Skessuhorn


Skessuhorn - 18.08.2021, Qupperneq 26

Skessuhorn - 18.08.2021, Qupperneq 26
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 202126 Pennagrein Umboðsaði l i fyr ir Málning hf 301 Hval f jarðarsveit | S ími 896 2356 | gardjons@vis ir. i s útimálun – innanhússmálun sandspör t lun þakmálun múrviðgerðir vinnuly f ta þjónustusamningar Hjá GJ málun eru al l ir með mik la og góða reynslu v ið málningarvinnu, jafnt v ið út imálun sem og innimálun. Um árabi l höfum við þjónustað mörg f yr ir tæki , stofnanir, f asteignafé lög , e instak l inga og húsfé lög með góðum árangri og fengist v ið ýmis spennandi verkefni . Regluleg t v iðhald á fasteignum borgar sig. Málning er góð vörn f yr ir veðri og vindum. Með reglulegu viðhaldi er hæg t að verja fasteignir og koma í veg f yr ir dýrar framkvæmdir. Freyja ingadóttir er nýr formað- ur SÍNE, Samtaka íslenskra náms- manna erlendis. Freyja var kjörin á sumarráðstefnu SÍNE sem fram fór laugardaginn 14. ágúst. Hún tekur við formennskunni af Hauki Loga karlssyni sem gengt hefur hlut- verkinu síðastliðið ár. Freyja starfar sem verkefnisstjóri hjá ferðaþjón- ustufyrirtæki en útskrifaðist með meistarapróf í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Edinborg í fyrra. Síðastliðið ár gegndi Freyja hlut- verki gjaldkera SÍNE. Á Sumarráðstefnunni var far- ið yfir störf SÍNE á síðasta starfs- ári en þar bar hæst bólusetningar íslenskra námsmanna erlendis og gengisleiðrétting skólagjaldalána. „Ég vil þakka fráfarandi formanni fyrir frábær störf og um leið þakka félagsmönnum fyrir traustið sem þau hafa sýnt mér. Ég hlakka mjög til að takast á við verkefni komandi árs en um þessar mundir er einkar mikilvægt að gæta hagsmuna náms- manna erlendis. Ég mun leggja áherslu á að tryggja hagsmuni námsmanna gagnvart Mennta- sjóði námsmanna og stjórnvöld- um, en jafnframt leitast eftir því að greiða götu nemenda hvar sem þeir stunda nám sitt, en félagsmenn SÍNE stunda nám um allan heim,“ segir Freyja ingadóttir, nýkjörinn formaður SÍNE. Ásamt nýjum for- manni var ný stjórn SÍNE kjörin en hana skipa: anna Þórhildur Gunn- arsdóttir, Bjarki Þór Grönfeldt, Ísak rúnarsson, kolfinna tómasdóttir, Númi Sveinsson, ragnar auðun Árnason og Vera Jónsdóttir. mm Við háskólann á Bifröst er hefð og hugur fyrir frumkvöðlastarfi. Það var því kærkominn áfangi í frekari þróun náms og fræðastarfs í þágu nýsköpunar og skapandi atvinnu- greina, sú ákvörðun ríkisstjórn- ar katrínar Jakobsdóttur að rann- sóknasetur skapandi greina skuli byggjast upp á Bifröst. Nú hefur verið undirritað sam- komulag við Háskólann á Bifröst um stofnun rannsóknaseturs skap- andi greina sem verður starfrækt á Bifröst. Staðsetning setursins á Bif- röst er rökrétt framhald á stefnu skólans, þori og framsýni en þar var nýverið sett á laggirnar námsbraut fyrir skapandi greinar á grunnstigi. Náminu er ætlað að veita þekkingu og hæfni til starfa í greinum sem að eru í senn vaxandi og fjölbreyttar en skapandi lausnir verða sífellt mikil- vægari eftir því sem fram vindur og viðfangsefnin verða stærri og flóknari. Þetta er í anda hinnar ald- argömlu sögu skólasetursins á Bif- röst í Borgarfirði og endurspegl- ast í farsælli sögu samvinnuskólans á Bifröst sem spilaði stórt hlutverk í aukinni menntun landsmanna á tímum mikilla samfélagsbreytinga. Háskólinn á Bifröst hefur sinnt því hlutverki af miklum hug um langt skeið og oftar en ekki þurft að heyja harða varnarbaráttu til að halda stöðu sinni. Sú barátta hefur mót- að þann sóknarhug sem einkennir skólann. Ég hef í störfum mínum á póli- tískum vettvangi verið talsmaður uppbyggingar rannsóknastarfs há- skóla á landsbyggðinni og talað fyrir aðgerðum sem að styrkja starf þeirra. Það er hlutverk okkar að tryggja háskólunum á landsbyggð- inni tækifæri til að vaxa og dafna. Það er allra hagur að þar sé fjöl- breytt nám sem að þjónar síbreyti- legum þörfum og þróun samfélags- ins. Fjölbreytt námsval um allt land er mikilvægt fyrir byggðaþróun og byggðafestu. Í því felst að fleiri nemendur úr fleiri áttum sækja há- skólanám á landsbyggðinni með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á nærumhverfið. rannsóknir á sviði menningar- og hugverkagreina eiga eftir að auka enn á þau áhrif. Á landsbyggðinni er frjór jarðvegur fyrir skapandi lausnir og er það mín trú að með fræðilegum og hagnýt- um rannsóknum muni fara hönd í hönd staðbundin þekking og nýjar lausnir. Ég óska háskólanum á Bifröst til hamingju með rannsóknarset- ur skapandi greina. Framtíðin er björt. Bjarni Jónsson Höfundur er oddviti vinstri grænna í NV kjördæmi Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) er með samning við félag lækna sem sjá um að manna lækn- isþjónustu á heilsugæslustöðinni í Ólafsvík með verktökum sem fé- lagið ræður til að taka að sér þjón- ustuna hverju sinni. Í gegnum þetta félag komstu sem verktaki á heilsu- gæslustöðina. Samkvæmt skipuriti HVE og viðurkenndu verklagi er það fram- kvæmdastjóri lækninga, faglegur yfirmaður læknisþjónustu á HVE, sem annast samskipti við félagið vegna þjónustu lækna en ekki for- stjóri. Ef eitthvað kemur upp á varðandi þjónustuna er það hlut- verk forsvarsmanna félagsins að ræða við viðkomandi lækni. Þetta eru aðilarnir sem þú segir „einstak- ling sem ekki starfar á HVE“. Framkvæmdastjóri lækninga ásamt framkvæmdastjóra fjármála áttu fund með þér í mars sl. þar sem því var m.a. komið á fram- færi að starfsmenn heilsugæslunnar í Ólafsvík hefðu kvartað yfir sam- starfinu. Þess var vænst að í kjölfar- ið yrði hægt að koma samskiptum í betra horf en það gekk ekki eftir. Í framhaldi af fundi sem starfs- menn heilsugæslunnar óskuðu eft- ir með framkvæmdastjórn og ég sat ásamt framkvæmdastjóra fjármála í byrjun júní var ákveðið að afþakka frekara vinnuframlag af þinni hálfu og framkvæmdastjóra lækninga var falið að ræða þá ákvörðun við for- svarsmenn læknisþjónustunnar. Það er fjarstæða og varla svara vert að ég reki „heilsugæslulækna“ hægri vinstri „vegna óánægju starfsfólks heilsugæslu ef því tekst ekki að setja á læknana hálsgjörð og fá að teyma, að eigin vild eins og rakka“. Vinna á heilsugæslustöð gengur út á góð samskipti og teym- isvinnu (ekki teymingar!). rangt er að læknir hafi verið látinn fara í fyrra vegna óánægju starfsfólks. Í bréfinu er fullyrt að ég hafi ekki metnað til að koma til móts við óskir/þarfir umbjóðenda HVE um þjónustu. Þessu hafna ég, því mönnun þjónustunnar er eindregið áhersluatriði framkvæmdastjórnar. Áherslan er á að manna stöður lækna á heilsugæslustöðvum HVE með fastráðnum sérfræðingum í heimilislækningum en því miður hafa auglýsingar ekki skilað árangri enn sem komið er því erfitt reynist að fá lækna til starfa á landsbyggð- inni. Þjónustan er því enn veitt með afbrigðum í formi verktöku sem vissulega hefur bjargað miklu en er ekki unnt að líta á sem varan- lega úrlausn. Í ljósi þessa ætti það ef til vill að vera þér umhugsunar- efni að vinnuframlag þitt í Ólafsvík skuli vera afþakkað á sama tíma og læknaskorturinn er jafn mikill og raun ber vitni.Með kveðju, Jóhanna F. Jóhannesdóttir, for- stjóri HVE Pennagrein Rannsóknasetur skapandi greina á heima á Bifröst Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Svar við opnu bréfi Þorsteins Jóhannes- sonar skurðlæknis Freyja Ingadóttir formaður stjórnar SÍNE. Freyja kjörin nýr formaður SÍNE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.