Skessuhorn


Skessuhorn - 03.11.2021, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 03.11.2021, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 31 Munið Fjölskyldutímana á sunnudögum kl. 11:00-14:00 Klifur, leiktæki, spil, leikföng, fjör og kósýheit. Smiðjuvellir 17, Akranesi smidjuloftid.is Afþreyingarsetur á Akranesi Eva María Jónsdóttir er tvítug Skagakona sem byrjaði að leika sér með saumavélina fyrir um einu og hálfu ári og í dag hann- ar hún og saumar föt sem hún sel- ur á Instagram, undir nafninu By Eva María. „Þetta byrjaði bara þannig að ég var að græja föt fyr- ir mig og deildi myndum af því á Instagram. Þetta fékk mikla athygli og ég ákvað því að stofna sérstaka Instagram síðu fyrir það sem ég var að sauma og þá vakti þetta enn meiri athygli,“ segir Eva María og brosir. Fötin sem hún saumar eru úr glansefni í öllum regnbogans lit- um og vekja því mikla athygli. Hún er að sauma kjóla, buxur, pils og allskonar toppa. En hvernig kom það til að hún byrjaði á þessu? „Ég var að skoða Instagram og sá mynd- ir af fötum frá uppáhalds fatamerk- inu mínu, Saks Potts. Það eru svona föt úr glimmer efni og mig langaði mikið í föt frá þeim, en þetta eru mjög dýr föt. Ég ákvað því að finna bara eins efni og sauma eitthvað öðruvísi fyrir mig úr efninu,“ út- skýrir Eva María. Hefur lokið námi í förðunarfræði Eva María er fædd og uppalin á Akranesi og hefur búið þar alla tíð. Hún lauk námi frá Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi vor- ið 2020, á svipuðum tíma og hún var að byrja að prófa sig áfram með saumavélina. Þá hefur hún einnig lokið námi í förðunarfræði frá Makeup studio Hörpu Kára. „Ég hef samt ekki enn fengið tæki- færi til að vinna við förðun en von- andi er það að breytast. Á meðan Covid hefur verið er svo lítið um árshátíðir og svona viðburði þar sem fólk vill fá förðun. En núna eru að fara af stað ýmsir viðburð- ir og ég fer að auglýsa mig,“ seg- ir hún. Aðspurð segist Eva María alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og handavinnu. „Ég var alltaf að prjóna, hekla og sauma út. Mamma mín átti svo saumavél uppi í hillu og ég ákvað að prófa að taka hana og byrjaði að leika mér, klippti nið- ur boli og saumaði úr þeim upp á nýtt. Svo ákvað ég að kaupa mér efni og fór að sauma enn meira,“ segir hún og bætir við að þegar hún var að byrja að prófa sig áfram með saumavélina ákvað hún að fara á saumanámskeið. Eva María seg- ist fyrst og fremst vera að sauma föt eftir pöntunum en að hún eigi þó oftast eitthvað til á lager. Núna segir hún að pantanir séu byrjað- ar að berast fyrir áramótin en föt- in sem hún saumar eru tilvalin í áramótapartíið. Til þess að panta hjá henni er hægt að senda skila- boð á Instagram á notendanafnið byevamariaa. „Ég græja það oft- ast daginn eftir en stundum geri ég það sama dag. Svo á ég stundum eitthvað til ef fólk þarf að fá strax,“ segir hún. arg/ Ljósm. aðsendar Fötin sem Eva María saumar eru úr litríkum efnum. Saumar föt sem hafa vakið mikla athygli Eva María Jónsdóttir hannar og saumar föt sem hafa vakið mikla athygli. Kjóll sem Eva María saumaði. Skemmtilega öðruvísi bolur sem Eva María saumaði. Bolur og buxur í stíl. Eva María getur líka saumað föt á börnin.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.