Skessuhorn - 03.11.2021, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202122
Körfuboltaþjálfarinn Brynjar Karl
Sigurðsson hefur síðustu ár verið
umdeildasti þjálfari landsins. Árið
2017 hætti Brynjar Karl sem þjálf-
ari stúlknaflokks hjá Stjörnunni
og var mikið fjaðrafok í kringum
þau starfslok. Þaðan færði hann
sig yfir til ÍR og með honum fjöldi
stúlkna úr Stjörnuliðinu. Hjá ÍR
gat hann haldið áfram starfi sínu
með þær stelpur sem fylgdu honum
úr Stjörnunni. Brynjar Karl barð-
ist fyrir því þegar hann var þjálf-
ari hjá ÍR að stelpurnar gætu spilað
við stráka á sama aldri og það vakti
athygli þegar hann mætti fyrir utan
Ásgarð í Garðabæ árið 2017 á Ís-
landsmeistaramót drengja í körfu-
bolta með stelpunum sínum að
mótmæla því að þær fengju ekki
að spila við stráka. Allt varð svo
vitlaust á Akureyri tveimur árum
síðar þegar lið hans ÍR neitaði að
taka við Íslandsmeistarabikarnum
í minnibolta ellefu ára stúlkna að
hans undirlagi. Stelpurnar skildu
síðan gullmedalíurnar eftir á gólf-
inu þegar þær löbbuðu út og í kjöl-
farið var Brynjar Karl rekinn frá ÍR.
Í febrúar á þessu ári var sýnd í
sjónvarpi Símans heimildamyndin
Hækkum rána sem vakti gríðarlega
athygli en þar hafði stelpunum, sem
voru á aldrinum 8-13 ára á þessum
tíma, verið fylgt eftir á nokkurra
ára tímabili. Um myndina segir
á Kvikmyndavefnum: „Árið 2015
var körfuboltaflokkur fyrir stelp-
ur stofnaður á Íslandi. Þjálfarinn
var óvenjulegur og hækkaði í sífellu
rána. Þær voru þjálfaðar eins og
leiðtogar utan vallar og afrekskonur
innan vallar. Þær settu sér snemma
það markmið að keppa ávallt við þá
bestu og voru sigursælar í drengja-
og stúlknamótum. Þetta er saga
8-13 ára stúlkna sem vildu breyta
viðmiðum í kvennakörfu á Íslandi.
Með miklum fórnarkostnaði tók-
ust þær á við það mótlæti sem því
fylgdi.“
Litið á liðið sem
skæruliðasamtök
Síðustu þrjú ár hefur Brynjar Karl
verið að þjálfa þær stelpur sem
fylgdu honum áfram, fyrst und-
ir merkjum Ungmennafélagsins
Kjalarness en í vetur var ákveðið
að senda þær til keppni í 1. deild
kvenna undir merkjum Aþena-
-UMFK. Þær æfa á Kjalarnesi en
þar sem íþróttahúsið þar er ekki
löglegt til keppni þá fengu þær inni
á Akranesi og spila sína heimaleiki
þar í vetur. Blaðamaður Skessu-
horns skellti sér á leik Aþenu-UM-
FK gegn Fjölni á dögunum og
horfði á Brynjar Karl og stelpurn-
ar hans þurfa að lúta í lægra haldi,
52:67. Síðan settist hann niður eft-
ir leik með Brynjari Karli og spurði
hann fyrst hvernig það hefði komið
til að lið Aþenu spilaði heimaleiki
sína á Akranesi. Brynjar Karl seg-
ir að ástæðan sé einföld, þau fái
ekki aðstöðu í bænum. „Við feng-
um aðstöðu á Kjalarnesi til að æfa
og æfum að meðaltali fimm sinn-
um í viku. Flestar stelpurnar eru
í 9. bekk (14 ára), tvær í 10. bekk
og svo tvær sem eru eldri. Æfinga-
hópurinn telur rétt um tíu stelpur
en aðalástæðan fyrir því að ákveðið
var að senda Aþenuliðið í keppni í
meistaraflokki var til þess að opna
fyrir það að fá eldri stelpur inn í
hópinn. Þegar mestu lætin voru í
kringum mig og liðið var kannski
ekki mjög vinsælt að stelpur kæmu
inn í þessi skæruliðasamtök eins og
litið var á okkur á þessum tíma.“
Blaðamaður spyr hann hvort að
öldurnar hafi ekki aðeins lægst eft-
ir þessa mynd og alla þessa umfjöll-
un og segir Brynjar að hann hefði
nánast farið í þagnarbindindi í þrjú
og hálft ár, svaraði aldrei neinu
og ætlaði alltaf að gera það þegar
myndin kæmi út. „Það voru svo
lygilegir hlutir að gerast og það
nennir enginn að fara svona djúpt
í einhverjar pælingar með einhverj-
ar stelpur og halda að það sé eitt-
hvað dýpra en fólk þekkir úr hvers-
dagsleikanum.“
Góðar minningar og
góð reynsla
En hvernig er umgjörðin í kring-
um Aþenu? Eru margar hend-
ur að hjálpa til í kringum liðið?
„Þetta eru mest foreldrar og mik-
ið af mínum fyrrverandi leikmönn-
um líka. Töluvert af fólki sem ég
var að þjálfa hérna á Skaganum sem
er góður hópur af fólki sem hægt er
að treysta á. Það er líkast til ástæð-
an fyrir því að við fengum að koma
hingað. Góðar minningar og góð
reynsla. Ég var að þjálfa á Skagan-
um „on og off“ frá 1994 til 2000.
Spilaði með ÍA í kringum gullaldar-
tímabil ÍA og var landsliðsmaður.
Ég þjálfaði svo liðið þegar átti að
leggja það niður og mannaði það
með fullt af krökkum. Ég er vanur
því að vera með unglingalið í full-
orðinsdeildum. Ég stofnaði á sín-
um tíma meðal annars körfubolta-
akademíu hjá FSu á Selfossi. Það
verkefni vakti mikla athygli og gekk
mjög vel um tíma enda fór liðið í
efstu deild.“
Hvernig er svona lið fjármagn-
að? „Við fengum okkur erlendan
leikmann fyrir tímabilið og höf-
um fengið styrki í það, ég hef lagt
í þetta sjálfur og einnig foreldr-
ar í kringum liðið. Annars eru all-
ir þjálfarar hjá liðinu í sjálfboða-
vinnu og allir borga sjálfir fyrir sig.
Þetta er langmesta sjálfboðavinna
sem ég hef tekið þátt í á svona tím-
um sem allir eru að tala um að sjálf-
boðavinna sé að líða undir lok, það
er bara kjaftæði. Þú verður bara að
nota þín eigin meðul til að virkja
fólk, fólk er alltaf að leita að ein-
hverjum tilgangi því stundum get-
ur lífið verið hálf tilgangslaust fyr-
ir mjög marga. Ertu ekki sammála
því?” segir hann og hlær.
Aþena UMFK tekur þátt í fyrsta
skipti í 1. deild kvenna í körfunni
í vetur. En það hefur ekki geng-
ið átakalaust og segir Brynjar að
nú loksins hafi þau fengið að vera
félag. Þau hafi í tvö ár barist fyr-
ir því og mikið gengið á: „Þetta
var stoppað af í tvö ár. Við feng-
um ekki félagið skráð hjá ÍSÍ í tvö
ár og þetta er þriðji veturinn okk-
ar en fyrsti Aþenu veturinn okkar.
Við spiluðum fyrstu tvö árin undir
merkjum UMFK og erum að þjálfa
krakka upp á Kjalarnesi. Þetta var
mjög lítill hópur sem fór á Kjal-
arnesið fyrst, við vorum bara sex
stelpur sem stofnuðum klúbbinn.
Við höfum af og til í gegnum árin
mætt þessum stelpum sem fóru úr
liðinu á sínum tíma og það er mik-
ill kærleikur á milli þegar þau mæt-
ast. Þetta var meira svona foreldra-
vandamál heldur en hitt.“
Ekki allt bara töp
og þunglyndi
Nú hefur Aþena leikið fjóra leiki
í deildinni í vetur, unnið einn og
tapað þremur. Hvernig líst hon-
um á deildina og hver eru markmið
liðsins?
„Ég hef aldrei fylgst með fyrstu
deildinni áður en við erum að fá
miklar áskoranir í þessu þannig að
ég er mjög ánægður með það. Þetta
er alvöru mótspyrna, þær hafa hins
vegar verið að spila einnig í stúlkna-
flokki og eru taplausar þar. Þetta er
því ekki allt bara töp og þunglyndi
og svo erum við að fá nýjar stelp-
ur inn í þetta þannig að það mun
taka einhvern tíma að ná þessu Aþ-
enu hugarfari. Við höfum fengið
fjórar stelpur annars staðar frá og
Bergþóra Holton sem hefur þjálfað
mikið með mér, tók fram skóna og
er að koma inn í rólegheitum eftir
höfuðmeiðsli.“
Brynjar segir þá að helstu mark-
mið liðsins séu að þau séu með
ákveðna hluti sem þau langi til að
gera inn á körfuboltavellinum og
þurfi að sjá hvernig það geti skil-
að þeim. „En stóru markmiðin eru
í raun að búa til þessa umgjörð og
þennan kjarna sem getur vaxið og
dafnað. Að koma saman er byrj-
un. Þetta er í raun allt annað dæmi
hjá okkur af því að við eigum séns á
því að vera með æfingahóp, getum
verið fimm á fimm á æfingum sem
ekkert er búið að vera í tvö ár. Þetta
er búið að vera mjög skrítið á köfl-
um, á tímabili tókum við inn 10-
12 ára stráka til að æfa með þeim.
Það var ekkert sérstakt fyrir þær en
fyrir strákana sem voru úr Aþenu
strákaliðinu var það mjög gott því
þeir urðu helvíti góðir!“
Meira á orði en á borði
Hvernig sér Brynjar Karl fyrir sér
næstu ár hjá Aþenu? „Ég sé fyrir
mér vonandi að ná að minnka þær
hindranir sem íþróttaforystan legg-
ur fyrir framan okkur og við fáum
bara tækifæri til þess að gera þetta
allt saman á einhverjum jafnréttis-
grundvelli eins og öll hin liðin.
Það er svolítið blóðugt að geta ekki
haldið starfi úti fyrir yngri stelpur
því ég held að það séu fáir klúbbar
sem eru tilbúnir að setja jafn mik-
inn metnað í það eins og við. Við
fáum það ekki og ekki tíma inni
í húsi og þetta er meira á orði en
á borði í Reykjavík að menn vilji
styðja við þetta stelpudæmi. Það
er alveg sama hvert við förum í
Laugardalnum. Það er ekki málið
að við fáum ekki það sem við þurf-
um, það er bara verið að reyna að
búa til hindranir fyrir okkur. Fé-
lagið fékkst ekki stofnað, við fáum
hvergi inni í húsi neins staðar æf-
ingar fyrir yngri stelpur. Ef við
fáum það þá verða einhver félög fúl
þó þau séu ekki með neitt starf að
viti. Svo vantaði okkur heimavöll,
við fengum að æfa úti á Álftanesi
og þegar Stjarnan frétti það að við
ætluðum að spila heimaleikina okk-
ar þar þá komu þeir í veg fyrir það.
Þess vegna spilum við heimaleik-
ina okkar á Skaganum og það sem
gerðist í Garðabænum var bara
grjóthörð skemmdarstarfsemi og
þess vegna enduðum við hér. Það
er ótrúlegt að það sé ekki tími eða
pláss fyrir okkur klukkan fimm á
laugardegi, það er ótrúlegt. Það er
enginn að spila á Álftanesi á þessum
tíma því Stjarnan spilar sína leiki í
Garðabæ.“
Augnablikið núna sem
skiptir máli
Blaðamaður tók eftir því í leikn-
um í dag að Brynjar Karl lifir sig
mikið inn í leikinn, er líflegur á
línunni og hikar ekki við að taka
leikmenn út af ef þær gera mistök.
„Ég hef oft verið gagnrýndur fyr-
ir þetta en tek það ekki mikið inn á
mig. Mér finnst það skondið að fólk
sé viðkvæmt fyrir því að leikmenn
séu teknir út af fyrir að gera mis-
tök. Það sem var sérstakt við þenn-
an leik í dag var að við vorum bara
rosa illa fyrirkallaðar og það gekk
allt út á það að fá hausinn í gang
heldur en að vera að leiðrétta ein-
hver körfuboltamistök. Því venju-
lega þegar einhver er að gera mis-
tök þá er hann bara tekinn út af og
það er bara leiðrétt á staðnum og
svona er þetta hjá mér í yngri flokk-
unum. Ef þú ferð alltaf inn á aft-
ur að þá geturðu alveg eins spurt
hvernig það sé fyrir stelpurnar að
fá að fara svona oft inn á völlinn.“
Brynjar segir að lokum að það sé
augnablikið núna sem skiptir máli
í körfubolta en ekki tapleikurinn í
síðustu viku. „Ef þú ert þjálfari og
þér líður eins og þú sért að endur-
taka þig þá er alveg eins gott stund-
um að stelpurnar taki til dæmis
leikhléið sjálfar. Þá fylgist maður
með og þá er oft áhugavert að sjá
og heyra hvað fer fram þar. Kannski
tekur einhver frumkvæði sem hefur
kannski ekkert að segja. Pælingin er
sú að ef þú ert að byggja upp lið að
þá er þetta stundum nauðsynlegt.
Allt þetta fer í reynslubankann og
hjálpar mér og liðinu að takast á við
nýjar áskoranir.“
vaks
Lið Aþenu sem leikur í fyrstu deildinni í vetur. Ljósm. vaks
„Stóru markmiðin að búa til þessa
umgjörð og þennan kjarna“
Rætt við Brynjar Karl þjálfara Aþenu í körfubolta kvenna sem spilar heimaleiki sína á Akranesi
Brynjar Karl, þjálfari Aþenu. Ljósm. af vefsíðu Aþenu.