Skessuhorn - 01.12.2021, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 202110
Framsóknarflokkur, Sjálfstæðis-
flokkur og Vinstrihreyfingin grænt
framboð kynntu á sunnudaginn
nýjan sáttmála um ríkisstjórnar-
samstarf. Í tilkynningu frá flokk-
unum þremur um nýjan sáttamála
segir:
„Sáttmálinn fjallar um sameig-
inlega hagsmuni þjóðarinnar þar
sem birtast leiðarstef flokkanna
um efnahagslegar og félagslegar
framfarir, vernd umhverfis, kraft-
mikla verðmætasköpun, jafnrétti
kynjanna og jafnvægi byggða og
kynslóða. Tekist verður á við all-
ar áskoranir með hag almennings
að markmiði og í þeirri trú að vel-
sæld verði best tryggð með traust-
um efnahag, jöfnum tækifærum og
aðgerðum í þágu nýsköpunar, um-
hverfis og loftslags.
Ný ríkisstjórn ætlar að stuðla
að efnahagslegum stöðugleika og
byggja upp styrk ríkisfjármálanna
á ný á grundvelli öflugs atvinnulífs.
Áhersla verður lögð á framúrskar-
andi umhverfi til verðmætasköpun-
ar, þar sem til verða ný, fjölbreytt
og verðmæt störf. Samspil peninga-
stefnu, ríkisfjármála og vinnumark-
aðar verður undirstaða þess að unnt
sé að tryggja stöðugleika í verðlagi
og vöxtum.
Í sáttmála nýrrar ríkisstjórnar er
lögð áhersla á baráttuna við lofts-
lagsbreytingar með samdrætti í los-
un, orkuskiptum og grænni fjár-
festingu. Tekist verður á við það
verkefni að búa íslenskt samfélag
undir aukna tæknivæðingu auk þess
að tryggja áframhaldandi lífskjara-
sókn allra kynslóða.
Ný ríkisstjórn ætlar að fjárfesta í
fólki. Áhersla er lögð á að einstak-
lingurinn sé hjartað í kerfinu og að
öflugt velferðarkerfi sé undirstaða
jöfnunar og tryggi að allir geti
blómstrað. Áfram verður unnið að
því að bæta afkomu eldra fólks, og
sérstaklega horft til þeirra ellilíf-
eyrisþega sem lakast standa. Unnið
verður að því að tryggja betur fjár-
hagslega stöðu barnafólks í gegn-
um skatta og bótakerfi og verð-
ur sérstaklega hugað að því að efla
barnabótakerfið.“ mm
Síðastliðinn sunnudag tók ný rík-
isstjórn við á ríkisráðsfundi á
Bessastöðum. Fyrr um daginn
var kynntur stjórnarsáttmáli sem
flokksráð Framsóknarflokks, Sjálf-
stæðisflokks og Vinstri hreyfingar-
innar græns framboð höfðu áður
samþykkt. Miklar breytingar verða
nú á ráðuneytum og verkaskiptingu
þeirra. Ný ráðuneyti stofnuð og
verkefni auk þess færð milli ráðu-
neyta. Sjálfstæðisflokkur verður
áfram með fimm ráðuneyti, Fram-
sókn með fjögur og Vinstri græn
þrjú, alls tólf ráðuneyti. Kynja-
skipting er ekki jöfn, en sjö karl-
ar sitja í nýrri ríkisstjórn og fimm
konur. Þó hefur komið fram að
Guðrún Hafsteinsdóttir (D) mun
taka við af Jóni Gunnarssyni í inn-
anríkisráðuneytinu að 18 mánuð-
um liðnum. Þá jafnast kynjaskipt-
ingin. Ráðherrar koma úr fimm
kjördæmum af sex, enginn er úr
Norðausturkjördæmi.
Ný ráðuneyti verða innviða-
ráðuneyti, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneyti, nýtt ráðuneyti
háskóla- og vísinda, iðnaðar- og
nýsköpunar, ráðuneyti skóla- og
barnamála. Dómsmálaráðuneyti
kallast nú innanríkisráðuneyti.
Óbreytt verkaskiptin verður að
mestu í fjármálaráðuneytinu, heil-
brigðisráðuneytinu og utanríkis-
ráðuneytinu.
Þessi verða ráðherrar:
Bjarni Benediktsson (D) verður
áfram fjármálaráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir (D) verður utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson (D)
verður ráðherra umhverfis- og
loftslagsmála.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
(D) verður ráðherra nýsköpunar,
iðnaðar og háskóla.
Jón Gunnarsson (D) verður innan-
ríkisráðherra.
Willum Þór Þórsson (B) verður
heilbrigðisráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson (B) verð-
ur innviðaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir (B) verður við-
skipta- og menningarmálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason (B) verð-
ur skóla- og barnamálaráðherra.
Katrín Jakobsdóttir (V) verður
áfram forsætisráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
(V) verður félags- og vinnumark-
aðsráðherra.
Svandís Svavarsdóttir (V) verður
ráðherra matvæla, sjávarútvegs og
landbúnaðar. mm
Ríkisráð kom saman á Bessastöðum síðdegis á sunnudaginn, en jafnframt var það fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar.
Tólf ráðherrar í nýrri ríkisstjórn
Stjórnarsáttmáli -
„Ríkisstjórn um vaxandi velsæld“
Forsvarsmenn ríkisstjórnarflokkanna kynntu sáttmálann sinn á blaðamanna-
fundi á Kjarvalsstöðum. Hér er kíkt inn um glerið. Ljósm. aðsend.
Nýjar bækur!