Skessuhorn


Skessuhorn - 03.11.2021, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 03.11.2021, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 20214 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Vöxtur og vaxtarverkir Ég hef lengi haft áhuga á byggðamálum og aðstæðum fólks, einkum í dreifðari byggðum. Vafalítið tengist sá áhugi rótunum en einnig störfum við atvinnuráð- gjöf áður en álpast var í núverandi starf. Þróun á íbúafjölda í sveitarfélögum er býsna misjöfn hér á landi eftir því hvar borið er niður. Í héruðum þar sem at- vinnulíf er einsleitt hefur því jafnvel verið að hnigna. Við slíkar aðstæður get- ur íbúum fækkað á undraskömmum tíma, í það minnsta tímabundið, þar til fólk ýmist nær vopnum sínum á nýjan leik eða nýir íbúar koma og fylla í skörðin. Tækifæri leynast nefnilega stundum í mótlætinu og þekkt er að nýsköpun er mest þegar neyðin er stærst. Oft er svo brugðist við hnignum með átaki hins opinbera þar sem reynt er að handstýra nýrri starfsemi inn á svæðin til að auka atvinnu á ný. Byggðakvótar í sjávarútvegi eru ef til vill besta dæmið um slíkt. Oftar en ekki eru það ýmis atriði í ytra umhverfi sem breyta byggðamynstrinu; neysla tekur breytingum og það sem eitt sinn var nauðsyn er það ekki lengur. Þá geta samgöngur og fjarskipti skipt máli í sýn fólks á gæði búsetu, atvinnufram- boði og svo ekki síst ef tækifæri til mennta eru takmörkuð. Þá flytur fólk búferl- um þegar börnin komast á framhaldsskólaaldur. Það er því að mörgu að hyggja þegar kemur að stjórnun sveitarfélaga sem hafa það hlutverk að tryggja sem bestu þjónustu á öllum sviðum. Síðastliðinn föstudag fór ég í vinnuferð austur á Selfoss. Fylgdi þar í eina dagsstund stjórnendum fyrirtækis sem hér á rætur. Borgarverk vinnur nú að gatnagerð, lögnum og lóðavinnu fyrir fjölda verktaka. Á Selfossi er vægast sagt ævintýraleg uppbygging, fjölgun íbúa sem svarar 7-10 prósentum á ári. Þar eru heilu hverfin að rísa á ógnarhraða upp úr forblautri mýrinni. Heil gata þar sem ekki var búið að ljúka gatnagerð eða lagnavinnu var að verða til, en engu að síður búið að selja einstaklingum hverja einustu lóð við götuna. Þarna vill fólk byggja og fyrirtæki að fjárfesta. Á einu ári hefur fasteignaverð í Árborg hækkað um 36% sem er langmesta hækkun á landsvísu. Akranes er þar í öðru sæti, en fasteignaverð á þriðja ársfjórðungi hækkaði þar um 20% á tólf mánuðum. Þrátt fyrir þessar gríðarlegu hækkanir íbúðaverðs bæði á Selfossi og á Akranesi er fer- metraverð á þessum stöðum 24-37% lægra en á höfuðborgarsvæðinu. Sá mun- ur skilur á milli feigs og ófeigs. Fólk af höfuðborgarsvæðinu tekur sig upp, sel- ur eignir sínar þar og kaupir í nágrannabyggðum. Lætur ekki eina Hellisheiði eða umhleypingasamt Kjalarnes aftra för. Vafalítið hefur aukin fjarvinna gert fýsileika búsetu á þessum stöðum enn vænlegri svo ekki sé talað um ráðaleysi borgaryfirvalda í að brjóta ný hverfi til íbúðabygginga. Í þessari áhugaverðu ferð til Selfoss hef ég sennilega upplifað miðpunkt mestu þenslu á landinu í seinni tíð. En vandi fylgir vegferð hverri. Þarna inni í nýju hverfi var grunnskóli rétt að byrja að rísa úr jörðu, langt á eftir áætlun. Dagvistunarpláss vantar og vafalítið eru fleiri innviðir sem hafa ekki við að vaxa í takti við þensluna. Við þessar aðstæður verða íbúar pirraðir, það hafa rann- sóknir sýnt. Fólkið sem stendur í dýrustu fjárfestingum lífsins, er skuldsett upp fyrir haus, hefur enga þolinmæði að bíða eftir því að sveitarfélagið sinni því sem að því lítur. Af þeim sökum er ég ekki í vafa um að hóflegri íbúafjöldun sé betri kostur. Vöxtur upp á 2,5-3% á ári er meira en nóg til að innviðir á borð við samgöngur, skóla og þjónustu nái að fylgja með. Akranes er því á betri stað hvað þetta varðar en Selfoss. Þar hækkar vissulega fasteignaverð hægar en fyrir austan, en nóg samt. En hröðum vexti þarf að fylgja eðlileg fjölgun atvinnutækifæra. Ekki er hægt að búast við því að ný atvinnutækifæri verði einungis til á höfuðborgarsvæð- inu og fólk aki jafnvel daglega langa vegalengd til og frá vinnu. Frá náttúruleg- um sjónarmiðum hafa til dæmis Skagamenn bullandi sóknarfæri umfram Sel- fyssinga. Ekki þarf að aka yfir fjallveg til að komast á staðinn og ekki síður er tækifæri fólgið í að þar er að finna ónotaða risastóra fiskiskipahöfn þangað sem einnig er hægt að sigla skemmtiferðaskipum. En það var ekki ætlunin að vera með neinn meting, síður en svo. Engin ástæða til. Magnús Magnússon Aðalfundur samtaka leigjenda, sem haldinn var 30. október síðast- liðinn, skorar á alla leigjendur að ganga til liðs við samtökin og taka þátt í löngu tímabærri hagsmuna- baráttu leigjenda og þeirra sem ekki komast inn á íbúðamarkaðinn. „Staða leigjenda er of veik, réttindi þeirra lítil og húsnæðiskostnaður of hár. Stjórnvöld uppfylla ekki laga- skyldu sína gagnvart leigjendum og réttindi og efnahagsleg staða leigj- enda á Íslandi er miklum mun lak- ari en í næstu nágrannalöndum. Aðeins leigjendur sjálfir geta breytt þessari stöðu. Aðalfundur Samtaka leigjenda hvetur því alla leigjend- ur til að ganga til liðs við samtökin og allt réttsýnt fólk til að gera það sama, til stuðnings leigjendum og hagsmunabaráttu þeirra. Hægt er að ganga í samtökin á vefslóðinni leigjendasamtokin.is,“ segir í til- kynningu. Aðalfundurinn fól nýkjör- inni stjórn samtakanna að undir- búa leigjendaþing í febrúar/mars á næsta ári og leggja fyrir það frum- varp að laga- og skipulagsbreyting- um til að styrkja samtökin og efla starf þeirra í þágu leigjenda á næstu misserum. Sérstaklega skal horft til deilda eða sjálfstæðra félaga í lands- hlutum og meðal leigjenda tiltek- inna leigufélaga. Aðalfundurinn fól stjórninni að fjölga félögum og tengja sem flesta þeirra inn í starf samtakanna. Fundurinn fól stjórninni að leggja fram fyrir leigjendaþing frumvarp að kröfugerð samtakanna sem fela þarf í sér gagngera breytingu á leigumarkaðinum, svo hann þjóni leigjendum en misnoti þá ekki. Að- alfundurinn fól nýrri stjórn að leita til verkalýðsfélaga og annarra al- mannasamtaka um fjárhagslegan stuðning til að tryggja starfsemi Samtaka leigjenda. Þá fól aðal- fundurinn nýrri stjórn að efna til umræðu um stöðu leigjenda, hús- næðismarkaðinn almennt, saman- burð við önnur lönd og hvað gera megi hérlendis til að bæta kjör og réttindi leigjenda. Eftirtaldir skipa stjórn og varastjórn: Anita Da Silva Bjarna- dóttir, Guðmundur Hrafn Arn- grímsson, Guðrún Vilhjálmsdóttir, Gunnar Smári Egilsson, Harald- ur Ingi Haraldsson, Laufey Lín- dal Ólafsdóttir, Rán Reynisdóttir, Vilborg Bjarkadóttir, Yngvi Ómar Sighvatsson og Þórdís Bjarnleifs- dóttir. mm Svipmynd frá Akranesi. Samtök leigjenda hafa verið endurreist Barni Guðráðsson bóndi í Nesi í Reykholtsdal er látinn 86 ára að aldri eftir stutt veikindi. Bjarni fæddist á Skáney 13. janúar 1935. Foreldrar hans voru Guðráður Davíðsson og Vigdís Bjarnadótt- ir. Þau byggðu nýbýlið Nes úr Skáneyjarjörðinni og fluttu þang- að með tvö barna sinna 1937. Bjarni varð eftir í fóstri hjá ömmu sinni og afa; Helgu Hannesdóttur og Bjarna Bjarnasyni á Skáney fyrstu árin eftir að foreldrar hans fluttu í Nes, en fylgdi þeim þang- að þegar hann var níu ára. Skóla- ganga Bjarna var fyrst í farskóla en landsprófi lauk hann frá Hér- aðsskólanum í Reykholti 1951. Síðar á lífsleiðinni stundaði hann tónlistarnám og varð organisti og söngstjóri í Reykholtskirkju um áratugaskeið auk þess að þjálfa og stýra fleiri kórum. Eiginkona Bjarna var Sigrún Einarsdóttir frá Kletti. Þau hófu búskap 1955, fyrstu tvö árin í Gróf en eftir það og alla tíð síð- an í Nesi. Fyrst bjuggu þau í félagi við Guðráð og Vigdísi en síðar um tíma með Sigurði elsta syni þeirra og Vöku Kristjánsdóttur eigin- konu hans. Í Nesi var í fyrstu rek- ið blandað bú en síðan eftir 1970 stórt kúabú þegar tekið hafði ver- ið í notkun framúrstefnufjós á þess tíma mælikvarða. Ráku þau kúa- búið til aldamóta, leigðu það út um nokkurra ára skeið en aflögðu síðan. Í Nesi var þá aukin áhersla lögð á ferðaþjónustu með gerð níu holu golfvallar og byggingu golfskála og síðar sölu gistirým- is í eldri húsum á bænum. Sigrún og Bjarni áttu fjögur börn og ætt- leiddu það fimmta. Sigrún lést 16. september 2017. Á engan er hallað þótt sagt sé að Bjarni í Nesi hafi lagt drýgri skerf til samfélagsins í sinni heimasveit og á vettvangi félagsmála, en flestir aðrir. Hann sat um tíma í hrepps- nefnd Reykholtsdalshrepps, var lengi í forystu Búnaðarsambands Borgarfjarðar og sat þá Búnað- arþing. Meðal verka hans á þeim vettvangi var myndarleg útgáfa á ritverkinu Byggðir Borgarfjarð- ar. Bjarni stýrði byggingarnefnd Ungmennafélags Reykdæla þegar byggt var við félagsheimilið Loga- land á áttunda áratugnum. Þegar kom að því að endurreisa Reyk- holtsstað eftir að skólahaldi þar var lokið tók Bjarni að sér að veita forstöðu byggingarnefnd nýrrar Reykholtskirkju og Snorrastofu. Helgaði hann krafta sína því verk- efni um árabil og lagði allt undir. Veðsetti jafnvel jörð sína til lán- töku þegar bið var á framkvæmda- fé eftir öðrum leiðum. Slíkt hið sama gerði fólk í safnarnefnd og sóknarprestur að auki. Þetta gamla höfuðból, héraðsbúar og raunar landsmenn allir eiga því þeim fé- lögum Bjarna í Nesi og sóknar- prestinum sr. Geir Waage mik- ið að þakka. Saman voru þeir í forsvari fyrir verkefni sem var svo miklum mun stærra en lítill söfn- uður einn og sér hefði getað stað- ið undir. Segja má að Geir hafi afl- að verkefninu stuðnings heima og erlendis meðan Bjarni stýrði verk- lega hluta framkvæmdanna heima fyrir, dyggilega studdur af Sigrúnu eiginkonu sinni. Því verki lauk með vígslu Reykholtskirkju 1996 og Snorrastofu fjórum árum síðar. Á þjóðhátíðardaginn 2000 nældi forseti Íslands riddarakrossi hinn- ar íslensku fálkaorðu í barm Bjarna fyrir störf hans að kirkjutónlist og varðveislu menningarminja. Bjarni veiktist skyndilega og lést réttri viku síðar, sunnudaginn 31. október, á Landspítalanum í Reykjavík. Útför hans verður gerð frá Reykholtskirkju laugardaginn 6. nóvember klukkan 11:00. mm And lát: Bjarni Guðráðsson í Nesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.