Skessuhorn - 18.08.2021, Síða 8
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 20218
Stal bíl og lét
lögguna fá
AKRANES: Á fimmtudaginn í
síðustu viku, 12. ágúst, var lög-
reglu tilkynnt um að bíl hefði
verið stolið í Borgarnesi. Þjóf-
urinn sem tók bílinn ók á hon-
um út á akranes þar sem hann
lagði bílnum og stakk lyklunum
í gegnum bréfalúgu á lögreglu-
stöðinni. Engar skemmdir voru
unnar á bílnum. -arg
Aflatölur fyrir
Vesturland
7.-13. ágúst
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 20 bátar.
Heildarlöndun: 35.561 kg.
Mestur afli: Ísak ak: 9.794 kg
í fimm löndunum.
Arnarstapi: 11 bátar.
Heildarlöndun: 20.217 kg.
Mestur afli: Hrafnborg SH:
3.484 kg í þremur róðrum.
Grundarfjörður: 19 bátar.
Heildarlöndun: 423.372 kg.
Mestur afli: Sigurborg SH:
90.797 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 27 bátar.
Heildarlöndun: 71.852 kg.
Mestur afli: Brynja SH: 9.294
kg í þremur löndunum.
Rif: 22 bátar.
Heildarlöndun: 91.701 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 25.430
kg í fjórum löndunum.
Stykkishólmur: 15 bátar.
Heildarlöndun: 61.293 kg.
Mestur afli: Bára SH: 23.628
kg í fimm löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Bárður SH – riF: 9.556 kg.
7. ágúst.
2. Báður SH – riF: 7.802 kg. 8.
ágúst.
3. Bára SH – StY: 6.596 kg. 13.
ágúst.
4. Bára SH – StY: 5.626 kg. 8.
ágúst.
5. Ísak ak – akr: 5.425 kg. 13.
ágúst.
-arg
Penninn var á lofti í íþróttahúsi
Stykkishólms um helgina þegar
hvorki meira né minna en 20 leik-
menn í körfuknattleik skrifuðu und-
ir leikmannasamninga fyrir kom-
andi vetur í meistaraflokki karla
og kvenna. Jafnframt var geng-
ið frá ráðningu á þjálfurum meist-
araflokkanna beggja. Gunnlaugur
Smárason var ráðinn til þriggja ára
sem þjálfari meistaraflokks karla.
Sömuleiðis var Baldur Þorleifs-
son einnig ráðinn til þriggja ára
sem þjálfari meistaraflokks kvenna.
Þá gekk stjórn barna- og ungling-
aráðs frá samningum við þjáfara
yngriflokka fyrir komandi vetur en
hann verður leiddur áfram af fyrr-
um leikmanni Snæfells og fyrrum
landsliðskonu, Gunnhildi Gunn-
arsdóttur, sem verður nýr yfirþjálf-
ari barna- og yngriflokka Snæfells.
„Það var glæsilegt að sjá allan
þennan fjölda og það er ljóst að það
eru allir á því að halda uppi körf-
unni í Stykkishólmi næstu árin,“
segir í tilkynningu frá körfuknatt-
leiksdeild Snæfells.
Ljóst var eftir síðasta tímabil
að meistaraflokkur kvenna í Snæ-
felli gaf ekki kost á áframhaldandi
sæti í úrvalsdeild kvenna í körfu-
knattleik, þrátt fyrir að hafa tryggt
sitt sæti að deildarkeppni lokinni.
kvennalið Snæfells mun því spila
í 1. deild kvenna á komandi tíma-
bili sem hefst í október. karlalið
Snæfells spilar í 2. deild í vetur og
hefst tímabilið hjá strákunum strax
í næsta mánuði. glh
Mikið er um að vera í Ólafsvíkur-
höfn þessa dagana en ásamt því að
verið er að endurbyggja Norður-
tanga er dýpkunarskipið dísa búið
að vera að dýpka í höfninni. Svo
bættust þeir við reynir og Pétur
Mikli á sunnudaginn er dráttarbát-
urinn Grettir Sterki dró reyni og
Pétur Mikla frá Súðavík til Ólafs-
víkur. Ferðin tók um 20 klukku-
tíma. Nota á prammann til að fara
þar sem dýpkunarbáturinn kemst
ekki að vegna þrengsla. Magn-
ið sem á að taka er um 4000 rúm-
metrar. dísa er á loka metrunum
með að ljúka því verki sem henni
var ætlað.
þa
Frá því í byrjun júní hafa verið
framkvæmdir í gangi á Laugar-
braut á akranesi. akraneskaup-
staður er að endurnýja gangstétt-
ir við götuna og samhliða því eru
Veitur að skipta um vatns- og raf-
lagnir.Verktaki endurnýjunar
gangstétta er Skóflan ehf og verk-
taki lagnavinnu er Þróttur ehf.
Þessu verki er skipt í tvo áfanga:
Laugarbraut, 1. áfangi, átti að
ljúka 31. júlí síðastliðinn en er enn
í fullum gangi. 2. áfangi, krókat-
ún, átti að hefjast 1. ágúst og ljúka
31.ágúst en ekki eru hafnar fram-
kvæmdir í þeirri götu. Það er því
ljóst að í báðum þessum fram-
kvæmdum er mikil seinkun en
þeim átti að ljúka samkvæmt áætl-
uðum framkvæmdartíma í lok
ágúst 2021.
vaks
Körfuboltinn lifir í Stykkishólmi
Vaskur hópur körfuboltafólks í Hólminum ásamt þjálfurum. Ljósm. sá.
Mikill búnaður við dýpkun í Ólafsvíkurhöfn
Seinkun á endurnýjun gangstétta
Framkvæmdasvæðið við Laugarbraut.