Skessuhorn - 03.11.2021, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202130
Var að stilla
útvarpið og ók
á skilti
AKRANES: Umferðaróhapp
varð á Leynisbraut á Akranesi
síðastliðinn fimmtudag. Öku-
maður sem var að stilla útvarp-
ið í bílnum, sá ekki skilti á um-
ferðareyju, og ók á skiltið. Far-
þegi í bílnum var með athygl-
ina á símanum og sá því held-
ur ekki skiltið og gat ekki varað
ökumann við í tíma. Ökumaður
og farþegi sluppu ómeiddir en
bíllinn skemmdist nokkuð og
þurfti slökkvilið að hreinsa upp
olíu eftir óhappið. -frg
Stolið úr
Heiðarskóla
HVALFJ.SV: Á miðvikudag
í síðustu viku var farið inn í
Heiðarskóla og tölvu að verð-
mæti 1,5 milljón stolið. Annar
tölvubúnaður í rýminu var lát-
inn ósnertur. Engin ummerki
sáust á vettvangi og virðast hin-
ir óprúttnu aðilar hafa komist
yfir lykla að húsnæðinu. Þegar
upptökur úr öryggismyndavél-
um voru skoðaðar þekktust að-
ilarnir og gat lögregla gengið að
þeim vísum. -frg
Slys við
Guðlaugu
AKRANES: Í hádeginu á
mánudag barst Neyðarlínu til-
kynning um slasaða konu í fjör-
unni við laugina Guðlaugu á
Akranesi. Þar hafði kona á átt-
ræðisaldri á göngu meðfram
Langasandi fallið af varnargarði
og slasast við fallið. Konan var
flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús-
ið á Akranesi. -frg
Erlendur öku-
maður á 139
SNÆFELLSN: Lögreglu-
menn í umferðareftirliti stöðv-
uðu á á sunnudag erlendan ök-
umann sem ók um Snæfells-
nesveg, við Álftá, á 139 kíló-
metra hraða. Sekt fyrir slíkt
umferðarbrot er 150 þúsund
krónur en þar sem ferðamað-
urinn staðgreiddi sektina fékk
hann 37.500 krónur í afslátt og
greiddi alls 112.500 krónur. Að
sögn lögreglu voru margir öku-
menn sektaðir fyrir of hraðan
akstur, á bilinu 130 til 140 kíló-
metra hraða. -frg
Árekstur í
Norðurárdal
BORGARFJ: Seinni partinn á
sunnudag varð árekstur á Vest-
urlandsvegi í Norðurárdal, á
móts við Hraunsnef. Annar ök-
umaðurinn hafði farið yfir á
rangan vegarhelming og þrátt
fyrir að hinn ökumaðurinn viki
alveg út í vegarkant tókst hon-
um ekki að forða árekstri. Þegar
lögreglu bar að garði þveraði
önnur bifreiðin veginn og hin
var utan vegar. Engin slys urðu
á fólki en bílarnir skemmdust
mikið og voru fjarlægðir af vett-
vangi með kranabílum. -frg
Hvíta Húsið
opnað aftur
AKRANES: Ungmennahús-
ið Hvíta Húsið verður endur-
opnað í dag klukkan 18 eftir að
hafa fært sig tímabundið úr Frí-
stundamiðstöðinni og í Gamla
Landsbankahúsið á Suðurgötu
57, fyrstu hæð. Húsið er opið
öllum ungmennum á aldrinum
16-25 ára. -vaks
Haustfundur
atvinnuráðgjafa
STYKKISH: Haustfund-
ur atvinnuráðgjafa hér á landi
verður haldið í Stykkishólmi
í dag og á morgun. Þar koma
saman um 50 manns, starfsfólk
Byggðastofnunar og ráðgjaf-
ar frá landshlutasamtökunum. Í
dag verður hópurinn á ferðinni
um Snæfellsnes þar sem heim-
sótt verða ýmis fyrirtæki eins
og útgerð og fiskvinnsla Soff-
aníasar Cecilssonar, Frystiklef-
inn í Rifi, Þjóðgarðurinn Snæ-
fellsjökull og Bjarnarhöfn. Í lok
dags verður svo kvöldverður
á Fosshóteli í Stykkishólmi. Á
morgun verður haldinn fundur
á Fosshóteli þar sem farið verð-
ur yfir byggðamál og nýsköp-
un. Þá verður farið í gönguferð
um Stykkishólm og kíkt í heim-
sóknir í fyrirtæki. -arg
Aflatölur fyrir
Vesturland
23. til 29. október.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu.
Akranes: 5 bátar.
Heildarlöndun: 12.815 kg.
Mestur afli: Ebbi AK-37: 2.415
kg. í þremur löndunum.
Arnarstapi: 4 bátar.
Heildarlöndun: 65.425 kg.
Mestur afli: Særif SH-25:
32.847 kg. í þremur löndunum.
Grundarfjörður: 11 bátar.
Heildarlöndun: 481.278 kg.
Mestur afli: Sóley Sigurjóns
GK - 200: 103.871 kg. í einni
löndun.
Ólafsvík: 9 bátar.
Heildarlöndun: 93.693 kg.
Mestur afli: Brynja SH - 236:
24.661 kg. í þremur löndunum.
Rif: 8 bátar.
Heildarlöndun: 172.871 kg.
Mestur afli: Örvar SH-777:
53.468 kg. í einni löndun.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 15.364 kg.
Mestur afli: Bára SH-27: 8.253
kg. í fjórum löndunum.
Topp fimm
landanir á tímabilinu:
1. Sóley Sigurjóns GK-200
GRU: 103.871 kg. 24. október.
2. Hringur SH-153 GRU:
63.708 kg. 27. október.
3. Runólfur SH-135 GRU:
61.822 kg. 25. október.
4. Sigurborg SH-12 GRU:
59.834 kg. 25. október.
5. Steinunn SF-10 GRU:
58.215 kg. 24. október.
-frg
Fyrstu þrjá dagana í þessari viku
eru bæjarstjóri og formaður at-
vinnu- og nýsköpunarnefndar
Stykkishólmsbæjar í heimsóknum
á vinnustaði í Stykkishólmi. Til-
gangur þeirra er að kynnast bet-
ur starfsemi fyrirtækja og stofnana
í bænum auk fyrirliggjandi áskor-
ana og tækifæra. „Tilgangur okk-
ar er að Stykkishólmsbær geti enn
betur stutt við hagsmuni atvinnu-
lífsins í sinni stefnumótun og hags-
munagæslu, enda er atvinnulífið
grundvöllur undir byggð á hverjum
stað og lífæð allra samfélaga,“ seg-
ir Jakob Björgvin Jakobsson bæjar-
stjóri í Stykkishólmsbæjar í samtal
við Skessuhorn. Jón Sindri Emils-
son aðstoðarmaður hans tók með-
fylgjandi myndir á mánudaginn og
í gær. arg/ Ljósm. jse
Nú er Matarveisla Vesturlands hafin
og styttist í Matarhátíð á Hvann-
eyri, sem verður haldin laugar-
daginn 13. nóvember. Matarveislan
stendur yfir allan nóvembermánuð
og geta allir tekið þátt sem vilja
bjóða upp á matartengda viðburði
í mánuðinum. Viðburðirnir geta
verið hvað sem er sem tengist mat
eða matarhefð, til dæmis tilboð,
popup viðburðir, fræðsla eða annað
skemmtilegt. Nú þegar hafa 25 að-
ilar skráð viðburð á viðburðadaga-
talið Veisla á Vesturlandi og enn
bætast við skemmtilegir viðburð-
ir. Þá hafa 14 aðilar skráð þáttöku
í matarmarkaði á Hvanneyri þar
sem verður hægt að finna gómsæt-
an sælkeramat frá Vesturlandi. Þá
verða veittar viðurkenningar Asks-
ins á Matarhátíðinni á Hvanneyri
og enn er hægt að tilnefna verðuga
aðila til 8. nóvember á askurinn.is.
Til að fylgjast með matartengdum
viðburðum á Vesturlandi í nóvem-
ber er hægt að skoða viðburðadaga-
tal á matarhatid.is.
arg
Matarveislan er hafin
Heimsókn hjá Eggert Halldórssyni í Þórsnesi.
Fóru í fyrirtækjaheimsóknir
Halldór Árnason, formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar,
og Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæj-
ar, í heimsókn hjá Asco Harvester.
Heimsókn hjá BB og sonum.
Jakob og Halldór kíktu við í Dekk og Smur. Litið við á Fosshótel Stykkishólmi.
Í heimsókn hjá Marz Sjávarafurðum. Jakob og Halldór í heimsókn hjá Skipavík.
Kíkt í heimsókn til ÞB Borg.