Skessuhorn


Skessuhorn - 03.11.2021, Side 26

Skessuhorn - 03.11.2021, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202126 Bjarki Fannar Hjaltason er 14 ára drengur á Akranesi, sonur Hjalta Arnar Jónssonar og Myrru Gísla- dóttur. Bjarki er næst elstur fimm systkina. Fjölskyldan er síðar í þess- um mánuði á leið til Boston þar sem Bjarki fer í opna hjartaaðgerð 6. des- ember nk. Fer fjölskyldan saman út 29. nóvember og þarf að dvelja þar til 3. janúar og verður því í Boston yfir jólin. Þau þurfa sjálf að borga flug fyrir fjóra auk þess sem það er mikill kostnaður við að fara í svona ferð og dvelja svo lengi fjarri heim- ilinu. Fjölskyldan hefur því gripið til þess að leita aðstoðar til almenn- ings og komið af stað söfnun á: go- getfunding.com/bjarkifannar arg Mjög harður árekstur varð um há- degisbil á miðvikudag á Vestfjarða- vegi, í Hvolsdal, á milli Hvols og Ársels í Dölum. Tildrög árekstrar- ins voru að fólksbifreið var ekið yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hún rakst fram- an á stóra sendibifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Sjúkrabílar frá Búðardal og Hólmavík voru kall- aðir út. Að sögn lögreglunnar á Vestur- landi var aðkoman mjög ljót á slys- stað og báðar bifreiðarnar mik- ið skemmdar. Fólksbifreiðin sýnu meira og gengin alveg inn að far- þegarými. Ökumaður fólksbif- reiðarinnar var fastur í bifreiðinni og þurfti að beita klippum tækjabíls til þess að ná honum út. Ökumað- urinn var mjög kvalinn og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til þess að flytja hann á bráðamóttök- una í Fossvogi. Meiðsl ökumanns- ins reyndust hins vegar minni hátt- ar og var hann fljótlega útskrifað- ur af sjúkrahúsi. Að sögn lögreglu slapp hann ótrúlega vel miðað við aðstæður. Ökumaður sendibif- reiðarinnar var fluttur á heilsugæsl- una í Búðardal. Hann reyndist lítið slasaður. Báðir ökumennirnir voru í bílbeltum. Ökumaður fólksbifreiðarinn- ar var eðli málsins nokkuð vank- aður en man ekki hvað gerðist sem olli árekstrinum en eins og áður sagði fór hann yfir á rangan vegarhelming. Aðstæður til aksturs voru þokkalegar, blautur vegur en skyggni gott. frg Í tilefni Vökudaga fól Akra- neskaupstaður nokkrum lista- mönnum á Akranesi að mála rusla- tunnur að eigin vali og má nú sjá þær á nokkrum stöðum í bæjar- félaginu. Fimm listamenn tóku áskoruninni og fengu frjálst val með sína list og óhætt að segja að vel hafi tekist til. Listamennirnir sem um ræðir eru þau Björn Lúð- víksson, Aldís Petra Sigurðardótt- ir, Silja Sif Engilbertsdóttir, Arn- björg Kjartansdóttir og Heim- ir Snær Sveinsson. Hugmyndin er sótt til Vestmannaeyja þar sem svipað verkefni hefur verið í gangi og ljóst að þessar fallegu tunnur munu lífga upp á bæinn. Vonandi verður framhald á þessu skemmti- lega verkefni og að aðrar rusla- tunnur bæjarins verði ekki öfund- sjúkar yfir því að fá ekki nýtt lúkk hið snarasta. vaks Á 66. fjórðungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var á Ísafirði dagana 22. og 23. október, var ályktun um samgöngumál áberandi en eins og segir í inngangi hennar hafa Vest- firðir staðið aftar öðrum landshlut- um á öllum sviðum samgöngukerf- isins á liðnum árum. Fjórðungs- þing Vestfirðinga krefst þess að samgöngumál á Vestfjörðum verði sett í forgang. Breiðafjarðarferjan Baldur fær sína umfjöllun í álykt- uninni en ferjan er eins og kunn- ugt er grunnstoð í samgöngum á Vestfjörðum, nú þegar sjá má fram á heilsárs samgöngur milli sunnan- og norðanverðra Vestfjarða með framkvæmdum á Dynjandisheiði. Fjórðungsþingið lagði áherslu á að núverandi ferja annar ekki eft- irspurn miðað við núverandi sigl- ingaáætlun. Því sé enn mikilvægara að tryggja öryggi farþega um borð og nauðsynlegt að endurnýja nú- verandi ferju. Það er skýr krafa fjórðungsþingsins að ekki verð- ur unað við þá niðurstöðu Vega- gerðarinnar að hagstæðast sé að uppfylla núverandi samning við Sæferðir sem gildir til 31. maí 2022 með möguleika á framlengingu til 31. maí 2023. Það er skýr krafa sveitarfélaga á Vestfjörðum að hafinn verði strax undirbúningur að því að gera gamla Herjólfi kleift að leggja að bryggju á Brjánslæk og Flatey og að hann hefji siglingar við fyrsta tækifæri og sigli þar til ný ferja verður fengin. Einnig að við endurbyggingu á ekjubrúm verði miðað við að þær henti bæði Herjólfi og nýrri ferju. Fjórðungsþingið lagði auk þess ríka áherslu á að lokið verði við gerð viðbragðsáætlunar vegna ferjuslysa á Breiðafirði, sem lagt var til árið 2011 að yrði unnin, en tíðar bilan- ir og vegna aldur skipsins er mik- ið áhyggjuefni að öryggi farþega er ekki tryggt. frg Harður árekstur varð í Hvolsdal Herjólfur III. Ljósm. af vef Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Vilja að Herjólfur hefji sigl- ingar um Breiðafjörð hið fyrsta Bjarki Fannar er á leið í opna hjartaaðgerð í Boston Ruslatunnur á Akranesi fá nýtt útlit

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.