Skessuhorn - 18.08.2021, Side 19
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 2021 19
Átt þú rétt
á styrk ?
Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga
Sjómennt styrkir starfsmenntun sjómanna beint til
fyrirtækja í útgerð.
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Sjómenntar
Kynntu þér rétt þinn á www.sjomennt.is
Sjómennt
Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sjomennt@sjomennt.is
Þín leið
til fræðslu
Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga
og stofnana þeirra á landsbyggðinni.
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is
Sveitamennt
Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sveitamennt@sveitamennt.is
tónlistarkonan Soffía Björg Óðins-
dóttir frá Einarsnesi í Borgarfirði hef-
ur verið tíður gestur inn á heimilum
landsmanna í sumar. Í júnímánuði hófst
þáttaserían Sumarlandinn á rúV þar
sem landinn er heimsóttur, skemmti-
legar sögur sagðar, náttúran könnuð
og áhugaverðir viðburðir leitaðir uppi.
allir þættir hafa svo endað með söng
frá Soffíu Björgu. „Ég fékk símtal frá
Gísla Einars sem að viðraði þessa hug-
mynd við mig. Við Gísli höfum áður
verið ráðin til þess að skemmta á upp-
ákomum, hann sem veislustjóri og ég
að spila,“ segir Soffía Björg um hvern-
ig Sumarlandaævintýrið hafi komið
til. „Ætli hann hafi ekki fengið hug-
myndina út frá því. Ég reyni að taka
mig ekki hátíðlega þegar ég kem fram
og mér finnst Sumarlandinn einmitt
vera svo léttur og skemmtilegur,“ bæt-
ir hún við. „Þetta var frábært upplifun.
Ég hafði í raun ekki hugmynd hvað
þetta væri stórt, þannig séð. að flytja
lag vikulega yfir sumartímann í sjón-
varpi allra landsmanna. Ég held ég hafi
fattað svona í miðju ferlinu; sjitt, þetta
er pínu flott.“
Kominn tími
á nýja plötu
Soffía hefur nýtt einangrunina sem
er fylgifiskur heimsfaraldursins til að
rækta tónlistina sína og stefnir að því
að gefa út nýja plötu á næstunni. Hún
segir jafnframt að það hafi verið kom-
inn tími á nýja plötu frá sér en hún gaf
út eina 12 laga plötu árið 2017 ásamt
því sem hún hefur gefið út tvö ís-
lensk lög eftir það, Þeir vaka yfir þér
og Heyholt. „Ég spilaði fyrstu plötuna
mína í góðan tíma eftir útgáfu hennar
og átti hún góðan líftíma,“ segir Soffía
um plötuna sína, Soffía Björg. „Megn-
ið af komandi plötu samdi ég seinasta
sumar í fyrstu bylgju Covid og áttaði
ég mig á að ég væri að búa til einhverja
heild. Þá var tekin ákvörðun að fylgja
því eftir og búa til plötubarn,“ bætir
Soffía við.
Lærði óvart á píanó
Nýja platan varð til í óæskilegri ein-
angrun að sögn Soffíu og segir hún
þetta ferli hafa neytt hana til þess að
kafa ofan í skuggasjálfið til þess að sjá
hvað væri þarna á botninum. „Þetta
er dirty work, en maður þarf að gera
þetta nokkrum sinnum á lífsleiðinni.
Þannig platan fjallar um það svolítið,
en lögin segja samt mismunandi sög-
ur. Ég kynni hana bara betur þegar
hún fær að líta dagsljósið,“ segir Soffía
um væntanlega plötu. „Platan verð-
ur öðruvísi en fyrri verk en samt Sof-
fíustimpill á henni. Ég er með glænýja
hljóðfæraskipan. Eins og má heyra í
Judgement day þá er þar píanó, slag-
verk, selló, trompet og raddir. útsetn-
ingarnar eru gjörólíkar en í mínum
fyrri lögum þar sem allt hefur verið
meira og minna gítardrifið. auk þess
verða einn eða tveir dúettar á plöt-
unni. Ég nýtti tímann á seinasta ári
þegar öll gigg duttu niður og lærði
óvart á píanó. Ég fékk áráttu þegar ég
var komin með smá tilfinningu fyrir
því og lögin byrjuðu að flæða í gegn
eins og með gítarinn.“
Vangaveltur um lífið
og dauðann
Í lokaþætti Sumarlandans, sem sýnd-
ur var síðastliðinn sunnudag á rúV,
flutti Soffía Björg lagið Judgement
day sem hún gaf út í sumar og verð-
ur jafnframt fyrsta lagið af kom-
andi plötu hennar. Í þættinum tók
hún lagið í breyttri útgáfu og fékk
góða gesti til liðs við sig, Pétur Ben,
krumma og Fríðu dís, en um hvað
er lagið? „Judgement day er svona
vangaveltur um lífið og dauðann.
Svolítið karma tengt. Það þurfa allir
að borga tollinn af gjörðum sínum í
gegnum lífið í hvaða formi sem það
kemur. Einnig fjallar lagið um vin-
skap, það er gott að eiga sanna vini
sem maður getur alltaf leitað til og
eru til staðar fyrir mann og öfugt,“
svarar Soffía sem fannst einnig gaman
að ímynda sér samningaviðræður við
almættið. „Ég að grátbiðja að kom-
ast til himnaríkis þrátt fyrir alla vit-
leysuna sem maður hefur gert í gegn-
um tíðina, líkt og maður væri að tala
við dyravörð á skemmtistað að hleypa
sér inn, og hvort vinirnir mættu ekki
koma með í partíið. Pínu kómískt,“
bætir hún við.
tónlist Soffíu í heild sinni má
nálgast í gegnum tónlistar-streymis-
veituna Spotify, þar er meðal annars
hægt að hlusta á nýjasta lagið hennar
Judgement day, en ný plata er vænt-
anleg á næstunni.
glh
allflestir sláturleyfishafar hafa nú
birt verðskrár sínar fyrir sauð-
fjárinnlegg haustsins. Meðaltals-
hækkun á lambakjöti frá síðustu
sláturtíð er 6,3% og verður veg-
ið meðalverð 519 kr. fyrir kílóið
í haust. Þetta kemur fram á upp-
lýsingasíðu Landssamtaka sauð-
fjárbænda. Leiðrétting á afurða-
verði til bænda mun því ekki
nást fram, en bændur höfðu fyr-
ir tveimur árum óskað eftir því að
kílóið af lambakjöti færi á þess-
ari sláturtíð upp í 700 krónur
til að vinna upp það 40% verð-
fall sem varð á kjötmarkaðinum
árin 2016-2017. „Sauðfjárbænd-
ur munu að óbreyttu standa eft-
ir nær launalausir enn eitt árið,“
skrifaði unnsteinn Snorri Snorra-
son framkvæmdastjóri LS.
mm
Þungt hljóð í
sauðfjárbændum
Soffía Björg með nýja
plötu í bígerð
Judgement Day kom út í sumar og er nýjasta lag Soffíu. Hægt er að hlusta á það á
Spotify. Ljósm. aðsend.
Soffía Björg í St. Gallen í Sviss þar
sem hún spilaði á Nordklang Festival.
Ljósm. Natascha Dittli.