Skessuhorn


Skessuhorn - 03.11.2021, Qupperneq 19

Skessuhorn - 03.11.2021, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 19 faxafloahafnir.is Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu. Umsóknarfrestur er til og með föstudag 12. nóvember n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri Framkvæmdasviðs inga@faxafloahafnir.is Umsókn og ferilskrá skal skulu sendar á netfangið olafur@faxafloahafnir.is Faxaflóahafnir sf. leita að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingum til að bætast í hóp starfsmanna á Framkvæmdasviði. Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 70 manns og er umráðasvæði hennar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir. Framundan eru spennandi og metnaðarfull verkefni í þróun hafnarinnar, auk þess sem stórar áskoranir í umhverfismálum liggja fyrir á næstu misserum og árum sem hefur m.a. í för með sér uppbyggingu innviða á svæðunum. Þeir einstaklingar sem við leitum að þurfa að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, vera sjálfstæð í starfi og hafa góða tölvukunnáttu. Ert þú þessi einstaklingur og hefur þú áhuga á að taka þátt í krefjandi verkefnum sem framundan eru hjá Faxaflóahöfnum? Þá viljum við heyra frá þér. Erum við að leita að þér? • • • • • • • • • • • • • • • • • Verkefnastjóri Skipulagsfulltrúi Menntunar og hæfniskröfur Verk- eða tæknifræðimenntun. Reynsla og þekking á verkefnastjórnun og teymisvinnu. Reynsla af verklegum framkvæmdum og mannvirkjagerð. Menntunar og hæfniskröfur Menntun á háskólastigi sem nýtist í starfi, svo sem arkitektúr, skipulagsfræði eða álíka. Þarf að uppfylla skilyrði skipulags- stofnunar sem skipulagsráðgjafi. Reynsla af skipulagsmálum og þekking á ákvæðum skipulagslaga. Helstu verkefni Vinna við mótun framtíðarsýnar skipulagsmála Faxaflóahafna sf. Áætlanagerð vegna skipulags-, umhverfis- og lóðarmála. Umsjón og eftirlit með gerð og breytingu allra skipulagsuppdrátta fyrir Faxaflóahafnir sf. og mæliblaða. Eftirlit og umsjón með gerð lóðarleigu- samninga á landi Faxaflóahafna sf. Umsjón og eftirlit með landupplýsingum, skráningu landeigna og fasteigna Faxaflóahafna sf. Samstarf við skipulags- og bygginga- fulltrúa sveitarfélaga á starfssvæði Faxaflóahafna sf. Samstarf og samráð við íbúa, lóðarhafa og aðra hagsmunaaðila. Helstu verkefni Verkefnastýring og umsjón verkefna frá frumstigum til framkvæmdar. Samskipti við ytri og innri aðila hafnarinnar í ýmsum verkefnum sem við koma mannvirkjum, landi, lóðum og götum. Umsjón og eftirlit framkvæmda á hafnarsvæðunum. Ýmis önnur tilfallandi störf. að á tímum Covid hafi komið sér vel að vera byrjaðir að halda fjar- fundi jöfnum höndum við hefð- bundna fundi þar sem fólk hittist augliti til auglitis. „Fjarfundir hafa hraðþróast á síðustu tveimur árum víðs vegar í þjóðfélaginu. Að flestu leyti er það jákvæð þróun, en þó er nauðsynlegt eins og í þeim til- fellum þegar verið er að semja um ný verk að hittast af og til. Fyrsti verkfundur þarf til dæmis að vera augliti til auglitis, en gott er að halda fjarfundi þess á milli. Stað- reyndin er nefnilega sú að jafnvel þótt fjarfundir spari tíma og ferða- lög, þá færðu ekki allt út úr þeim það sama og venjulegum fund- um.“ Verkefnin víða og ólík Óskar segir að verkefni Borgar- verks séu um allt land og verk- efnastaðan sé ágæt. Starfsmenn í vetur eru um 80 talsins en voru ríflega hundrað þegar mest lét í sumar. Umfangsmestu verkefnin eru klæðningar á þjóðvegunum og viðhald þeirra. Síðastliðið ár hef- ur fyrirtækið verið með alla lands- hluta undir í þeim efnum. Á síð- asta ári keypti Borgarverk svo fyr- irtækið Klæði á Egilsstöðum og er þannig orðið 6% eigandi í Hér- aðsverki og þar með þátttakandi í stórum verkefnum á þess vegum. Aðspurður segir Óskar að klæðn- ingarþátturinn í rekstri Borgar- verks sé 30-40% að umfangi en nýframkvæmdir 60-70%, en undir þær fellur gatnagerð og veitufram- kvæmdir í nýjum hverfum fyr- ir sveitarfélög og veitufyrirtæki, tilboðsverk í vegagerð og annað. „Stærstu verkefni okkar eru nú á Selfossi þar sem við erum að leggja götur og lagnir í tvö ný hverfi, annars vegar fyrir bæjarfélagið og hins vegar fyrir verktaka. Þessi tvö hverfi liggja samhliða og eru býsna stór að umfangi, en þau leggja sig á um tvo milljarða króna. Þá erum við að ljúka við Faxabraut á Akra- nesi, erum í hafnargerð á Ísafirði, vegagerð í Þverárhlíð er að hefj- ast og sömuleiðis er í gangi vega- gerð í Melasveit. Þá erum við með um sex kílómetra kafla í endur- nýjun stofnlagnar hitaveitunn- ar við Grjóteyri. Fram undan eru umferðarbætur fyrir Vegagerðina í gegnum Borgarnes og þá erum við að ljúka verki í Biskupsbrekku á Holtavörðuheiði og vegagerð í Gufufirði og á Skógarströnd, þar sem nýtt verkefni er reyndar að fara í gang og nær að Dunká. Það verk felur meðal annars í sér tvær brýr. Verkefnin okkar eru því býsna víða og ólík að eðli og um- fangi,“ segir Óskar. Vöxtur á Selfossi Þegar hér er komið sögu í þessu ferðaspjalli með Óskari hefur Krist- inn Sigvaldason hinn eigandi fyrir- tækisins bæst í hópinn og sömuleið- is Auður Guðmundsdóttir svæð- isstjóri Borgarverks á Suðurlandi. Eftir að hafa skoðað nýtt og glæsi- legt mannvirki Borgarverks við Víkurheiði; verkstæði, starfsmanna- aðstöðu og skrifstofubyggingu, ökum við um tvö ný hverfi á Sel- fossi; Jórvík og Bjarkarhverfið. Þar hefur Borgarverk með höndum gatnagerð og lagnavinnu auk þess að vinna jarðvinnu fyrir verktaka sem víða eru að byggja á Selfossi. Aðspurð segja þau Selfoss vera í gríðarlegri uppbyggingu nú um stundir sem lýsi sér best í að íbúa- fjölgun er frá 7 til 10% á ári. Slíkt kalli vissulega á miklar framkvæmd- ir við skóla og aðra innviði í sveitar- félaginu samhliða þetta hraðri fjölgun íbúa. Nýr grunnskóli er tek- inn að rísa úr jörðu í nýja hverfinu sunnan við aðal byggðina á Selfossi og þar eru fjölmargir verktakar að störfum. Síðdegis á föstudaginn voru þó flestir iðnaðarmenn farnir heim og sögðu byggingaverktakar sem við tókum tali að það skrifist á styttingu vinnuvikunnar. Stefna á stöðugan rekstur Þeir Kristinn og Óskar segjast að endingu vera bjartsýnir á rekstur Borgarverks. Fyrirtækið hafi vax- ið ár frá ári og standi fjárhagslega vel. Spurðir um hvort þeir stefni á tuttugu prósenta vöxt enn og aft- ur á næsti ári, svarar Kristinn eft- ir nokkra umhugsun: „Nei. Ætli hann verði ekki 30%.“ Þeir hlæja báðir, en taka fram að nú sé ekki markmið út af fyrir sig að stækka fyrirtækið heldur einbeita sér að góðum og traustum rekstri. „Við erum nokkuð sáttir við stöðuna eins og hún er í dag. Skipulags- breytingar sem við höfum nú kom- ið í gegn eru sérsniðnar til að geta haldið kröftugri starfsemi áfram í okkar kjarnagreinum. Við höfum gott starfsfólk með okkur í þessu og erum vel staðsett með okkar rekstur. Hér á Suðurlandi og eink- um á Selfossi er mikil uppbygging sem við tökum þátt í. Borgarnes er og verður áfram miðsvæðis fyr- ir þau verkefni sem við erum að sinna, þaðan liggja leiðir til allra átta, hvort sem er vestur á firði eða austur á land. Þaðan stýrum við einnig klæðningarverkefnum og þar fer fram hluti viðhalds tækja- flotans, en restinni er svo haldið við hér á Selfossi þar sem aðstað- an er góð. Vonandi komum við því svo í verk að byggja okkur nýja skrifstofuaðstöðu í Borgarnesi því þar mun fyrirtækið áfram eiga sitt heimili,“ segja þeir Óskar og Kristinn að endingu. Eftir fróðlegan dag er haldið áleiðis til baka, eftir vegum sem nú er verið að endurnýja, gegn- um Hveragerði og áleiðis yfir Hellisheiði. Síðdegis voru margir á heimleið þar eftir vinnu í höf- uðborginni. Óskar leggur á ráðin um verkefni helgarinnar í síman- um á meðan blaðamaður klórar sér í hausnum yfir hvernig hægt sé að skrá ferðasögu stórhuga forstjóra öflugasta fyrirtækisins á Vestur- landi þannig að eitthvað vit verði í því. mm Óskar á tali við Rögnvald Óla Jónsson veghefilsstjóra. Að baki þeirra er fullkomn- asti og einn af nýjustu vegheflum landsins. Staðarverkstjóri Borgarverks er hér að undirbúa malbikun bílastæðis við nýtt fjölbýlishús á Selfossi.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.