Skessuhorn - 03.11.2021, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202114
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Ís-
lands afhjúpaði síðastliðinn mið-
vikudag söguskilti við Hallgríms-
kirkju í Saurbæ, á Hallgrímsmessu.
Athöfnin hófst með ávarpi Lindu
Bjarkar Pálsdóttur sveitarstjóra þar
sem hún bauð gesti velkomna til að
afhjúpa söguskiltið sem segir frá
sögu Hallgrímskirkju, Hallgrími
Péturssyni og konu hans, Guðríði
Símonardóttur. Linda Björk sagði
að skiltið væri fyrsti liður í verk-
efninu „Merking sögu og merkis-
staða í Hvalfjarðarsveit,“ sem leitt
er af Markaðsstofu Vesturlands og
unnið í samstarfi við Akraneskaup-
stað og Kjósarhrepp, en verkefnið
felst í þróun ferðaleiða um Hval-
fjörð og út á Akranes.
Vinna við verkefnið hófst á síð-
asta kjörtímabili en menningar- og
markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar
var einhuga um nauðsyn þess að
merkja helstu sögu- og merkisstaði
sveitarfélagsins og miðla þannig
þekkingu, bæði til heimamanna og
gesta. Við mótun verkefnisins voru
margar leiðir ræddar og álit fengin
frá sérfróðum aðilum en á núver-
andi kjörtímabili var ákveðið, að
loknum fundi með Margréti Björk
Björnsdóttur hjá Markaðsstofu
Vesturlands, að nota skilti til þess
að miðla þessum fróðleik.
Linda Björg sagði einnig
að menningar- og markaðs-
nefndin hefði leitað til íbúa Hval-
fjarðarsveitar eftir tillögum að stöð-
um þar sem vert væri að setja upp
skilti og hefðu viðbrögð íbúa verið
mjög góð. Niðurstaðan varð sú að
ákveðið hefði verið að skiltin yrðu
tíu í núverandi áfanga. Eftir við-
ræður við formann sóknarnefnd-
ar Hallgrímskirkju var ákveðið að
fyrsta skiltið yrði um Hallgríms-
kirkju í Saurbæ, Hallgrím Péturs-
son og Guðríði Símonardóttur.
Linda Björk sagði að lokum að
verkefnið nyti stuðnings frá Sókn-
aráætlun Vesturlands, styrktarsjóði
EBÍ, Faxaflóahöfnum og Mjólk-
ursamsölunni og kunni hún þeim
bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Þá
færði hún einnig þeim sveitungum
þakkir sem lagt hafa verkefninu lið
við miðlun fróðleiks, yfirlesturs og
ábendinga. Síðan mælti Agnes bisk-
up nokkur orð, afhjúpaði skiltið og
kór Saurbæjarprestakalls tók lagið.
Að því loknu færðu gestir sig inn
í kirkju og þar stjórnaði dagskránni
séra Þráinn Haraldsson sóknar-
prestur. Séra Kristján Valur Ing-
ólfsson, fyrrum vígslubiskup sagði
frá því í stuttu máli þegar Hall-
grímur Pétursson kom að Saur-
bæ. Kór Saurbæjarprestakalls und-
ir stjórn Benedikts Kristjánssonar
söng nokkra sálma séra Hallgríms
við undirleik Bjarna Frímanns
Bjarnasonar og fyrrnefndur Bene-
dikt tenór flutti kirkjuljóð eftir Jón
Leifs. Dagskránni lauk með því að
biskup Íslands séra Agnes flutti bæn
og blessun. Góð mæting sveitunga
og gesta var á viðburðinn sem fram
fór í góðu veðri og mæltist hann vel
fyrir.
vaks
Við Háskólann á Bifröst er í dag
eingöngu kennt í fjarnámi með
stuttum staðarlotum á sex vikna
fresti. Margrét Jónsdóttir Njarðvík,
rektor við skólann segir það stefnu
skólans að mæta menntaþörf lands-
manna hverju sinni og að köllun sé
eftir auknu fjarnámi. „Fyrst þegar
Háskólinn á Bifröst var stofnaður
vantaði menntamöguleika á lands-
byggðinni og var stofnun skólans
til að mæta þeirri vöntun. Skólinn
hefur svo alla tíð reynt að svara
kalli samfélagsins í menntamálum.
Krafa nútímans er að hafa fjarnám.
Meðalaldur okkar nemenda er 37,2
ár og þetta er fólk sem er gjarnan að
sækja sér seinni mastersgráðu eða
grunnnámsgráðu tvö. Þetta er fólk
oft með börn og buru eða í vinnu
með námi og fyrir bragðið er fjar-
nám góður valkostur,“ segir Mar-
grét og bætir við að fjarnám sé þó
alls ekki nýjung á Bifröst. „Bifröst
hefur verið með fjarnám í boði síð-
an á tíunda áratugnum,“ segir hún.
Faraldurinn raskaði
ekki námi
Að sögn Margrétar var kórónu-
veirufaraldurinn kannski smá bless-
un fyrir Háskólann á Bifröst en í
faraldrinum sannaðist bæði hversu
mikilvægt fjarnám getur verið og
hversu auðvelt það er í raun að
bjóða upp á fjarnám. „Á meðan
aðrir skólar voru ekki undir þetta
búnir og þurftu að kenna kennur-
um sínum að kenna í fjarnámi, eða
voru jafnvel með kennara sem vildu
hreinlega ekki kenna í fjarnámi,
þá truflaði þetta okkar starfsemi
ekki hætishót. Við erum bara með
kennara sem kunna og vilja kenna
í fjarnámi og erum með alla innviði
til þess að kenna í fjarnámi. Það var
því mikilvægt fyrir sjálfsmynd Bif-
rastar að geta sýnt fram á að þetta
er vel hægt,“ segir Margrét. „Ég var
ekki sannfærð fyrir nokkrum árum
að það væri hægt að kenna næstum
allt í fjarnámi. Í gamla daga sagði
ég sjálf gjarnan að ég myndi nú ekki
vilja fara til læknis sem hefði lært í
fjarnámi. En núna bara veit ég bet-
ur. Tilfellið er að það eru bara mjög
góðir læknar sem hafa lært í fjar-
námi og það er hægt að kenna flest
í fjarnámi.“
Áfallastjórnun
Aldrei hafa fleiri nemendur verið
skráðir í nám við skólann, en í dag
eru yfir 900 nemendur virkir í skól-
anum. Umsóknarmet var sett bæði
á síðasta ári og í ár. „Háskólar eru
líka alltaf í öfugu hlutfalli við stöð-
una í þjóðfélaginu. Þegar það krepp-
ir að fer fólk í nám,“ segir Margrét.
Sem partur af því að mæta þörfum
þjóðfélagsins hverju sinni var bætt
við nýrri námsbraut við Háskól-
ann á Bifröst, námi í áfallastjórn-
un. „Við sem búum úti á landi vit-
um hvað innviðir skipta miklu máli.
Þegar allt hrundi í byrjun árs 2020
og svo þegar óveðrið skall á fyrir
norðan og það datt út allt rafmagn
og hiti í marga daga. Þarna sáum við
hvað innviðirnir skipta miklu máli.
Þeir eru ótrúlega mikilvægir. En
það var ekki boðið upp á neitt nám í
áfallastjónun á landinu og við þurf-
um að hafa fólk með þessa menntun
til að takast á við svona áföll. Við
fórum því strax af stað og byrjuðum
með þetta nám núna í haust,“ segir
Margrét og bætir við að síðan í árs-
byrjun 2020 heftur skólinn einnig
verið að fjölga fastráðnum kennur-
um og eru núna 60% kennara við
skólann fastráðnir. Þá hefur einnig
orðið mikil fjölgun doktora við skól-
ann en í janúar 2020 voru þeir fimm
og eru 13 í dag.
Íslenskunám
Auk nýs náms í áfallastjórnun hef-
ur verið bætt við frumgreinanámi
á Bifröst og íslenskunámi fyr-
ir útlendinga. „Við lásum að það
væru 20% íbúa á Íslandi sem eiga
ekki íslensku sem móðurmál. Þá
sáum við að hér á landi vantaði
háskólagátt þar sem kennt væri á
ensku, svo þetta fólk hefði líka kost
á að fara í nám. Við brugðumst við
því. Svo er erfitt fyrir marga sem
ekki eiga íslensku sem móðurmál
að komast í íslenskukennslu. Við
ákváðum því að bjóða upp á ís-
lenskukennslu á netinu. Nú geta
allir sem til dæmis vinna vakta-
vinnu og líka óháð búsetu ver-
ið hjá okkur í námi,“ segir Mar-
grét og bætir við að hún hafi feng-
ið til liðs við sig Sigríði Kristins-
dóttur og Ólínu Þorvarðardóttur
til að sjá um íslenskunámið. „Þær
eru frábærar á þessu sviði.“ Spurð
hvort fjarnámið sé meira fyrir
landsbyggðina en íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu segir Margrét alla
geta nýtt sér fjarnám en að það
sé líka byggðamál. „Manneskja af
landsbyggðinni sem flytur ekki til
Reykjavíkur verður áfram mann-
eskja á landsbyggðinni. Sú mann-
eskja getur sótt sér menntun frá
sínu heimili og nýtt þekkinguna
beint inn í sitt byggðarlag. Það
er engin spurning að fjarnám er
byggðamál. Allar rannsóknir sýna
að um leið og fólk flytur til höf-
uðborgar fer það sjaldnast aftur til
baka. Þess vegna er þessi umræða á
landsbyggðina um að styrkja fjar-
nám hárrétt,“ segir Margrét Jóns-
dóttir Njarðvík.
arg
Bifröst í Norðurárdal.
Fjarnám er byggðamál
segir Margrét Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst
Margrét Njarðvík Jónsdóttir rektor Háskólans á Bifröst. Ljósm. úr safni/kgk.
Kór Saurbæjarprestakalls söng nokkur
lög.
Biskup afhjúpaði söguskilti í Saurbæ
Linda Björk bauð gesti velkomna.
Fjöldi gesta sótti viðburðinn.
Agnes biskup við skiltið.