Skessuhorn


Skessuhorn - 03.11.2021, Qupperneq 16

Skessuhorn - 03.11.2021, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202116 Síðastliðinn laugardag stóð Rótarýklúbbur Borgarness fyrir atvinnusýningu í Hjálmakletti í Borgarnesi með þátttöku um þrjátíu fyrirtækja og stofnana. Dagskráin hófst að morgni með málþingi og pallborðsumræðum þar sem til umræðu var Mat- vælalandið Ísland - loftslagsmál og kolefnisspor út frá ólíkum vinklum. Frummælendur voru Guðmundur I. Guðbrands- son umhverfisráðherra, Haraldur Benediktsson alþingismað- ur, Kristján Oddsson bóndi á Neðra-Hálsi og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Ræddu þau þær áskoranir sem landsmenn og reyndar heimsbyggð- in öll stendur frammi fyrir, ýmist út frá sjónarhóli stjórnvalda, bænda eða menntunar á sviði landbúnaðar og umhverfisfræði. Eftir að málþingi lauk um hádegisbil var hægt að kaupa kraftmikla kjötsúpu hjá útskriftarnemendum Menntaskóla Borgarfjarðar sem nú safna fyrir Mexíkóferð í vor. Eftir það dreifðust gestir um sali skólans og ræddu við þá sem kynntu vörur og þjónustu í heimabyggð. Boðið var upp á söngatriði, vöfflusölu og fleira eftir því sem leið á daginn. mm Héldu málþing og atvinnusýningu í Hjálmakletti Frá pallborðsumræðum við lok málþings. Gestir hlýða á ávarp Haraldar Benediktssonar bónda og þing- manns. Starfsfólk Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi kynnti helstu verkefni samtakanna. Útskriftarnemendur MB voru með kjötsúpusölu. Feðgarnir Þórarinn og Óðinn, sem reka Nes fasteignasölu í Borg- arnesi, við básinn sinn. Locatify kynnti smáforrit á sýningunni. María Neves markaðs- og kynningarfulltrúi Borgarbyggðar við bás sveitarfélags- ins. Eiríkur J Ingólfsson byggingameistari ræðir við gesti. Margrét Rósa Einarsdóttir eigandi Englendingavíkur og Hótel Glyms kynnti fyrirtæki sín og seldi gjafabréf. Fulltrúar Verkís verkfræðistofu. Litið yfir salinn. Þar má meðal annars sjá bása frá Límtré- -Vírneti, Háskólanum á Bifröst og verkfræðistofunni Eflu. Gréta Björgvinsdóttir og Guðný Bjarnadóttir kynntu Borg útfararþjónustu. Sævar Ingi og Ingibjörg kynntu Sögufélag Borgarfjarðar.Ásta Marý og Heiðmar spiluðu og sungu fyrir gesti. Hálfdán í Bílabæ og hans menn kynntu starfsemina.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.