Skessuhorn - 03.11.2021, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202124
Lista- og menningarhátíðin Vökudagar hófst á Akranesi
síðastliðinn miðvikudag þegar Skólakór Grundaskóla reið
á vaðið með fjölskyldusöngstund í Bókasafni Akraness.
Vökudagar hafa verið haldnir síðan 2002. Tilgangur há-
tíðarinnar er ekki síst að efla menningarlífið í bænum og
lífga um leið upp á skammdegið. Umfang hátíðarinnar
hefur aukist ár frá ári og hefur hún notið vaxandi vinsælda
meðal bæjarbúa. Við dagskrá Vökudaga nú bætast ýmsir
viðburðir sem tengjast Barnamenningarhátíð. Undanfarna
daga og fram eftir þessari viku er mikið úrval viðburða og
eru bæjarbúar og gestir hvattir til þess að vera duglegir að
sækja þá.
Ljósmyndari Skessuhorns, Kolbrún Ingvarsdóttir, fór á
stúfana og fangaði stemninguna.
frg
Vökudagar standa nú yfir á Akranesi
Fjöldi áhorfenda mættir á tónleika Skólakórs Grundaskóla.
Skólakór Grundaskóla með stjórnanda sínum, Valgerði Jónsdóttur.
Á Bókasafni Akraness sýnir Áslaug Benediktsdóttir vatns-
litateikningar. Sýningin nefnist Vetrarblóm.
Guðlaug Bergþórsdóttir opnaði í tilefni 80 ára afmælis síns á
síðasta ári sýningu á handverki í Bókasafni Akraness.
Á Sólmundarhöfða sýna fjórar konur verk sín utan dyra á sýningu sem nefnist
Samtal menningar og náttúru. Það eru þær Borghildur Jósúadóttir, Bryndís
Siemsen, Eygló Gunnarsdóttir og Steinunn Guðmundsdóttir. Á myndina vantar
Borghildi.
Sýningin Eldgos og skjálftar var sett upp í Stúkuhúsinu að
Görðum. Sýningin er á vegum Náttúruminjasafns Íslands.
Tinna Royal er með sýningu á vinnustofu sinni við Ægisbraut. Sýningin nefnist
Fáðu þér meira.
Sjöfn klæðskeri og Sigga vefari að störfum á vinnustofu
þeirra við Ægisbraut.
Í Hafbjargarhúsinu á Breið var sett upp hryllingsvölundarhús á sunnudagskvöldið. Uppvakningar og draugar tóku þar á móti gestum sem þangað þorðu.
Á Hrekkjavökurölti á sunnudaginn. Þær voru á ferð í Skógarhverfinu, bönkuðu uppá og spurðu Grikk eða gott?
Peta og Gríma við Álmskóga 17 slá aldrei slöku við þegar
tækifæri er til skreytinga á hrekkjavöku.
Ekki var árennilegt að kíkja þangað
í kaffi!