík-
ur varð helsti ljósmyndari á Akra-
nesi Sæmundur S. guðmunds-
son (1873-1955), en hann hafði
lært ljósmyndun á Ísafirði. Sæ-
mundur var kennari að mennt og
hafði kennt við barnaskólann í
Hnífsdal frá 1901-1905. Sæmund-
ur rak ljósmyndastofu í georgs-
húsi (Vesturgötu 36/38); það er í
skúrnum við efri endann á húsinu
frá 1905-1912, auk þess sem hann
kenndi við Barnaskólann á Akra-
nesi. Þá kenndi hann einnig leik-
fimi, sem var ný námsgrein á þeim
árum. Leikfimina kenndi hann m.a.
„á sal“ gamla barnaskólans. Sæ-
mundur var einnig organisti í Akra-
neskirkju á árunum 1906 til 1912.
Hann flytur síðan ásamt fjölskyldu
sinni frá Akranesi og stundaði eftir
það bæði kennslu og ljósmyndun í
Hafnarfirði til 1938.
Árni ljósmyndari og
Ólafur sonur hans
Eftir að Sæmundur flytur frá Akra-
nesi er aðeins einn ljósmyndari
sem stendur upp úr, bæði vegna
færni sinnar við ljósmyndun og
hve lengi hann stundaði þá list-
grein á Akranesi, en hér er átt við
Árna Böðvarsson frá Vogatungu
(1888-1977). Ekki er unnt að gera
ljósmyndaferil hans skil í þessari
stuttu grein, en aðeins getið helstu
atriða. Árni byrjaði að fást við ljós-
myndun árið 1913 og mun það hafa
gerst þannig að Englendingur einn
hafði Laxá í Leirársveit á leigu og
var áhugamaður um ljósmyndun.
Samkvæmt frásögn Árna tók þessi
maður myndir í sveitinni, m.a. af
sundlauginni við Leirárlaug. For-
vitni Árna hefur dregið hann að
þessu apparati sem útlendingur-
inn dröslaði með sér og óskamm-
feilni, sem stundum er kölluð, hef-
ur gert hann handgenginn mann-
inum. Þar fékk hann sína fyrstu
tilsögn í meðhöndlun ljósmynda-
véla og þar með var ævibrautin
mörkuð. Hann var að mestu sjálf-
menntaður ljósmyndari, en dvaldi
um þriggja vikna skeið í Reykjavík
hjá snillingnum magnúsi Ólafs-
syni og naut tilsagnar hans. Árni
fékk meistararéttindi í þeirri iðn,
þótti m.a. listfengur við gerð lit-
mynda. Árni Böðvarsson rak ljós-
myndastofu í georgshúsi frá 1916
til 1944 og tók þar andlits- og fjöl-
skyldumyndir í stórum stíl, en það
var í því húsi sem þau Rannveig
magnúsdóttir hófu búskap sinn og
þar fæddust börnin. Ljósmynda-
stofan var á annarri hæð í viðbygg-
ingu austanvert við húsið, en Sæ-
mundur S. guðmundsson hafði
rekið þar ljósmyndastofu, eins
og áður hefur komið fram. Ljós-
myndastofan var einn salur á allri
hæð viðbyggingarinnar og nálægt
austurhorni hans var mikill og víð-
ur „franskur“ gluggi sem náði hér
um bil niður undir gólf og teygð-
ist upp í kverkina efst og hélt áfram
á þakinu, enda veitti víst ekki af
dagsbirtunni við ljósmyndaiðjuna
fyrir tíð rafmagnsins.
Fyrst í stað framkallaði Árni
myndirnar líka í georgshúsi, en
seinna fluttist sú vinna í kjallar-
ann í Ási (Vesturgötu 78). Á árun-
um 1944-50 rak hann ljósmynda-
stofu í sérbyggðum „skúr“ á Vest-
urgötu 80 ásamt Ólafi syni sínum,
en þá hafði Ólafur lokið námi sínu
við Iðnskólann og hlotið meistara-
réttindi frá lærimeistaranum föður
sínum. Þetta húsnæði brann, eða
öllu heldur fuðraði upp á fáeinum
mínútum að morgni 4. desember
1950, og þar með stór hluti af ævi-
starfi Árna. Eftir þetta áfall hætti
Árni að taka myndir á stofu og eft-
irlét Ólafi allan myndastofurekstur
á Akranesi. Stofa Ólafs var um hríð
á annarri hæð verslunarhúsnæðis
Þórðar Ásmundssonar að Vestur-
götu 48, því næst í kjallaranum í
Ási og loks í nýju húsi sem Ólafur
Árnason (1919-1997) og Ingveldur
Ásmundsdóttir kona hans reistu á
lóðinni að Vesturgötu 80.
Auk áðurgreindra heimilda: Rit-
gerð Brynhildar Jónsdóttur um
ljósmyndun (2010), myndasmið-
urinn Árni Böðvarsson eftir Árna
Ibsen, Ljósmyndasafn Reykjavík-
ur og Ljósmyndasafn Akraness.
Borgfirskar æviskrár og Æviskrár
Akurnesinga.
Ásmundur Ólafsson
Þessa mynd tók Ólafur Árnason á Litlu jólunum í Barnaskóla Akraness 1957 eða
1958. Börn sem sýndu dans. Frá vinstri: Dagný Þorgilsdóttir (1950-), Sigurður
Eðvarð Arnórsson (1949-2007), Sigríður Elísabet Hauksdóttir (1950-), Birgir
Þór Guðmundsson (1949-), Lovísa Jónsdóttir (1949-), Atli Freyr Guðmundsson
(1948-2019), Anna Mýrdal Helgadóttir Ibsen (1950-), Guðlaugur Þór Þórðarson
(1948-2005), Margrét Arnbjörg Guðmundsdóttir ) 1949-), Smári Hannesson
(1948-), Guðný Ársælsdóttir (1949-), Árni Ibsen Þorgeirsson (1948-2007), Óþekkt,
Björgvin Trausti Guðmundsson (1948-2013), Petrea Ingibjörg Jónsdóttir (1949-)
og Engilbert Guðmundsson (1948-).
Þessa mynd tók Magnús Ólafsson af vinnustað sínum Thomsensverslun árið 1895. Húsið er á miðri mynd með tveimur
reykháfum og flaggstöng, byggt 1873. Þarna var fyrst verslunar- og íbúðarhús Þorsteins Guðmundssonar, fyrsta kaupmanns
á Akranesi. Verslunin var 10 árum síðar, árið 1883, yfirtekin af Thomsensverslun. Verslun var rekin í húsinu til 1907, en þá var
húsið leigt til ábúðar til 1910, að það var selt til niðurrifs og timbrið notað í byggingu fyrsta íshúss á Akranesi. Verslun var því
rekin í húsinu í 34 ár og Magnús Ólafsson starfaði þar um helming tímans. Þar hefur oft verið margt um manninn, og mikið
brallað; oft voru síðustu forvöð fyrir viðskiptamenn að komast fjörurnar í sveitina, en Forvaðasteinn var í Krókalóni; kom
sér vel og leiðbeindi hestamönnum um flóð og fjöru. Ekki er ólíklegt að þarna í búðinni hafi Magnús fyrst kynnst alvöru ljós-
myndavélum, þegar þeir félagarnir Sigfús Eymundsson og Pike Ward heimsóttu hann í búðina vegna væntanlegra fiskkaupa
árið 1893.
Þessa mynd tók sonur Magnúsar, Ólafur Magnússon (f. á Akranesi 1889). Þetta er
gamli bærinn í Höfn í Melasveit með Hafnarfjall í baksýn. Torfi Pjetursson Sívert-
sen var bóndi í Höfn frá 1899 til dd. 1908. Kona hans var Þórunn Richardsdóttir
Sívertsen. Eftir lát Torfa bjó Þórunn í Höfn til 1932, var síðan bústýra þar hjá syni
sínum Pétri Torfasyni. Pétur byggði þá nýtt íbúðarhús og öll útihús jarðarinnar;
einnig lét hann reisa rafstöð í Hafnará sem framleiddi rafmagn til heimilisnota.
Höfn var landnámsjörð (Hafnar-Ormur 9. og 10. Öld).
Þessa mynd tók Sæmundur Guðmundsson um 1910 af fjölskyldunni á Geitabergi.
Aftari röð frá vinstri: Steinunn Bjarnadóttir (1895-1972), Sigríður Bjarnadóttir
(1905-2002), Bjarni Bjarnason (1901-1975) og Jórunn Bjarnadóttir (1900-1990).
Fremri röð frá v.: Sigríður Einarsdóttir (1867-1955) húsfreyja á Geitabergi, Björg
Bjarnadóttir (1909-1999) og Bjarni Bjarnason (1866-1928) bóndi oddviti og
hreppstjóri Geitabergi. Bjarni var bóndi í Katanesi 1894-1899 og Geitabergi
1899-1928. Hann gerði stórfelldar bætur á jörðum og húsum og efnaðist vel, en
þó mjög gestrisinn. Verðlaun úr styrktarsjóði Kristjáns níunda 1922. Bjarni var
sýslunefndarmaður í fjölda ára. Formaður pöntunarfélags og svo Kaupfélags
Hvalfjarðar á Hrafneyri, framkvæmdastjóri þess um mörg ár. Hann var orgel-
leikari í Saurbæjarkirkju fleiri áratugi og kennari nokkur ár.
Hjúkrunarkonur frá Norðurlöndum heimsækja Akranes árið 1939. Lovísa
Lúðvíksdóttir (1904-1970) heldur ræðu. Elín Ragnarsdóttir (1931-2014), dóttir
hennar heldur á blómum. Meðlimir úr karlakórnum Svönum standa hjá. Ofan
við bryggjuna sést Síldar-og fiskimjölsverksmiðja Akraness, reist tveimur árum
áður; almenningshlutafélag með nær 200 hluthafa. Lovísa var húsmóðir á
Akranesi 1932-1946, lengst á Mánabraut 20, síðan í Rvík. Lærði hjúkrun í Bergen
í Noregi, lauk námi 1928. Var bæjarhjúkrunarkona á Akranesi 1933-46. Einn
af stofnendum Kvennadeildar slysavarnafélags Íslands á Akranesi og fyrsti
formaður hennar. Einn af stofnendum og í stjórn rauðakrossdeildar á Akranesi.
Maður hennar var Ragnar Kristjánsson, matsveinn og verslunarmaður. Börn
þeirra voru Kristján síðar verkstjóri á Höfn í Hornafirði, Karl matsveinn á Akranesi
og Elín, sem er á myndinni, síðar húsmóðir í Keflavík og síðar Rvk. Myndhöfundur:
Árni Böðvarsson.